Íslenska ríkið dæmt fyrir að endurheimta ekki ólöglega ríkisaðstoð

EFTA dóm­stóll­inn hefur dæmt Íslandi í óhag og átelur íslensk stjórn­völd fyrir að hafa ekki end­ur­heimt ólög­mæta rík­is­að­stoð innan til­skil­ins tíma­frests. Ísland þarf að borga allan máls­kostnað vegna máls­ins, sem snýst um ólög­mæta rík­is­að­stoð í formi íviln­un­ar­samn­inga við fimm fyr­ir­tæki: Becrom­al, Ver­ne, Íslenska kís­il­fé­lag­ið, Thorsil og GMR end­ur­vinnsl­una.

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, komst að þeirri nið­ur­stöðu fyrir tveimur árum að samn­ing­arnir fælu allir í sér rík­is­að­stoð sem gengi gegn EES-­samn­ingn­um. Stjórn­völdum á Íslandi var fyr­ir­skipað að stöðva allar frek­ari greiðslur rík­is­að­stoðar á grund­velli þess­ara fimm samn­inga og sjá til þess að öll sú aðstoð sem veitt hafði verið fram að því yrði end­ur­greidd innan fjög­urra mán­aða.

Það var fyrir 9. febr­úar í fyrra. Þá var íslenskum stjórn­völdum gert að til­kynna eft­ir­lits­stofn­un­inni hver heild­ar­fjár­hæð ólög­mætrar rík­is­að­stoðar hefði verið veitt og til­kynna hvernig ríkið hygð­ist end­ur­heimta þessa fjár­hæð.

Íslensk stjórn­völd upp­fylltu enga af þessum kvöðum sem ESA hafði sett á og því ákvað stofn­unin að stefna Íslandi fyrir EFTA dóm­stól­inn vegna máls­ins síð­ast­liðið haust. „Tafir á end­ur­heimtu ólög­mætrar rík­is­að­stoðar við­halda þeirri sam­keppn­is­röskun sem aðstoðin hefur í för með sér. Það er óvið­un­andi að nærri ári eftir að end­an­leg ákvörðun stofn­un­ar­innar lá fyrir hefur Ísland enn ekki stöðvað eða end­ur­heimt ólög­mæta rík­is­að­stoð,“ sagði Sven Erik Sved­man, for­seti ESA, um málið þá.

Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu vegna dóms­ins segir að samn­ing­arnir við Kís­il­fé­lagið og Thorsil hafi aldrei kom­ist til fram­kvæmda, og því hafi aldrei verið veittir styrkir á grund­velli þeirra. Máli vegna Verne sé lokið og búið sé að ná sam­komu­lagi í máli Becromal. Þá sé sam­komu­lag um end­ur­heimt styrkja til GMR End­ur­vinnslu á loka­stigum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár