Framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála hættir

Hörður Þór­halls­son, sem ráð­inn var í starf fram­kvæmda­stjóra Stjórn­stöðvar ferða­mála í októ­ber, mun hætta á næst­unni og hverfa til ann­arra starfa. Ráðning hans var afar umdeild á sínum tíma.

Ragnheiður Elín Árnadóttir er ráðherra ferðamála. Hún er formaður Stjórnstöðvar ferðamála.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir er ráð­herra ferða­mála. Hún er for­maður Stjórn­stöðvar ferða­mála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hörður Þór­halls­son, sem ráð­inn var fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála í fyrra­haust, mun hverfa til ann­arra starfa og starf fram­kvæmda­stjóra verður aug­lýst til umsóknar á næst­unni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Til­kynnt var um stofnun Stjórn­stöðvar ferða­mála með við­hafn­ar­kynn­ingu í Hörpu í byrjun októ­ber 2015. Hlut­verk Stjórn­stöðv­ar­inn­ar átti að verða að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni var ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020. Hún var sett á lagg­irnar á grund­velli ­sam­komu­lags milli rík­i­s­tjórn­ar­inn­ar, Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skip­aði í tíu full­trúa í stjórn Stjórn­stöðv­ar­inn­ar. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­trúar frá Sam­tökum ferða­þjon­ust­unnar og tveir full­trúar Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, er for­maður Stjórn­stöðv­ar­inn­ar.

Hörður var ráð­inn í starfið á sama tíma af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Þar var hann með verk­taka­samn­ing og fékk 1.950 þús­und krónur í heild­ar­laun á mán­uði. Stjórn Stjórn­stöðv­ar­innar tók ákvörðun um ráðn­ingu hans og staða fram­kvæmda­stjóra Stjórn­stöðvar ferða­mála var ekki aug­lýst.

Ráðn­ing­ar­ferlið þótti mjög umdeilt og var gagn­rýnt víða í sam­fé­lag­inu. Ragn­heiður Elín sagði í við­tali við Speg­il­inn í á þeim tíma að nýskipuð stjórn Stjórn­stöðv­ar­innar hafi viljað „þung­ar­vigt­ar­mann" í stöðu fram­kvæmda­stjóra. Þau hafi orðið þess áskynja að Hörður væri á lausu og Ragn­heiður Elín sagði að hann hefði upp­fyllt þau skil­yrði sem sett hefðu verið fyrir starf­inu.

Stofna félag um rekstur Stjórnstöðvar

Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu sem send var út í dag segir að íslenska ríkið og Samtök ferða­þjón­ust­unnar hafi í dag stofnað form­lega sér­stakt sam­eign­ar­fé­lag utan um rekstur Stjórn­stöðvar ferða­mála. Nafn þess er Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­stöðvar ferða­mála og er það í 50 pró­sent eigu rík­is­sjóðs og 50 pró­sent eigu Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

Til­gangur hins nýstofn­aða félags er að halda utan um starfs­manna­mál og almennan rekstur Stjórn­stöðvar ferða­mála. Starfs­menn félags­ins skulu sinna þeim verk­efnum sem þeim eru falin af Stjórn­stöð ferða­mála í sam­ræmi við Vegvísi í ferða­þjón­ustu sem iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra og Samtök ferða­þjón­ust­unnar gáfu út í októ­ber 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár