Fulltrúar ferðaþjónustu, ríkisstjórnar og sveitarfélaga skipa Stjórnstöð ferðamála

Stjórn­stöð ferða­mála var sett á lagg­irnar á grund­velli sam­komu­lags milli rík­i­s­tjórn­ar­innar, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Samtaka ferða­þjón­ust­unnar í dag. Um leið skip­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, tíu full­trúa í Stjórn­stöð­ina. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­trúar frá Samtökum ferða­þjonust­unnar og tveir full­trúar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Stjórn­stöð ferða­mála hefur verið sett á lagg­irnar til þess að treysta stoðir ferða­þjón­ustu­iðn­aðar hér á landi, sam­kvæmt til­lögum stýri­hóps um fram­tíð ferða­þjón­ust­unnar. Hluverk Stjórn­stöðv­ar­innar verður að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra er for­maður Stjórn­stöðv­ar­innar en auk hennar sitja í stjórn­inni Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, og Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra. Allir ráð­herr­arnir sitja í nefnd­inni því ráðu­neyti þeirra sinna á einn eða annan hátt mál­efnum ferða­þjón­ust­unnar.

Full­trúar Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) eru fjórir. Það eru Grímur Sæmund­sen, for­maður SAF og for­stjóri Bláa lóns­ins, Þórir Garð­ar­son, vara­for­maður SAF og fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs Gray Line Iceland, Helga Arn­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SAF, og Björgólfur Jóhanns­son, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins og for­stjóri Icelandair Group.

Kjarninn óskaði eftir skýr­ingum á því hvers vegna Björgólfur hafi fengið fjórða sæti SAF í Stjórn­stöð­inni og fékk þær skýr­ingar að eðli­legt sé að stærsta einka­rekna ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins fái atkvæði í slíkri stjórn, enda eru SAF sam­tök fyr­ir­tækja í einka­rekstri. Grímur Sæmunds­sen und­ir­strik­aði einnig í sam­tali við Kjarnann að Björgólfur sæti í Stjórn­stöð­inni sem for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, jafn­vel þó það hafi ekki verið skráð þannig í frétt atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga á tvö sæti í Stjórn­stöð ferða­mála. Þau skipa Halldór Hall­dórs­son, for­maður sam­bands­ins og borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, og Sigrún Blöndal, for­seti bæj­ar­stjórnar Fljóts­dals­hér­aðs og for­maður Sambands sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi.

Halldór segir val full­trú­anna tveggja hafa verið með sam­bæri­legum hætti og val full­trúa í ráð, nefndir og stjórnir hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Í skrif­legu svari til Kjarnans segir Halldór að leit­ast sé „við að vera með sem besta land­fræði­lega dekkun, jafnt kynja­hlut­fall og sem jafn­ast jafn­vægi milli stjórn­mála­flokka“. Halldór bendir einnig á að Sigrún sé eini full­trúi lands­byggð­ar­innar í Stjórn­stöð ferða­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár