Stoðir ferðaþjónustunnar of veikar fyrir frekari vöxt

Stýri­hópur um fram­tíð ferða­þjón­ustu á Íslandi telur und­ir­stöður ferða­þjón­ustu á Íslandi vera of veikar til þess að hægt sé að móta fram­tíð­ar­stefnu grein­ar­innar. Stýri­hóp­ur­inn, sem starfað hefur á vegum iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins og Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, skil­aði nið­ur­stöðum sínum í dag.

Til þess að treysta stoðir ferða­þjón­ustu­iðn­aðar hér á landi verður sett á fót Stjórn­stöð ferða­mála. Hluverk hennar verður að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020.

Í skýrslu stýri­hóps­ins, sem kall­ast Vegvísir í ferða­þjón­ustu, er fjallað um flókið lagaum­hverfi, óljósa ábyrgð og óskýrt skipu­lag grein­ar­innar. Um gjald­töku á ferða­manna­stöðum er lagt til að „heim­ildir til inn­heimtu þjón­ustu­gjalda verði nýttar á áfanga­stöðum þar sem við á, þannig að greitt verði fyrir virð­is­auk­andi þjón­ustu“. Skýrslan segir jafn­framt brýnt að hugað verði að nátt­úru- og minja­vernd og er lagt til að Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða fái breytt hlut­verk til að fjár­magna upp­bygg­ingu áfanga­staða.

Stýri­hópur verk­efn­is­ins var skip­aður Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra sem einnig var for­maður, Grími Sæmund­sen, for­stjóra og for­manni Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, Helgu Árna­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, og Ólöfu Ýrr Atla­dóttur, ferða­mála­stjóra.

Í verk­efna­hóp sátu ráð­gjaf­arnir Guðfinna S. Bjarna­dóttir og Vil­hjálmur Krist­jáns­son frá LC Ráðgjöf, Helga Har­alds­dóttir og Bryn­hildur Pálm­ars­dóttir frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Helena Karls­dóttir frá Ferða­mála­stofu og Þorgeir Pálsson og Vilborg Helga Júl­í­us­dóttir ráð­gjafar, til­nefnd af Samtökum ferða­þjón­ust­unnar.

[caption id="attachment_40286" align="alignnone" width="1024"] Lagt er til að heim­ildir til gjald­töku fyrir virð­is­auk­andi þjón­ustu verði nýttar. Auk þess verður hlut­verki Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða breytt til að fjar­magna upp­bygg­ingu áfanga­staða.[/caption]

Stjórnstöð á að einfalda starfsumhverfið


Í tíu manna stjórn Stjórn­stöðvar ferða­mála munu fjórir ráð­herrar helstu mála­flokk­anna sem tengj­ast ferða­þjón­ust­unni ásamt fjórum full­trúum grein­ar­innar og tveimur full­trúum sveit­ar­fé­laga. Stjórn­stöðin á að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við alla þá sem koma að ferða­þjón­ust­unni, jafnt meðal hins opin­bera, einka­að­ila eða hags­muna­að­ila.

For­sæt­is­ráð­herra mun skipa í stórn stjórn­stöðv­ar­innar en iðn­aðar- og við­skipa­ráð­herra verður for­maður. Auk inn­an­rík­is­ráð­herra munu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skipa ráð­herra­sætin þrjú. Hörður Þór­halls­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála til að fylgja eftir Vegvísi í ferða­þjón­ustu sem kynntur var í dag.

Samkvæmt spá sem birt er í skýrsl­unni eru áætl­aðar gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins af ferða­þjón­ustu í heild sinni árið 2015 verða um 350 millj­arðar króna. Árið 2020 er gert ráð fyrir, ef vel tekst til, að tekj­urnar nemi 620 millj­örðum og meira en 1.000 millj­örðum árið 2030. Í skýrsl­unni er þetta sett í sam­hengi við áætl­aðar heild­ar­gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins 2015 sem verða um 1.140 millj­arðar króna.

Stýri­hóp­ur­inn leggur því áherslu á að til þess að ferða­þjón­ustu­iðn­að­ur­inn geti vaxið á Íslandi verði að ein­falda starfs­um­hverfi grein­ar­innar. Markmið og mæli­kvarðar á árangri í ferða­þjón­ustu, eins og stýri­hóp­ur­inn setur þau fram eru: jákvæð upp­lifun ferða­manna, aukin arð­semi, aukin dreif­ing ferða­manna og jákvæð við­horf til grein­ar­innar. Um alla þessa þætti vantar mæl­an­leg gögn svo gagna­öflun hefur verið gerð að for­gangs­máli á næsta ári. „Þannig fáist þau grunn­við­mið sem þarf til að setja tölu­leg mark­mið í fram­hald­inu og fylgja þeim eftir,“ segir í skýrsl­unni.

Áherslu­þætt­irnir sjö sem til­greindir eru í Vegvísi í ferða­þjón­ustu og verða lyk­il­þættir í starf­semi stjórn­stöðv­ar­innar til 2020 eru: Sam­hæf­ing, jákvæðu upp­lifun ferða­manna, áreið­an­leg gögn, nátt­úru­vernd, hæfni og gæði, aukin arð­semi og dreif­ing ferða­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár