DNB um viðskiptin við Samherja: „Enginn kúnni mikilvægari“ en að fylgja lögum

Upp­lýs­inga­full­trúi DNB-bank­ans, Even Westerveld, segir að DNB slíti við­skipta­sam­bandi við fyr­ir­tæki sem fremja lög­brot. DNB vill ekki svara sér­tækum spurn­ingum um Sam­herj­a­málið.

DNB um viðskiptin við Samherja: „Enginn kúnni mikilvægari“ en að fylgja lögum
Við­skipta­sam­bandi Samherja og DNB lýkur ef lög­brot sann­ast Upp­lýs­inga­ful­trúi DNB bank­ans í Noregi segir að ef lög­brot sann­ast á fyr­ir­tæki þá muni það vit­an­lega hafa áhrif á við­skipta­sam­band þess við bank­ann.

Norski DNB-bank­inn segir að eng­inn við­skipta­vinur bank­ans sé það mik­il­vægur að bank­inn myndi brjóta gegn lögum og reglum til að ganga hags­muna við­kom­andi fyr­ir­tækis. Þetta kemur fram í svörum frá upp­lýs­inga­full­trúa DNB, Even Westerveld, við einni af spurn­ingum Stund­ar­innar um Sam­herj­a­málið í Namibíu.

Stundin hefur um all­langt skeið og ítrekað  reynt að fá efn­is­leg og sér­tæk svör við spurn­ingum um við­skipti bank­ans við íslenska útgerð­ar­fé­lagið Samherja, líkt og áður hefur komið,  en bank­inn hefur ekki viljað svara spurn­ingum blaðs­ins. „Við áttum okkur á að þið viljið vita hvernig bank­inn hefur unnið með þetta mál en við höfum hrein­lega ekki leyfi til að fjalla um smá­at­riði í því,“ segir Even Westerveld í einni af synj­unum sínum þar sem hann seg­ist ekki geta svarað spurn­ingum um Sam­herj­a­málið í Namibíu. 

Hið sama á við um efn­is­legar spurn­ingar sam­starfs­að­ila Stund­ar­innar í umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin, frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik í Rík­is­sjón­varp­inu og norska rík­is­sjón­varpið NRK, líkt og kom fram í umfjöllun þess­ara miðla í gær.

Wikileaks hefur nú birt skjölin um starf­semi Samherja í DNB-bank­anum sem umfjall­arnir fjöl­miðl­anna byggja á og miðl­arnir hafa haft aðgang að í gegnum Wikileaks.

Sam­herj­a­málið er nú til rann­sóknar eða athug­unar í þremur löndum: Namibíu, Noregi og Íslandi. Í Noregi hefur efna­hags­brota­deildin Ökokrim haft málið til skoð­unar líkt og fram hefur komið. 

„Almennt séð er eng­inn kúnni miki­væg­ari en vinna bank­ans við að fram­fylgja lögum um reglum“

Reikningar Samherja í DNB

DNB-bank­inn er helsti við­skipta­banki Samherja, eins og Sam­herj­a­skjölin sýna, og eru helstu eign­ar­halds­fé­lög Samherja eins og Esja Seafood Limited og Esja Shipping Limited á Kýpur með banka­reikn­in­inga í DNB. Samherji hefur verið í við­skiptum við DNB frá árinu 2008.

Eins og fjallað hefur verið um sagði DNB upp við­skipta­sam­band­inu við félagið Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í maí í fyrra eftir að athug­anir bank­ans á fyr­ir­tæk­inu, og móð­ur­fé­lagi þess JPC Ship Mana­gement, sýndu fram á að bank­inn vissi ekki hver væru end­an­legur eig­andi þess­ara fyr­ir­tækja.

Slíkt þekk­ing­ar­leysi stríðir gegn svoköll­uðum KYC-reglum (e. Know your client) og stríða gegn lögum og reglum um aðgerðir fjár­mála­fyr­ir­tækja til að berj­ast gegn pen­inga­þvætti. Samherji hafði þá milli­fært 9,2 millj­arða króna til Cape Cod FS á tíma­bil­inu 2010 til 2018 þaðan sem pen­ing­arnir voru not­aðir til að greiða laun sjó­manna í Afríku. Í slíkum til­fellum, þar sem end­an­legur eig­andi félags­ins er ókunnur, skap­ast hætta á pen­inga­þvætti og grunur vaknar um að pen­inga­þvætti hafi mögu­lega átt sér stað ef við­skipta­sam­bandið hefur verið látið óátalið í lengri tíma. 

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn í máli Samherja í Namibíu, segir í við­tali við NRK, að Samherji hafi valið norska bank­ann út af því orð­spori sem fer af honum og vegna orð­spors Noregs almennt séð: „Þetta er góð leið til að þvætta pen­inga, pen­inga­straum­ur­inn kemur frá Namibíu og til fyr­ir­tækja á Kýpur sem eru með norska banka­reikn­inga. Þegar pen­ing­arnir eru komnir inn í norskan banka og norska hag­kerfið, þá vakna færri spurn­ingar þegar þeir eru fluttir fram og til baka vegna þess að Noregur er með gott orð­spor og telst vera öruggt og traust land. Þá spyrja menn færri spurn­inga í öðrum löndum um upp­runa fjár­magns­ins,“ segir Jóhannes í við­tal­inu við NRK. 

Vafa­samir fjár­magns­flutn­ingar í sjö árFélagið Cape Cod FS tók við rúm­lega 9 millj­örðum króna og greiddi laun starfs­manna Samherja í sjö ár án þess að DNB-bank­inn vissi hver ætti félagið. Kjerstin Braathen er for­stjóri DNB.

Af hverju var Samherji áfram viðskiptavinur DNB?

Ein af spurn­ing­unum sem vaknar í máinu er af hverju DNB gerði ekk­ert almennt séð í við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja þar sem fyrir liggur að bank­inn vissi að Samherji hefði notað reikn­inga Cape Cod FS, að fjár­mála­stjóri Samherja á Kanarí­eyjum, Brynjar Þórsson, var skráður sem „not­andi“ banka­reikn­inga Cape Cod hluta tíma­bils­ins og að það fjár­magn sem fór inn og út af reikn­ingum Samherja tengd­ist rekstri Samherja. DNB segir meira að segja í grein­ingu sinni á Cape Cod FS að félagið hafi verið „undir Samherja“ en að það sé það ekki lengur.

Út frá Sam­herj­a­skjöl­unum liggur líka fyrir að Samherji not­aði að minnsta kosti tvö af félög­unum sínum á Kýpur sem voru með banka­reikn­inga í DNB til að greiða mútur til fyr­ir­tækis James Hatuikulipi í Dubaí og eins til félags Tamson Hatukulipi í Namibíu.

Spurning Stund­ar­innar hljóð­aði svona: „ Ef bank­inn hélt, eða vissi, að Cape Cod FS hafði verið „undir Samherja“ af hverju gerði bank­inn ekk­ert í hinum banka­reikn­ing­unum og félögum Samherja sem voru með banka­reikn­inga hjá DNB, meðal ann­ars Esju Seafood sem borg­aði nokkrar millj­ónir doll­ara í mútur til félags í Dubaí? Var hugsun bank­ans að Samherji væri of stór og mik­il­vægur við­skipta­vinur til að bank­inn vildi segja upp við­skipta­sam­bandi við Samherja sem slíkt“.

Um þetta segir Westerveld: „Almennt séð er eng­inn kúnni mik­il­væg­ari en vinna bank­ans við að fram­fylgja lögum um reglum. Alveg óháð því hversu stór við­skipta­vin­ur­inn er þá á bank­inn að til­kynna grun um refsi­verða hátt­semi til lög­regl­unnar.“

Ein af spurn­ing­unum sem DNB neitar að svara er af hverju og út frá hvaða gögnum bank­inn hafi metið það sem svo að Cape Cod FS á Marshall-eyjum hafi verið undir Samherja. Spurn­ingin hljóð­aði svona: „Við hvað átti DNB, og hvaða sann­anir hafði bank­inn fyrir því, að félagið væri „ekki lengur undir Samherja“ í fyrra eins og það var orðað í gögnum bank­ans? Hvaða sann­anir hafði DNB fyrir því að Samherji hafii átt félagið, þetta stendur ekki í gögn­unum, var það mat bank­ans að þetta hafi verið svo?“

Engin sér­tæk svörUpp­lýs­inga­full­trúi DNB, Even Westerveld, hefur ekki veitt nein sér­tæk svör við spurn­ingum um Cape Cod FS og Samherja.

 „DNB hefur aldei fengið sekt frá banda­rískum stofn­unum vegna brotalama í reglu­verki sínu gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögn­unum hryðju­verka.“

DNB aldrei greitt sektir til bandarískra stofnana

Stundin spurði DNB líka af hverju bank­inn hefði ekki gert neitt í við­skipta­sam­bandi sínu við Cape Cod og JPC Ship Mana­gement sum­arið 2017 þegar KYC-athugun var gerð á félög­unum og nið­ur­staðan var sú sama að við­skipta­vin­irnir fælu í sér „mikla áhættu“.

Eins og segir í áhættu­grein­ingu bank­ans sem greint hefur verið frá : „JPC Ship Mana­gement (á Kýpur) Ltd. hefur verið við­skipta­vinur LCI, sem nú til­heyrir Ocean Industries Global Seafood Oslo. Félagið varð við­skipta­vinur í kjöl­far þess að sett voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008. Við­skipta­vin­ur­inn gekkst undir KYC-athugun (Know Your Client) árið 2017 og var nið­ur­staðan úr henni sú að honum fylgdi mikil áhætta vegna milli­færslna til Rúss­lands og Úkraínu en ekki var brugð­ist við því með nokkrum hætti. Mill­færslur við­skipta­vin­ar­ins til Rúss­lands og Úkraínu (greiðslur á launum) fela í sér mikla áhættu á pen­inga­þvætti og sekt­ar­greiðslur [e. High AML and sanction risk].“

DNB gerði ekk­ert í við­skipta­sam­band­inu fyrr en eftir að banda­ríski bank­inn Bank of New York Mellon stöðv­aði milli­færslu frá JPC Ship Manag­ment í mars 2018, eins og bank­inn hafi viljað þagga áhætt­una í við­skipta­sam­band­inu við þessi félög niður. Um þetta var ein spurn­ing til DNB: „Af hverju var ekk­ert gert í málum þess­ara félaga fyrr en eftir að Bank of New York Mellon hafði stöðvað milli­færslu frá öðru þeirra? Það kemur fram í gögn­unum að DNB hafi verið hrætt við bæt­urnar sem banda­ríska stofn­anir hefðu getað látið bank­ann greiða fyrir að hafa brotið gegn sínu eigin reglu­verki. Var þetta eina ástæðan að eitt­hvað var að end­ingu gert? Hversu oft hefur DNB þurft að greiða bætur vegna slæ­legra varna gegn vafasömum fjár­magns­flutn­ingum?“

Um þetta segir upp­lýs­inga­full­trú­inn Even Westerveld, en svarar hins vegar aðeins hluta spurn­ing­ar­innar: „DNB hefur aldei fengið sekt frá banda­rískum stofn­unum vegna brotalama í reglu­verki sínu gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögn­unum hryðju­verka.“

Banda­ríska stofn­unin sem um ræðir er SEC (The  Securities and Exchange Commission) en þessi stofnun hefur í gegnum tíð­ina lagt háar sektir á erlend fyr­ir­tæki sem stunda við­skipti í Banda­ríkj­unum og eða í Banda­ríkja­doll­urum vegna lög­brota þeirra erlendis, eins og til dæmis vegna pen­inga­þvætti eða mútu­brota. 

„Ef niðurstaðan verður að félag hafi notað bankakerfi DNB til að fremja glæpi þá mun það að sjálfsögðu hafa áhrif á viðskiptasamband þess við bankann.“

Verður Samherja bara sagt upp ef lögbrot sannast?

Annað sem Even Westerveld segir um Sam­herj­a­málið og rann­sókn­ina á því almennt séð er að það sé lög­reglan sem þurfi að rann­saka það og kom­ast að því hvað gerð­ist og hvað telj­ist mögu­legt lög­brot. „DNB rann­sakar þetta til að kom­ast að stað­reyndum. Svo er það lög­reglan sem verður að segja til um hvort þetta til­tekna félag hafi brotið lög eða ekki. Ef nið­ur­staðan verður að félag hafi notað banka­kerfi DNB til að fremja glæpi þá mun það að sjálf­sögðu hafa áhrif á við­skipta­sam­band þess við bank­ann.“

Eitt af því sem er áhuga­vert við þetta er að bank­inn virð­ist hafa, rétti­lega eða rang­lega og í góðri trú eða vondri, metið það sem svo að Cape Cod FS væri „ekki lengur undir Samherja“ og að íslenska útgerðin hafi því ekki lengur borið ábyrgð á félag­inu.

Eitt af því sem DNB bank­inn kann að vera að meina með þessum orðum er að Samherji hætti mestu að nota Cape Cod FS til að greiða út laun sjó­manna sinna í Namibíu árið 2016 þegar ný lög um tekju­skatt tóku gildi í land­inu, líkt og fjallað hefur verið um. 

Samkvæmt þessum lögum þurftu sjó­menn­irnir íslensku og frá Austur-Evrópu sem fengið höfðu launin sín óskatt­lögð útborguð í gegnum Cape Cod FS að greiða tekju­skatt af þeim í Namibíu. Margir millj­arðar króna höfðu hins vegar verið milli­færðir inn á félagið þann tíma sem það var sem mest virkt og greiddi út laun sjó­manna Samherja. Í gögnum DNB bank­ans frá stofnun banka­reik­inga Cape Cod FS árið 2010 kemur fram að til hafi staðið að milli­færa 100 millj­ónir króna á mán­uði inn á reikn­ing­ana og gekk þetta eftir nokkurn veg­inn næstu árin. Ef brot eins og pen­inga­þvætti hafa átt sér stað í rekstri Cape Cod FS þá áttu þau sér stað á meðan Samherji var að nota þetta félag sama þó DNB hafi metið það svo að félagið væri „ekki lengur undir Samherja“ þegar banka­reikn­ingum þess var lokað í fyrra. 

Út af óvissu um eign­ar­haldið á Cape Cod FS, og út af hættu á pen­inga­þvætti vegna þessa, lok­aði DNB reikn­ingum Cape Cod í fyrra. Í til­felli Cape Cod var þessi óvissa um eign­ar­hald Cape Cod FS, og mögu­leiki á pen­inga­þvætti og þá grunur um að pen­inga­þvætti hafi verið stundað innan félags­ins fram að því, nægj­an­legt skil­yrði til að loka reikn­ingum félags­ins.

Miðað við svör upp­lýs­inga­full­trúa DNB um við­skipta­sam­band Samherja við bank­ann þá er það hins vegar ein­göngu sönnun á lög­brotum Samherja  í gegnum DNB sem mun hafa áhrif á við­skipta­sam­band Samherja við DNB almennt séð. Miðað við orð Westerveld þá mun DNB ein­ungis segja upp við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja ef lög­brot sann­ast á félagið, grunur um slíkt og mögu­leiki á því virð­ist ekki vera nægj­an­legur.  Við­skipta­sam­bandi bank­ans við Cape Cod FS var hins vegar ekki sagt upp á grund­velli lög­brota heldur óvissu um eign­ar­hald og mögu­legra lög­brota líkt og gilti um við­skipta­sam­band Cape Cod FS við bank­ann.  

Á meðan þá getur Samherji haldið áfram að nota félögin sín á Kýpur og banka­reikn­ing­ana í DNB, meðal ann­ars Esju Seafood Limited sem greiddi hálfan millj­arð í mútur til skúffu­fé­lags Namib­íu­manns­ins James Hatukulipi í Dubaí og sem fjár­magn­aði Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum að stóru leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár