„Rannsóknarlögreglumaður“ Samherja leitaði allra leiða til að minnka skattgreiðslur í Namibíu

For­svars­menn Samherja í Namibíu, meðal ann­ars Jón Óttar Ólafsson „rann­sókn­ar­lög­reglu­maður“, leit­uðu allra leiða til að lækka skatt­greiðslur. Samherji þurfti að bregð­ast við nýjum lögum um tekju­skatt í Namibíu en sjó­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfðu þá lent í vand­ræðum gagn­vart skatt­inum vegna þess að launin voru greidd út ósköttuð í gegnum skatta­skjól.

Gaf út glæpasögu
Gaf út glæpa­sögu Jón Óttar Ólafsson starf­aði hjá sér­stökum sak­sókn­ara og gaf út glæpa­sög­una Hlustað árið 2013 áður en hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu. Mynd: Pjetur / Fréttablaðið

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi starfs­maður sér­staks sak­sókn­ara, var að sögn Samherja sendur til Namibíu sem „rann­sókn­ar­lög­reglu­maður“ til að rann­saka störf Jóhann­esar Stef­áns­sonar hjá útgerð Samherja í land­inu. Samherji sagði í frétta­til­kynn­ingu í síð­ustu viku, í aðdrag­anda birt­ingar upp­ýs­inga úr Sam­herj­a­skjöl­unum hjá Wikileaks, Kveik, Stund­inni og Al Jazeera, að útgerð­ar­fyr­ir­tækið hefði grunað Jóhannes um græsku í starfi og að Jón Óttar hefði átt að gaum­gæfa þann grun.

Sam­herj­a­skjölin sýna hins vegar að starf Jóns Óttars sner­ist um annað og miklu meira meira en bara þetta. 

Í gögn­unum er að finna fjöl­marga tölvu­pósta frá Jóni Óttari þar sem hann ræðir um rekstur útgerðar Samherja í land­inu, meðal ann­ars skatt­greiðslur og hvernig hægt sé að lág­marka þær eins mikið og mögu­legt er.

Tekið skal fram að ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár