Karolina Fund: Hljóðtækni á vígvöllum heimsstyrjaldarinnar síðari

Hvað ger­ist þegar Svein­björn Bjarki Jónsson, úr hljóm­sveitum eins og Mind in Motion og Scope, og Pres­ident Bongo úr GusGus leiða saman hesta sína? Sonic Deception (Radio Bongo) ger­ist.

Snemma á síð­asta ári leiddu þeir Svein­björn Bjarki Jónsson og Stephan Steph­en­sen saman hesta sína eftir að hafa skipst á hug­myndum um nokkurn tíma.

Stephan, sem er auð­vitað vel þekktur frá sínum dögum með Gus Gus, Gluteus Maximus og nú nýlega sem Pres­ident Bongo, heyrði af verk­efni sem Svein­björn Bjarki hafði byrjað á en ekki klárað og lang­aði að heyra meira.

Svein­björn Bjarki hafði verið að búa til tón­list frá unga aldri og var m.a. með­limur hljóm­sveita á borð við Mind in Motion og Scope, áður en hann fór að starfa með tón­list­ar­fólki eins og Móu, Bang Gang, Bell­at­rix, Silvíu Nótt, NLO, Páli Óskari og Togga. Eftir að hafa rætt saman um þemað í þessu til­tekna verk­efni, ákváðu þeir að reyna að koma því út. Með hjálp Karolina Fund er gam­all draumur að ræt­ast, fyrsta sóló­platan.

Kjarninn hitti Svein­björn Bjarka Jónsson og tók hann tali.

Er þetta í fyrsta skipti sem þið tveir vinnið að verki saman?

„Þrátt fyrir að hafa verið mikið í kringum GusGus frá því að fjöl­lista­hóp­ur­inn var stofn­aður og þekkt nán­ast alla með­limi, hafa vegir okkar Stephan ekki legið saman fyrr en nú nýlega.

Við deildum aðstöðu fyrir hljóð­verin okkar í nokkra mán­uði og sam­gang­ur­inn varð alltaf meiri og meiri, þangað til það kom að því að Stephan flutti til Berlínar.Áður en það gerð­ist var búið að ákveða þemað fyrir verk­efnið og leggja nokkurn lín­urnar fyrir útgáf­una sem átti í fyrstu aðeins að vera 2-3 lög.

[adspot]

Stuttu seinna voru 4 lög til­búin og 2 ný bætt­ust fljót­lega við. Ég sakn­aði bassatromm­unnar sem ég heyrði alltaf milli her­bergj­anna okkar svo mikið að ég yfir­gaf hús­næðið og koma mér upp aðstöðu heima. Fyrir mig var það algjör himna­send­ing að fá að vinna með Stephan í þessu verk­efni mínu, þar sem drif­kraft­ur­inn og trúin á verk­efnið er slíkur hjá honum að ég gat ekki hætt.

Við völdum svo að fara leið hóp­fjár­mögn­unar til að fjár­magna verk­efnið og eftir að hafa kynnt það fyrir Karolina Fund var ekki aftur snúið. Síðustu ár hafa vínyl plötur verið að koma sterkar inn aftur, sem er mjög skemmti­legt format. Það er líka format sem við þekkjum báðir vel og kunnum vel við."

Hvað hafið þið verið að fást við í list­inni und­an­farið?

„Stephan hefur á und­an­förnum mán­uðum verið að fylgja eftir útgáfu Ser­en­geti sem Pres­ident Bongo og DJ út um allan heim. Hann er svo alltaf með fjöl­mörg járn í eld­inum, sem ég veit ekki hvort ég megi segja frá hér.

Ég hef verið frekar upp­tekin í þessu verk­efni, en þó alltaf eitt­hvað að vinna með Togga. En við erum að vinna í nokkrum nýjum lögum núna og von­andi útgáfu seinna á árinu.

Nýlega var svo gamla hljóm­sveitin Mind in Motion kölluð á svið á Sónar og spil­aði þar lög sem hafa legið í dvala síðan 1992. Kannski kemur Scope saman næst, hver veit."

Þið talið um að hug­myndin teng­ist notkun hljóð­tækni á víg­völlum heims­styrj­ald­ar­innar síð­ari, hvernig kemur það saman?

„Ég hafði verið með þessa hug­mynd í koll­inum nokkur ár í raun og veru áður en Stephan tók að sér að stýra skútnni í höfn.

Þemað í verk­efn­inu var mér nátt­úr­legt ef hægt er að orða það þannig, þar sem ég hef mikin áhuga á sögu og þá ekki síst stríðs­sögu og mínar upp­á­halds myndir ger­ast í kringum seinni heims­styrj­öld og það þarf að vera snjór helst.

Í leit minni að áhuga­verðum heim­ild­ar­myndum um WW2 fann ég áhuga­verða lýs­ingu á við­fangs­efni sem heill­aði mig. Notkun á hljóði í hern­aði.

Bretar höfðu sett á lagg­irnar heila her­deild af lista­mönnum og tækni­mönnum sem áttu að finna leiðir til að blekkja and­stæð­inga sína í stríð­inu.

Fyrst voru það upp­blástnu skrið­drek­arnir og flug­vél­arnar, en svo kom það sem heill­aði mig helst. Upptökur af stríðstækjum, öskrum og spreng­ingum voru settar á stál­þræði sem síðan voru spil­aðir út á víg­vell­ina í gegnum risa stór hljóð­kerfi.

Þetta fannst mér magnað. Tæknin sem þetta fólk hafði yfir að ráða var frum­stæð miðað við það sem við höfum í dag. En ég átti í engum vand­ræðum með að finna inn­blástur þarna.

Platan inni­heldur samt ekki spreng­ingar og öskur (það er búið að gera þannig plötur), heldur er inn­blásin af verkum þessa lista- og tækni­fólks."

Aðeins verða fram­leidd 300 ein­tök af þessum víny, en hægt er tryggja sér ein­tak af plöt­unni í for­sölu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár