Karolina Fund: Reykjavíkurdæturnar sem urðu til af hreinni tilviljun

Reykja­vík­ur­dætur hafa nú hafið söfnun fyrir sína fyrstu plötu en sveitin hefur starfað frá árinu 2014. Reykja­vík­ur­dætur er 17 kvenna hópur af röpp­urum sem hafa vakið athygli hér­lendis sem og erlendis fyrir djarfan flutn­ing, tón­list og texta­gerð. Reykja­vík­ur­dætur hafa á ferli sínum meðal ann­ars samið þema­lag Druslu­göng­unnar, opnað ára­mótaskaupið, samið lag fyrir Land­vernd og Dag rauða nefs­ins. Ásamt því hafa kon­urnar opnað Nordisk Panorama Film Festival í Malmö, spilað ásamt Dream Wife út um alla London og eru á leið­inni á sinn fyrsta Evr­óputúr í sumar þar sem þær spila meðal ann­ars á Hróa­skeldu. Kjarninn ræddi við tvær Reykja­vík­ur­dætur, Öldu Karen Hjalta­lín og Sölku Vals­dóttur, um plöt­una.

Hverjar eru Reykja­vík­ur­dætur og hvað kom til að þið stofn­uðuð þessa hljóm­sveit?

„Reykja­vík­ur­dætur komu til í kjöl­farið á Rapp­konu­kvöldum sem nokkrar okkar innan hóps­ins voru að skipu­leggja eitt sum­arið. Við héldum fyrsta rapp­konu­kvöldið í júlí 2013 við mjög góðar und­ir­tektir. Við héldum síðan tvö sam­bæri­leg kvöld í við­bót og fyrir það þriðja ákváðum við að gera lag til að aug­lýsa það betur og úr varð lagið ‘Reykja­vík­ur­dætur’. Lagið og við sjálfar fengum gríð­ar­lega athygli og það má eig­in­lega segja að út frá því stofn­uðum við Reykja­vík­ur­dætur hóp­inn sem íslend­ingar þekkja í dag. Það má því segja að hljóm­sveitin hafi orðið til af ein­skærri til­viljun þar sem konur úr mjög ólíkum áttum deildu sam­eig­in­legu áhuga­máli. “

[adspot]

Hvaðan sæk­iði inn­blást­ur­inn?

„Við höfum gefið út fjöld­ann allan af lögum eins og sést á spil­un­ar­list­anum inná söfn­un­ar­síð­unni okkar á Karolina fund. Við höfum bæði gefið út hóplög fyrir Reykja­vík­ur­dætur en einnig líka lög eftir smærri ein­ingar innan hóps­ins allt frá sóló lögum í ann­að­hvort dúó eða tríó hópa (t.d. Cyper, Hljóm­sveitt og Þrjár Basískar). Á plöt­unni verður nýtt efni sem við erum að vinna í akkúrat núna, þar af fyrsta enska lagið okkar. En auð­vitað verður eitt­hvað af útgefnu efni líka á plöt­unni. Tón­listin verður jafn fjöl­breytt og með­lim­irnir eru margir þar sem hver og eitt lag hefur ólíka sögu og ólíka konu á bak­við sig.“

Hvernig tón­list kemur til með að vera á plöt­unni?

„Það mætti næstum segja að platan verði eins og safn­plata þar sem inn­blást­ur­inn kemur víða að og efnið á plöt­unni verður það sem við sam­mæl­umst um hvað við erum stoltastar af sem Reykja­vík­ur­dætur.“

Eru ein­hver skila­boð sem þið viljið koma á fram­færi í þessu fyrsta albúmi ykkar?

„Platan mun ekki hafa neinn einn ákveðin boð­skap yfir­vof­andi enda er það ómögu­legt fyrir okkur þar sem við erum stór hópur fullur af ólíkum per­sónum. Það er í höndum hlust­and­ans að velta fyrir sér texta og tón­smíð og von­andi hefur með þeirri aðferð platan áhrif á sem flesta.

Því mælum við með að þið tryggið ykkur ein­tak og túlkið boð­skap­inn hver fyrir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár