Sæstrengur milli Íslands og Bretlands?

David Cameron og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddu sæstrengsmálin þegar sá fyrrnefndi kom í heimsókn á dögunum.
David Cameron og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ræddu sæstrengs­málin þegar sá fyrr­nefndi kom í heim­sókn á dög­unum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það stytt­ist í að vinnu­hópur skip­aður af Sigmundi Davíði Gunn­laugs­syni og David Cameron skili nið­ur­stöðu varð­andi hugs­an­legt verð og magn á orku sem myndi vera flutt í gegnum sæstreng frá Íslandi til Bret­lands. Því er ekki úr vegi að velta fyrir sér kostum og göllum þess­arar fram­kvæmdar.

Í októ­ber síð­ast­liðnum birt­ist í breskum blöðum grein undir fyr­i­s­ögn­inni „Icelandic volcanoes could power British homes“ eða „Íslensk eld­fjöll gætu gefið breskum heim­ilum raf­magn“. Greinin birt­ist í kjöl­far fundar David Camerons og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar fyrir ráð­stefn­una Northern Future Forum sem haldin var á Íslandi í byrjun októ­ber 2015. Eftir fund­inn var skip­aður vinnu­hópur til að finna út verð og magn á raf­orku sem gæti verið seld í gegnum sæstreng. Búast má við nið­ur­stöðum frá vinnu­hópnum nú í mars. Sig­mundur Davíð setti þann fyr­ir­vara á hugs­an­leg við­skipti, að ef sam­komu­lag næð­ist mætti raf­magns­salan ekki hafa áhrif á raf­orku­verð til almenn­ings. Viðræður um sæstreng milli land­anna tveggja hafa verið í gangi síðan 2012. Bretar hafa sýnt því mik­inn áhuga að fá að tengj­ast Íslandi og geta þannig hækkað hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í orku­bú­skap sínum. Nú í jan­úar hitti Ólafur Ragnar Grímsson full­trúar Atlantic Superconnection Corporation til að ræða um sæstreng milli Íslands og Bret­lands.

Græn orka á bresk heimili

Evr­ópu­sam­bandið setti sér metn­að­ar­full mark­mið í orku­málum árið 2007. Mark­miðið felur í sér að auka hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í álf­unni upp í 20% fyrir árið 2020. Mark­miðið hefur gert það hag­stæð­ara að selja end­ur­nýj­an­lega orku á milli landa. Mörg ríki hafa náð mark­mið­inu en nokkur ríki eru enn í erf­ið­leikum. Bretland þeirra á meðal. Bretar hafa því hafið við­ræður við Norðmenn og Íslend­inga um kaup á end­ur­nýj­an­legri raf­orku til að ná mark­mið­inu sem þeir settu sér um að vera með 15% end­ur­nýj­an­lega orku í orku­kerfum sínum fyrir árið 2020.

Norðmenn hafa þegar tengst Hollandi og Danmörku í gegnum sæstrengi. Þessi við­skipti eru Norð­mönnum arð­bær og þeir hafa hafið við­ræður við Þýska­land og Bretland um sæstrengi til beggja land­anna. Líklegt má telja að sæstrengur milli Noregs og Bret­lands verði lagður; hann yrðium 730 km langur og kæm­ist í heims­meta­bækur sem lengsti sæstrengur í heimi. Sæstrengur milli Íslands og Bret­lands yrði tölu­vert lengri, eða um 1200 km.

Jákvæð reynsla Norð­manna af þessum við­skiptum virð­ist vera hvatn­ing fyrir íslensk orku­fyr­ir­tæki, eins og Lands­virkjun, að leggj­ast í svip­aðar aðgerðir á Íslandi. Norðmenn hafa fengið tekjur í rík­is­kass­ann, orku­fyr­ir­tækin högn­uð­ust og skatt­byrði á almenn­ingi minnk­aði. Vonin er að hið sama ger­ist á Íslandi.

Svarar ekki nema litlum hluta af raforkuþörf Breta

Með því að tengj­ast Íslandi um raf­orku­streng kom­ast Bretar skrefi nær því að ná mark­miði sínu. Eins og Íslend­ingar myndi þeir þó þurfa að leggj­ast í tölu­verðar fjár­fest­ingar fyrir streng­inn. Til dæmis er gert ráð fyrir að það þurfi að efla raf­orku­kerfið í Bretland enn frekar til að koma raf­orkunni til skila.

Sæstrengur frá Íslandi gæti aðeins upp­fyllt lít­inn hluta af raf­orku­þörf Breta. Atvinnu­vega­ráðu­neytið fékk Environice, fyr­ir­tæki sem veitir ráð­gjöf um umhverf­is­mál og sjálf­bæra þróun, til að gera greina­gerð um um umhverf­is­mál tengd sæstrengnum. Í greina­gerð­inni segir að sú raf­orka sem hægt væri að flytja gegnum sæstreng­inn myndi í mesta lagi upp­fylla um 10% af heild­ar­raf­magns­þörf Breta og það sé rausns­ar­lega áætlað.

Hagstætt að selja græna orku

Sæstrengur hefur verið til umræðu í meira en hálfa öld. Það hefur hins vegar ekki verið tækni­lega mögu­legt eða arð­bært að leggj­ast í svona stóra fram­kvæmd fyrr en nýlega. Lands­virkjun hefur hvatt mjög til þess að sæstrengur verði lagður milli Bret­lands og Íslands. Fyr­ir­tækið sér hag sinn í því að geta selt umframorku úr íslenska orku­kerf­inu til ann­arra landa á betra verði. Einnig myndi opn­ast á mög­leik­ann á upp­bygg­ingu vind­orku­vera. Landsnet sér hag í sæstreng líka, þar sem auð­veld­ara yrði að fjár­magna end­ur­bætur á raf­orku­flutn­ings­kerf­inu inn­an­lands. Tillögur að því hafa legið fyrir í nokkurn tíma.

Árið 2013, þegar við­ræður voru komnar í gang um sæstreng milli Íslands og Bret­lands, sagði Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, að Bretar væru til­búnir að borga vel fyrir græna orku. Samkvæmt skýrslu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, unn­inni af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands, kemur fram að hugs­an­legt raf­orku­verð í Breta­landi árið 2030 yrði 94-130 evrur fyrir MWst. Sem er tölu­vert hærra en fæst fyrir raf­ork­una inn­an­lands.

Verði af sæstreng er áætlað að hann geti flutt700-900 MW til Bret­lands. Til sam­an­burðar fram­leiðir Kára­hnjúka­virkjun 690 MW. Lands­virkjun gerir ráð fyrir að þurfa að virkja eitt­hvað til að koma til móts við meiri orku­þörf.

Sterkara flutningskerfi og bættur þjóðhagur

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands segir í skýrslu til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins að sæstrengur myndi hafa veru­leg áhrif á efna­hags­kerfi lands­ins. Meðal ann­ars yrði tíma­bundið meiri atvinna í boði á meðan á upp­setn­ingu stendur. Eftir fram­kvæmdir myndi þurfa mann­afla til að við­halda nýjum raf­línum og starfs­fólk við umbreyti­stöð. Fram­kvæmdir sem þyrfti að leggj­ast í eru virkj­anir, lagn­ing nýs raf­orku­flutn­ings­kerfis og fram­kvæmdir við umbreyti­stöð þar sem streng­ur­inn kæmi á land.

Þrátt fyrir að nokkur óvissa ríki um orku­verð í fram­tíð­inni lítur út fyrir að verð á end­ur­nýj­an­legri orku muni hækka. Miklu betra verð feng­ist fyrir raf­orku sem seld yrði úr landi en fyrir raf­orku sem seld er í t.d. stór­iðju. Ísland gæti selt umframorku úr orku­kerf­inu á mjög hag­stæðu verði.

Raf­magns­flutn­ings­kerfið þarf að end­ur­bæta, sama hvar streng­ur­inn kæmi á land. Meira þyrfti að bæta flutn­ings­kerfið ef streng­ur­inn kæmi á land á Aust­fjörðum en minna ef hann kæmi á land á Suð­ur­land­inu. Raf­magns­flut­ings­kerfið inn­an­lands myndi því verða miklu örugg­ara og áreið­an­legra fyrir almenn­ing.

Síðustu ár hefur Landsnet bent á að það þurfi að efla raf­orku­flutn­ings­kerfið hvort sem verður af sæstreng eða ekki. Þannig væri hægt að slá tvær flugur í einu, efla raf­orku­kerfið og að lokum fá arð í gegnum sæstreng­inn þegar hann kæm­ist í notkun. Núver­andi flutn­ings­kerfi stenst ekki mesta álag ef kæmi til nátt­úru­ham­fara eins og flóða á Suð­ur­landi er hætta á að það stæð­ist ekki álagið og það myndi hafa stór­vægi­legar afleið­ingar fyrir almenn­ing og stór­iðjur.

Einnig segir í skýrsl­unni „á móti kemur að ef t.d. hluti af ábat­anum af sölu raf­orku um sæstreng­inn verður not­aður til rann­sóknar og þró­unar í raf­orku­fram­leiðslu gæti það leitt til auk­ins fram­boðs á raf­orku í fram­tíð­inni og þar af leið­andi leitt til minni hækk­unar á raf­orku­verði inn­an­lands“. Jón Steins­son hag­fræð­ingur bendir á í grein í Frétta­blað­inu 14. nóv­em­ber 2014 að með sæstreng væri hægt að flytja inn ódýra orku til Íslands. „Rafmagn fæst nán­ast ókeypis að nóttu til í Bret­landi. Ástæða þessa er að það svarar ekki kostn­aði að slökkva á kjarn­orku­verum og kola­orku­verum á nótt­unni og vind­orku­ver fram­leiða raf­magn jafnt að nóttu sem á degi. Þar sem eft­ir­spurn er minni en fram­boð á nótt­unni fellur verðið á raf­magni niður undir núll (og stundum niður fyrir núll).“

Óvissa um verð á raforku

Sam­an­burður við Norðmenn í orku­sölu um sæstreng hefur verið gagn­rýndur þar sem raf­orku­kerfi þeirra er mjög frá­brugðið íslenska raf­orku­kerf­inu. Ávinn­ingur Íslend­inga þyrfti ekki að vera jafn mik­ill og hjá Norð­mönnum. Sem dæmi um auk­inn ávinn­ing þeirra er að Norðmenn eiga streng­inn sjálfir í félagi við mót­töku­landið. Svo verður ekki raunin um íslenska streng­inn, ef svo fer sem horfir í yfir­stand­and­andi við­ræðum. Hann yrði alfarið í eigu erlendra aðila og Ísland þyrfti að borga leigu fyrir afnot á honum.

Aukinn þrýst­ingur í hag­kerf­inu vegna lána fyrir fram­kvæmdum myndi auka líkur á verð­bólgu og vaxta­hækk­unum. Jákvæð áhrif eru háð því hve mikið vextir muni hækka; ef þeir hækka mjög mikið gæti það leitt til þess að smærri fyr­ir­tæki veigri sér við að taka lán. Þannig gæti smærri fjár­fest­ingum fækkað á meðan verið er að leggja streng­inn og end­ur­bæta raf­orku­flutn­ings­kerfið. Það er ekki þjóð­hags­lega arð­bært til skamms tíma litið.

Fjár­fest­ing í sæstreng getur skilað þjóð­hags­legum arði ef það væri öruggt að arð­ur­inn kæm­ist alla leið inn í hag­kerfið. Samkvæmt skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands er það hins vegar ekki öruggt, þar sem það mun þurfa að við­halda strengnum og öllum kerfum í kringum hann eftir að hann er kom­inn í notkun. Þar að auki hafa Bretar enn ekki sett lög um sína orku­stefnu og því er mikil óvissa um hugs­an­legt verð fyrir raf­ork­una frá Íslandi.

Sig­mundur Davíð sagði á fundi sínum með David Cameron að „for­senda fyrir mögu­legri lagn­ingu sæstrengs í fram­tíð­inni væri að raf­orku­verð til heim­ila og fyr­ir­tækja á Íslandi hækki ekki“. Í mati frá Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands er bent á að flutn­ings­geta strengs­ins er meiri en gert er ráð fyrir að verði fram­leitt af raf­orku á Íslandi. Flutn­ings­getan er um 6-8 TW en gert er ráð fyrir að fram­leiða um 5 TW með full­nýt­ingu núver­andi virkj­ana, nýrra vind­orku­vera og nýrra jarð­varma virkj­ana. „Þess vegna er lík­legt að verð á raf­orku muni hækka inn­an­lands þar sem inn­lendir raf­orku­fram­leið­endur geta valið að nýta umframs­flutn­ings­getu strengs­ins og dregið með því úr fram­boði á raf­magni inn­an­lands,“ segir í skýrsl­unni. Til sam­an­burðar fram­leiðir Lands­virkjun um 13 TW af orku árlega. 80% af þeirri raf­orku er selt til stór­iðju. Einnig myndi hátt raf­orku­verð erlendis hafa áhrif á raf­orku­verð á Íslandi. Það er því lík­legt að raf­orku­verð muni hækka, en hve mikið það mun hækka er óvíst.

Hversu mikið þarf að virkja?

Gert er ráð fyrir að reistar verði virkj­anir upp á 3 TWst og svo verður umframafl úr núver­andi virkj­unum upp á 2 TWst nýtt. Flutn­ings­geta um streng­inn er hins vegar áætluð um 6-8 TWst. Í skýrsl­unni, sem er frá 2013, segir einnig að Alþingi hafi þegar tekið frá virkj­ana­kosti sem sam­svara 9 TW.

Umræðan í þjóð­fé­lag­inu hefur ein­kenn­ist af áhyggjum um hve mikið þyrfti að virkja til að geta svarað þess­ari orku­þörf. Sveinn Valfells, eðl­is­fræð­ingur og hag­fræð­ingur, skrif­aði grein á mbl.is þar sem hann hélt því fram að það myndi jafn­vel þurfa að virkja því sem nemur tveimur Kára­hnjúka­virkj­unum til að ná þessu mark­miði.

Ketill Sig­ur­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Askja Energy Partners svar­aði grein­inni. Hann segir að ekki verði nauð­syn­legt að virkja svo mikið, en virkja verði engu að síður. Skýrara svar barst frá Óla Grétari Blöndal Sveins­syni, fram­kvæmda­stjóra þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­unar, í aðsendum pistli á Vísir.is. Hann segir að nóg verði að virkja með nýjum vatns­afls­virkj­unum upp á 1,5 TWst. 1,5 TWst kæmu úr nýjum orku­gjöfum svo sem vind­orku eða jarð­varma og 2 TWst segir hann nú þegar til í íslenska orku­kerf­inu í formi fram­hjá­rennslis í vatns­afls­virkj­unum sem nú eru starf­ræktar. Sú raf­orka sé ónotuð vegna ein­angr­unar íslenska raf­orku­kerf­is­ins. Óli Grétar bendir á að Norðmenn hafi ekki þurft að fara í stórar virkj­un­ar­fram­kvæmdir til að reka sína sæstrengi.

Þor­steinn Þor­steins­son, rekstr­ar­hag­fræð­ingur, gagn­rýndi sam­an­burð­inn við Norðmenn. „Auðvitað hafa Norðmenn ekki þurft að leggja út í nýjar virkj­ana­fram­kvæmdir vegna raf­orku­sæ­strengja. Í fyrsta lagi er norska raf­orku­kerfið átta sinnum stærra en það íslenska og orku­bú­skapur Norð­manna er byggður upp í kringum allt aðra álags­punkta,“ segir Þor­steinn í aðsendri grein á vísir.is.

Allir greina­höf­und­arnir eiga það þó sam­eig­in­legt að nefna sölu á raf­orku til stór­iðju­fyr­ir­tækja sem slæma nýt­ingu. Mikið hag­stæð­ara væri að selja raf­ork­una úr landi fremur en á afslætti til stór­iðju­fyr­ir­tækja. „Áhuga­vert væri að skoða hvernig þessi fram­kvæmd kemur út í sam­an­burði við aðra mögu­leika, svo sem auknar fjár­fest­ingar í orku­frekum iðn­aði hér á landi,“ segir í skýrslu atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Óvissa um hve mikið á að virkja

Atvinnu­vega­ráðu­neytið fékk Environice til að gera greina­gerð um umhverf­is­þætt­ina. Þar kemur fram að lagn­ing sæstrengs­ins geti skapað þrýst­ing á virkj­un­ar­fram­kvæmdir á Íslandi til að svara orku­þörf­inni. Líkur séu á hrað­ari upp­bygg­ingu virkj­ana, langt umfram eft­ir­spurn raf­orku inn­an­lands, segir í greina­gerð­inni. Einnig er nefnd óvissa um orku­magn sem yrði flutt í gegnum streng­inn, sem yrði sá lengsti í heim­inum. Orkutap gæti orðið meira en búist er við. Komi til þess gæti það aukið enn fremur þrýst­ing til virkj­ana.

Mikið rask yrði á nátt­úru lands­ins við fram­kvæmdir. Það þyrfti að virkja því sem nemur 1,5 TW sam­kvæmt áætl­unum ásamt því að setja upp vind­orku­ver, nýjar flutn­ings­línur á mið­há­lend­inu og vatns­afls­virkj­anir. Hags­muna­sam­tökin Gætum garðs­ins leggja til að mið­há­lendið verði gert að þjóð­garði og að allar áætl­anir um virkj­anir verið lagðar niður því ferða­menn sæki til Íslands til að skoða ósnortna nátt­úru lands­ins. Samtökin héldu blaða­manna­fund, með Andra Snæ Magnason, rit­höf­undur, og Björk Guð­munds­dóttur, söng­kona, í far­ar­broddi þegar Iceland Airwaves tón­list­ar­há­tíðin stóð yfir í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þau líktu áætl­unum um sæstreng við trú á álfa og tröll. Íslensk nátt­úra er að þeirra mati of verð­mæt til að fórna henni í virkj­anir til raf­magns­fram­leiðslu sem yrði að auki seld úr landi. Samkvæmt könnun sem Gallup gerði vorið 2015 kom fram að stór hluti þjóð­ar­innar, eða rúm­lega 60%, er á móti frek­ari virkj­ana­fram­kvæmdum á mið­há­lend­inu.

Hagur heimsins að minnka útblástur koltvísýrings

Ef litið er á heild­ar­mynd­ina þá vilja Bretar auka hlut­fall af end­ur­nýj­an­legri orku í raf­orku­kerfi sínu og minnka þannig streymi af kol­vetni út í and­rúms­loftið. „Ein af ástæðum þess að hag­kvæmt kann að þykja að leggja raf­streng milli Íslands og Bret­lands er að fram­kvæmdin getur dregið úr þörf fyrir óend­ur­nýj­an­lega orku­gjafa í Bret­landi og þannig stuðlað að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda þar­lendis,“ segir í greina­gerð­inni. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, sagði eftir loft­lags­ráð­stefn­una í París að Ísland gæti barist gegn lofts­lags­breyt­ingum með því selja græna orku til Evrópu. Ísland geti orðið grænt batt­erí fyrir Evrópu.

Í greina­gerð Environice segir að það að fá end­ur­nýj­an­lega orku í gegnum sæstreng, hvort sem það er frá Íslandi eða Noregi, geti heft nýsköpun Breta í þróun á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.

Þá megi einnig velta fyrir sér hvort umhverf­is­á­hrifin sem sæstrengur myndi hafa í för með sér svar­aði kostn­aði. Ísland getur með þessum sæstreng mest svarað um 10% af heild­ar­orku­þörf Breta.

Þarfnast frekari rannsóknar

Í öllum skýrslum á vef atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins, sem snúa að lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands, er bent á að það þurfi meiri og ýtar­legri rann­sóknir á fram­kvæmd­inni og hugs­an­legum áhrifum hennar. Svo virð­ist sem það hafi ekki enn verið gert. Enn er hægt að læra af því sem áður hefur verið gert í raf­orku­málum hér­lendis varð­andi upp­bygg­ingu orku­freks iðn­aðar.

Fundur Cameron og Sig­mundar Davíðs og skipun vinnu­hóps um hugs­an­legt verð og magn gefur vís­bend­ingar um að við­ræður séu mögu­lega komnar lengra en skýrslur atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins gefa til­efni til. Skýrslur um fram­kvæmd­ina benda allar á að það þurfi meiri rann­sóknir áður en ákvörðun verður tekin. Ljóst er að leggj­ast þyrfti í virkj­un­ar­að­gerðir á mið­há­lend­inu til að svara orku­þörf sæstrengs­ins. Meiri­hluti lands­manna er á móti þeim aðgerðum.

Ef til þess kæmi að stór­iðjur leggðu niður starf­semi sína, eins og hefur verið í umræð­unni varð­andi álverið í Straums­vík, myndi losna tölu­verð orka út í raf­magns­kerfið. Þá væri von til að ekki þyrfti að virkja eins og áætl­anir standa til. Hvar myndum við standa varð­andi sæstreng þá?

Höfundur er meist­ara­nemi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár