Ísland getur orðið grænt batterí fyrir Evrópu

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir Ísland eiga mögu­leika á því að aðstoða Evr­ópu­ríki við að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda með því að tengja raf­orku­kerfi Íslands við meg­in­landið með sæstreng. Hörður flutti erindi í bás Norð­ur­landa­ráðs á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París á þriðju­dag.

Spurður hvort Ísland geti leyst lofts­lags­vanda Evrópu: „Við getum svo sann­ar­lega ekki leyst lofts­lags­vanda Evrópu frekar en aðrir ein­stak­lingar en við getum haft mikil áhrif sem þjóð,“ svarar Hörður. „Það getur trú­lega engin önnur þjóð haft jafn mikil áhrif. Það teng­ist því að við höfum auð­lindir sem aðrar þjóðir hafa ekki.“

„Það er líka mik­il­vægt, með verk­efni eins og sæstreng, þá gætu áhrifin verið að við myndum leysa af hólmi kola­orku­ver í Bret­landi. Þá værum við að gera meira en að kolefn­is­jafna allan útblástur á Íslandi með þessu eina verk­efni,“ segir Hörður.

Norð­ur­löndin hafa átt í sam­starfi með raf­orku í 100 ár því árið 1915 var fyrsti raf­orku­streng­ur­inn lagður milli Sví­þjóðar og Dan­merkur. Í dag er þetta sam­starf Norð­ur­land­anna talið vera með því áhrifa­rík­asta í heim­inum.

„Það má segja að við getum gert þetta á tvennan hátt. Annars vegar með því að styðja við end­ur­nýj­an­lega orku­vinnslu í Evrópu, eins og til dæmis Norðmenn hafa gert hjá Dönum þar sem verið er að jafna það út þegar vind­ur­inn blæs ekki og sólin skín ekki. Við gætum gert það með Bretunum og leyst það vanda­málið við raf­orku; það er ekki hægt að geyma raf­orku. Á meðan vatns­orkan er full­komið batt­erí. Við gætum því orðið, eins og Norðmenn hafa stundum sagt, grænt batt­erí og skapað mikil verð­mæti þannig og stutt vel við lofts­lags­málin.“

Hlusta má á sam­talið við Hörð í þætt­inum Þukl í Hlað­varpi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár