Sæstrengur frá Noregi til Bretlands - lengsti strengur í heimi

Sæstrengur verður lagður frá Kvilldal í Noregi, sem er í Roga­landi, og til Blyth í Bret­landi. National Grid í Bret­landi, sem er opin­bert fyr­ir­tæki um orku­mann­virki, og Statnett í Noregi, sam­bæri­legt fyr­ir­tæki þar í landi, hafa samið um sæstreng­inn sem verður 730 kíló­metra langur. Samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir í breska sendi­ráð­inu í Osló í gær.

Fyr­ir­tækin tvö hafa svipað verk­efni og Landsnet hefur hér á landi.

Sæstreng­ur­inn mun geta afka­stað 1.400 mega­vött af raf­magni og er stefnt að því að hann muni útvega 750 þús­und heim­ilum í Bret­landi vist­væna orku þegar hann er til­bú­inn. Heild­ar­kostn­aður er um tveir millj­arðar evra, eða um 300 millj­arðar króna, að því er fram kemur í The Guardian. Til sam­an­burðar þá er Kára­hnjúka­virkjun 690 mega­vött.

Streng­ur­inn verður lengsti neð­an­sjáv­ar­sæ­strengur í heim­inum, sem flytja mun raf­orku, og er ætlað að vinna að vist­vænu orku­kerfi fyrir Bretland til fram­tíðar litið.

Norðmenn hafa þegar hrint í fram­kvæmd metn­að­ar­fullum áformum um lagn­ingu sæstrengja til Evrópu, ekki síst vegna góðrar reynslu af strengnum sem lagður var milli Noregs og Hollands.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) hefur sett fram til­mæli til aðild­ar­ríkja sam­bands­ins þess efnis að þau efli sam­teng­inar flutn­ings­kerfa raf­orku, m.a. með auk­inni upp­bygg­ingu sæstrengja. Árið 2020 er hverju aðild­ar­ríki ætlað að búa að flutn­ings­getu til ann­arra ríkja á sem svarar a.m.k. tíu pró­sent allrar raf­orku sem fram­leidd er í land­inu. Þessari stefnu er m.a. ætlað að efla orku­ör­yggi og bæta nýt­ingu raf­orku­kerfa, og minnka þar með þörf­ina á að auka vinnslu­getu raf­orku með virkj­unum eða öðrum raf­orku­verum.

[caption id="attachment_24394" align="alignnone" width="639"] Hér má sjá hvernig streng­ur­inn mun liggja milli Noregs og Bret­lands. Mynd: Guardian.[/caption]

Tólf núver­andi aðild­ar­ríkja ESB upp­fylla ekki þessar kröfur í dag, m.a. Bretland og Írland. Ætla má að þessar kröfur, auk kröf­unnar um auk­inn hlut end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa og aukið orku­ör­yggi, skýri þann áhuga sem bresk stjórn­völd hafa sýnt á teng­ingu um sæstreng við önnur ríki, þar á meðal Noreg og Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár