Störfum fjölgað þar sem atvinnuleysið er minnst

Atvinnu­leysið á Norð­ur­landi vestra er minna en alls staðar ann­ars staðar á land­inu. Samt verður störfum þar fjölgað um 30 með sér­tækum aðgerðum.

Rík­is­stjórn Íslands ákvað fyrir helgi að „styrkja inn­viði, atvinnu­líf og sam­fé­lag á Norð­ur­landi vestra með marg­vís­legum aðgerðum,“ en áætlað er að aðgerð­irnar muni kosta 316 millj­ónir króna. Mark­miðið með aðgerð­unum er „að skapa þjóð­hags­legan ávinn­ing og aðstæður svo góðum fram­tíð­ar­störfum á svæð­inu fjölgi.“

Aðgerð­irnar sem rík­is­stjórnin sam­þykkti að farið verði í byggja allar á til­lögum lands­hluta­nefndar fyrir Norð­ur­land vestra, norð­vest­ur­nefnd­inni, sem skil­aði til­lögum til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í fyrra. Sig­mundur fagn­aði þess­ari ákvörðun fyrir helg­ina, sagði hana eðli­legt fram­hald af aðgerðum víða um land í þeim til­gangi að styrkja byggð í land­inu öllu.

Rík­is­stjórnin segir líka að Norð­ur­land vestra hafi ekki notið góðs af sér­tækum aðgerðum stjórn­valda á und­an­förnum árum, ólíkt Vest­fjörðum, Aust­ur­landi og Suð­ur­landi, auk þess sem fjórir íviln­un­ar­samn­ingar vegna nýfjár­fest­inga á Suð­ur­nesjum hafi verið gerðir. Sitt sýn­ist þó hverjum um þessa full­yrð­ingu, til dæmis hefur fram­kvæmda­stjóri Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða bent á að aðgerð­irnar á Vest­fjörðum hafi verið í vega­sam­göngum og ofan­flóða­vörnum, en ekki til að auka atvinnu­mögu­leika.

Atvinnuleysið minnst á Norðurlandi vestra

Til­gang­ur­inn með aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar er að snúa við nei­kvæðri byggða­þróun á svæð­inu og efla mann­líf. Íbúum þar hefur fækkað tals­vert og hag­vöxtur er minni en víða ann­ars staðar.

Samkvæmt til­lög­unum sem rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt er áætlað að til verði 30 ný störf á Norð­ur­landi vestra. Hvergi á land­inu er atvinnu­leysi minna en á Norð­ur­landi vestra. Samkvæmt nýj­ustu tölum frá Vinnu­mála­stofnun mæld­ist atvinnu­leysið þar 1,2 pró­sent í nóv­em­ber, á meðan atvinnu­leysi á lands­byggð­inni í heild er 2,4 pró­sent. Mest er atvinnu­leysið á Suð­ur­nesjum, 3,4 pró­sent.

Samkvæmt töl­unum frá Vinnu­mála­stofnun var með­al­fjöldi atvinnu­lausra á Norð­ur­landi vestra 41 ein­stak­lingur í nóv­em­ber, en í lok mán­að­ar­ins voru 55 ein­stak­lingar án vinnu á svæð­inu.

Af þessum 55 ein­stak­lingum voru lang­flestir, eða 32, í sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði. Átta voru atvinnu­lausir á Skaga­strönd og átta í Húna­þingi vestra. Þá voru fimm atvinnu­lausir á Blöndu­ósi og tveir í Húna­vatns­hreppi. Ef litið er til atvinnu­leysistalna eftir lands­hlutum á þessum tíma und­an­farin tíu ár hefur það alltaf mælst minnst eða næst­minnst á Norð­ur­landi vestra.

Fjórðungur í opinberri þjónustu

Í nýrri skýrslu sem gerð var fyrir Byggða­stofnun og kom út fyrr í þessum mán­uði kemur fram að á Norð­ur­landi vestra voru 26% fram­leiðsl­unnar í störfum í opin­berri þjón­ustu, eða rúmur fjórð­ungur. Hlut­fallið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er til sam­an­burðar 16%. Hvergi var hlut­fall opin­berrar þjón­ustu hærra en á Norð­ur­landi vestra árið 2013.

Í sömu skýrslu kemur fram að tveir lands­hlutar skeri sig úr þegar hag­vöxtur lands­hluta er skoð­aður, en það eru Norð­ur­land vestra og Vest­firðir. Á báðum stöðum var hag­vöxtur frá alda­mótum og til árs­ins 2013 undir tíu pró­sentum, en alls staðar ann­ars staðar var hann yfir 10 pró­sentum.

Þegar árin 2009 til 2013 eru skoðuð er hins vegar munur á þessum tveimur lands­hlutum, þar sem fram­leiðsla dróst einna mest saman þar, um 11%, á meðan vöxtur var á Norð­ur­landi vestra um 4%.

Fólks­fækkun hefur einnig verið í þessum tveimur lands­hlutum milli áranna 2000 og 2013 sam­kvæmt áður­nefndri skýrslu Byggða­stofn­unar, og einnig þegar mann­fjölda­tölur frá Hagstofu Íslands eru skoð­aðar fram til þessa árs. Hins vegar hefur íbúum á Vest­fjörðum fækkað meira heldur en íbúum á Norð­ur­landi vestra. Íbúar á Vest­fjörðum voru 6.497 tals­ins í upp­hafi þessa árs og hafði fækkað um 1.145 ein­stak­linga frá árinu 2000. Íbúar á Norð­ur­landi vestra voru hins vegar 6.723 og hafði fækkað um 735 á sama tíma­bili.

Af hverju þessi nefnd á sama tíma og sóknaráætlanir?

Nefndin var skipuð af for­sæt­is­ráð­herra í maí 2014, og í hana sett­ust Stefán Vagn Stef­áns­son, Héðinn Unn­steins­son, Sigríður Svav­ars­dóttir, Unnur Valborg Hilm­ars­dóttir og Val­garður Hilm­ars­son. Öll voru sveit­ar­stjórn­ar­fólk á svæð­inu nema Héðinn, sem kom inn sem starfs­maður ráðu­neyt­is­ins.

Tilvist og starf­semi norð­vest­ur­nefnd­ar­innar hefur verið gagn­rýnd, ekki síst fyrir það að hún er sér­tæk fyrir Norð­vest­ur­land og ekki sam­bæri­legar nefndir að störfum fyrir aðra lands­hluta. Þó kemur fram í skýrslu nefnd­ar­innar að skipan hennar sé fyrsta skrefið í átt til úttektar á svæðum sem hafi átt við meiri erf­ið­leika að etja en önnur svæði.

Hún starfar einnig á sama tíma og sókn­ar­á­ætl­anir fyrir alla lands­hluta eru í gildi. Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skrif­uðu undir slíkar sókn­ar­á­ætl­anir fyrir alla lands­hlut­ana í febr­úar á þessu ári.

Sókn­ar­á­ætl­an­irnar gilda fyrir árin 2015 til 2019, en sókn­ar­á­ætl­anir höfðu áður verið í gildi í þrjú ár, þ.e. frá því í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. Mark­miðið með sókn­ar­á­ætl­unum var að færa aukna ábyrgð á útdeil­ingu fjár­magns til lands­hluta­sam­taka sveit­ar­fé­laga og „ein­falda fram­lög til ein­stakra lands­hluta, gera þau gegn­særri og láta þau í auknum mæli taka mið af hlut­lægum mæli­kvörðum varð­andi stöðu svæð­is­ins.“ Mikið af því sem kemur fram í skýrslu norð­vest­ur­nefnd­ar­innar er byggt á vinnu sem þegar hafði verið unnin af Byggða­stofnun í tengslum við sókn­ar­á­ætl­anir lands­hluta.

Líka vilji fyrir álveri

Til­lög­urnar sem rík­is­stjórnin sam­þykkti að ráð­ast í á svæð­inu eru af ýmsum toga. Til dæmis á að búa til nýja starfs­stöð þýð­ing­ar­mið­stöðvar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á Sauð­ár­króki, auka umfangið á starfs­stöð Minja­stofn­unar Íslands á Sauð­ár­króki og koma á lagg­irnar mið­stöð fyrir frum­kvöðla í mat­væla­vinnslu. Þá á að efla starf­semi Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs, kanna hvort hægt sé að flytja eitt skip Land­helg­is­gæsl­unnar á Sauð­ár­krók og ráð­ast í ýmis við­halds­verk­efni.

Þá er einnig vilji til þess innan stjórn­ar­innar að álver rísi í lands­hlut­anum. Sig­mundur Davíð var við­staddur und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ingar um fjár­mögnun slíks álvers í sumar, en hún fór fram í ráð­herra­bú­staðnum. Klappir Develop­ment vilja reisa 120 þús­und tonna álver við Haf­ur­staði í Skaga­byggð, og China Nonferrous Metal Industry's Foreign Engineering and Construction (NFC) rit­aði undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um að fjár­magna bygg­ing­una. Áætlanir þeirra gera ráð fyrir 240 var­an­legum störfum í álver­inu og allt að 800 tíma­bundnum við bygg­ing­una. Það er hins vegar ljóst að orka liggur ekki á lausu fyrir slíkt verk­efni auk þess sem álverð og staðan á þessum mörk­uðum almennt er langt frá því að vera hag­stæð.

Engu að síður fengu Samtök sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­landi vestra 30 millj­ónir króna vegna upp­bygg­ingar iðn­að­ar­svæðis þar sam­kvæmt til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis, en sam­tökin höfðu óskað eftir 70 millj­ónum við fjár­laga­nefnd í haust.

Meiri miðstýring og óskýr aðferðafræði

Sá lands­hluti sem stendur verr en Norð­ur­land vestra þegar kemur að hag­vexti og fólks­fækkun er Vest­firðir. Þegar greint var frá nið­ur­stöðum norð­vest­ur­nefnd­ar­innar fyrir ári síðan vöktu þær ekki síst hörð við­brögð á Vest­fjörðum. Gísli Halldór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri á Ísafirði, kall­aði strax eftir því að sam­bæri­leg nefnd yrði sett á lagg­irnar fyrir efl­ingu á Vest­fjörðum. „Við sjáum að þessir lands­hlutar, Norð­vest­ur­land og Vest­firðir, eru bæði lands­hlutar sem hafa átt mjög í vök að verj­ast og það sem Vest­firðir hafa svo umfram eru mjög erf­iðar sam­göngur, þannig að það er svona eins og að byrja næst neðst að byrja á Norð­vest­ur­landi.“ Frið­björg Matth­í­as­dóttir, for­maður Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða og for­seti bæj­ar­stjórnar í Vest­ur­byggð, furð­aði sig einnig á til­lög­unum og hafði áhyggjur af aðferða­fræð­inni sem var við­höfð með skipan nefnd­ar­innar.

Og nú þegar búið er að ákveða verk­efni sem ráð­ist verður í sagði Aðal­steinn Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða, að stefna stjórn­valda sé ekki skýr. „Maður sér ekki alveg hvaða aðferða­fræði stjórn­völd ætla að beita í byggða­málum, er það með svona beinum, mið­stýrðum aðgerðum eða ætla menn að efla land­svæðin í að taka ákvarð­anir á eigin for­sendum og fylgja því eftir,“ sagði hann við RÚV. Annars staðar á lands­byggð­inni væri unnið eftir sókn­ar­á­ætl­unum og lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga hefðu lagt áherslu á að sú vinna yrði efld, en það hefur ekki verið gert. Vinna eins og í norð­vest­ur­nefnd­inni væri mun mið­stýrð­ari heldur en sókn­ar­á­ætl­an­irnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár