Viljayfirlýsing um fjármögnun álvers í Skagabyggð undirrituð

Félagið Klappir Develop­ment ehf. og China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC) hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um fjár­mögnun á bygg­ingu 120 þús­und tonna álvers við Haf­ur­staði í Skaga­byggð, sem er í Norð­vest­ur­kjör­dæmi norðan við Blönduós. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Zhang Weidong, sendi­herra Kína á Íslandi, fluttu ávörp við und­ir­rit­un­ina, sem fór fram í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu síð­degis í gær.

Í til­kynn­ingu vegna þess segir að Klappir og NFC vinni um þessar mundir í sam­ein­ingu að hag­kvæmni­at­hugun vegna bygg­ingar og rekst­urs fyr­ir­hug­aðs álvers. Heild­ar­kostn­aður verk­efn­is­ins sé áætl­aður rúmir 100 millj­arðar króna, eða um 780 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Áætlanir geri ráð fyrir 240 var­an­legum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tíma­bundnum störfum á bygg­ar­tíma.

Ætla að fjármagna í gegnum kínverska eða aðra banka


Þar er haft eftir Ingvari U. Skúla­syni, fram­kvæmda­stjóra Klappa Develop­ment að und­ir­rit­unin sé mik­il­vægur áfangi í unfirbún­ings­ferl­inu. "Klappir og sveit­ar­fé­lögin á Norð­ur­landi vestra fagna því að jafn öfl­ugur og traustur aðili og NFC skuld­bindi sig til þát­töku í þróun verk­efn­is­ins. Framboð á nauð­syn­legri orku mun ráða því hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að Haf­urs­stöðum." Ingvar er skráður eini eig­andi Klappa Develop­ment í fyr­ir­tækja­skrá.

Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni á milli Klappa Develop­ment og NFC er kín­verska sam­starfs­að­il­anum falin svokölluð „alfram­kvæmd“ (e. turn­key) verk­efn­is­ins. Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni ábyrgist NFC fjár­mögnun a.m.k. 70 pró­sent kostn­aðar við fram­kvæmd­ina og upp­bygg­ingu inn­viða í gegnum kín­verska eða aðra banka, auk þess að ábyrgj­ast bygg­ingu allra mann­virkja sem og rekstur álvers­ins á meðan upp­keyrslu þess stendur. Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni er einnig kveðið á um sam­vinnu Klappa og NFC um gerð samn­inga við þriðja aðila um for­sölu fram­leiðslu­af­urða (e. offtake) sem og um sam­starf um gerð samn­inga við selj­endur hrá­efnis.

Orka liggur ekki á lausu


Ljóst er að orka fyrir verk­efni að þess­ari stærð­argráðu liggur ekki á lausu. Í Morg­un­blað­inu í morgun var greint frá því að í kjöl­far þess að Alþingi sam­þykkti breyt­ing­ar­til­lögu við ramma­á­ætlun, sem felur í sér að hvorki Holta­virkjun né Urriða­foss­virkjun eru settar í nýt­ing­ar­flokk, væri ljóst að Lands­virkjun muni ekki geta útvegað nægi­lega orku til að anna tveimur stórum stór­iðju­verk­efnum í Helguvík og á Grund­ar­tanga. Um er að ræða kís­il­málm­verk­smiðju Thorsil á fyrr­nefnda staðnum og sól­ar­kís­il­verk­smiðju Silicor Mater­i­als á þeim síð­ar­nefnda. Þau verk­efni eru bæði komin lengra á veg en fyr­ir­hugað álver í Skaga­byggð.

Land­vernd hefur lagst alfarið á móti því að reist verði álver á Norð­vest­ur­landi en sveit­ar­fé­lög á svæð­inu höfðu þegar skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu við Klappir vegna verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár