Þorsteinn Már segir sig úr stjórn norsks sjávarútvegsfyrirtækis

Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur sagt sig úr stjórn norska útgerð­ar­fé­lags­ins Nergård. Astæðan er mútu­mál Samherja í Namibíu.

Þorsteinn Már segir sig úr stjórn norsks sjávarútvegsfyrirtækis
Hættur Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur sagt sig úr stjórn Nergård.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, hefur sagt sig úr stjórn norska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Nergård. Þetta kemur fram í norskum fjöl­miðlum. Samherji á tæp 40 pró­sent í Nergård og  sat Þor­steinn Már í stjórn­inni frá árinu 2014 þar til nú. Sonur Þor­steins Más, Baldvin Þor­steins­son, situr hins vegar áfram í stjórn­inni. Samherji fjár­festi í fyr­ir­tæk­inu árið 2014. 

Ástæðan fyrir afsögn Þor­steins úr stjórn norska fyr­ir­tæk­is­ins  er frétta­flutn­ingur Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um mútu­greiðslur Samherja í Namibíu í síð­ustu viku. Frétta­flutn­ing­ur­inn byggir á gögnum sem Wikileaks lét fjöl­miðl­unum í té og sem Wikileaks hefur nú birt opin­ber­lega á vef­síðu sinni. 

„Samvinna okkar við Þorstein hefur verið góð.“

For­stjóri Nergård, Tommy Tor­van­ger, segir að Þor­steinn Már hafi gert Nergård mikið gagn sem stjórn­ar­maður og að hann búi yfir mik­illi þekk­ingu, sér­stak­lega hvað varðar bygg­ingu skipa. „Samvinna okkar við Þorstein hefur verið góð. Hann býr yfir mik­illi þekk­ingu. Hann er búinn að vera okkur mik­il­vægur. Svo sjáum við bara til hvað fram­tíðin ber í skauti sér.“

Þor­steinn Már hefur nú sagt sig úr stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, þar sem hann var for­maður, sem og úr stjórn útgerð­ar­fé­lags­ins Fram­herja í Færeyjum, þar sem hann einnig var for­maður, og nú úr stjórn Nergård í kjöl­far frétta­flutn­ings um mútu­greiðsl­urnar í Namibíu.

Þá hætti hann einnig sem for­stjóri Samherja í síð­ustu viku en sam­kvæmt útgerð­ar­fé­lag­inu er sú ráð­stöfun tíma­bundin og kann Þor­steinn Már því að snúa aftur í for­stjóra­stól­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár