Yfirlýsing til stuðnings LÍN-frumvarpi var ekki rædd í Stúdentaráði

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar sé „Thatcherismi í sínu versta formi, þar sem efna­meira fólki er skamm­laust hampað á kostnað efna­minni“ og „krist­al­tært dæmi um ótrú­lega vont póli­tískt hjarta­lag“.

Yfirlýsing til stuðnings LÍN-frumvarpi var ekki rædd í Stúdentaráði

Yfir­lýs­ing for­manna fjög­urra stúd­enta­hreyf­inga, meðal ann­ars Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, til stuðn­ings LÍN-frum­varpi Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, var ekki lögð fyrir Stúd­enta­ráð áður en hún var send til fjöl­miðla. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá minni­hluta ráðs­ins sem harmar vinnu­brögð meiri­hlut­ans. 

„Yfir­lýs­ingin var ekki lögð fyrir Stúd­enta­ráð og byggir sam­þykki hennar á óform­legum sam­tölum for­manns Stúd­enta­ráðs við ráðs­með­limi um breyt­ing­arnar sem gerðar voru á frum­varp­inu. Stúd­enta­ráð hefur hvergi fengið útlistun á því hvernig afstaða ein­stakra ráðsliða var metin við gerð yfir­lýs­ing­ar­innar og fór engin umræða fram innan ráðs­ins um frum­varpið eftir með­ferð í nefnd­inni,“ segir þar. 

Stundin greindi frá yfir­lýs­ing­unni í gær, en þar skora for­menn Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands (SHÍ), Félags stúd­enta við Háskól­ann á Akureyri (FSHA), Stúd­enta­fé­lags Háskól­ans í Reykja­vík (SFHR) og Nem­enda­sam­bands Tækni­skól­ans (NST) á Alþingi að afgreiða strax hið umdeilda frum­varp til laga um náms­lán og náms­styrki. Þinginu átti að ljúka í dag sam­kvæmt starfs­á­ætlun en frum­varpið á bæði eftir að fara í gegnum aðra og þriðju umræðu. 

„Við krefj­umst þess að málið fari á dag­skrá og verði tekið fyrir í 2. umræðu sem allra fyrst,“ segir í yfir­lýs­ingu for­mann­anna. „Stúd­entar munu ekki una því að bíða til næsta kjör­tíma­bils eftir end­ur­bótum á náms­að­stoð­ar­kerf­inu. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að þetta frum­varp er risa­stórt skref í átt að því náms­að­stoð­ar­kerfi sem við viljum sjá á Íslandi í fram­tíð­inni, en það hefur í för með sér þau atriði sem stúd­entar hafa lengi barist fyrir, til að mynda fyr­ir­fram­greiðslur, beina náms­styrki og 100% fram­færslu.“ 

Fjöldi sam­taka og fag­að­ila hafa gagn­rýnt efn­is­at­riði LÍN-frum­varps­ins harð­lega. Þá leggst stjórn­ar­and­staðan gegn frum­varp­inu. Í nefnd­ar­á­liti minni­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, sem Stundin fjall­aði ítar­lega um í gær, kemur fram að LÍN-frum­varpið hygli hinum efna­meiri á kostnað hinna efna­minni. Þá er full­yrt að frum­varpið stuðli að ójöfn­uði og lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu með því að tak­marka mögu­leika fólks til að afla sér yfir­grips­mik­illar mennt­unar. Bent er á að hjá miklum meiri­hluta þeirra náms­manna sem full­nýta láns­rétt sinn muni afborg­un­ar­byrði af náms­lánum aukast ef frum­varpið verður að lögum.

Í yfir­lýs­ing­unni frá for­mönnum stúd­enta­hreyf­ing­anna er skorað á þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar að „leggja kosn­inga­slag­inn til hliðar“. Þannig er gefið í skyn að and­staða þing­manna við frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar stafi ekki af efn­is­at­riðum frum­varps­ins eða hug­mynda­fræði­legum ágrein­ingi heldur sé liður í vin­sælda­keppni stjórn­mála­flokka í aðdrag­anda þing­kosn­inga. 

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður í minni­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, tjáir sig um málið á Facebook. „Ég frá­bið mér ásak­anir ein­stakra stúd­enta­hreyf­inga um að and­staða mín og ann­arra við þetta frum­varp sé hluti af ein­hverjum belli­brögðum fyrir kosn­ingar,“ skrifar hann og bætir við: „Þetta er ein­fald­lega arfa­slakt frum­varp. Þetta er Thatcherismi í sínu versta formi, þar sem efna­meira fólki er skamm­laust hampað á kostnað efna­minni. Þetta frum­varp er krist­al­tært dæmi um ótrú­lega vont póli­tískt hjarta­lag.“

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, tekur í sama streng:

„Frum­varpið er umdeilt innan Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands meðal ann­ars af þeim ástæðum að horfið er frá tekju­tengdum afborg­unum og vaxta­pró­senta láns­ins þre­földuð en það kemur niður á þeim náms­mönnum sem þurfa að full­nýta lán­töku­rétt sinn,“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá minni­hluta Stúd­enta­ráðs.

„Við með­ferð í Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hlaut frum­varpið ekki breyt­ingar á þessum atriðum. Þær breyt­ingar sem urðu á frum­varp­inu við með­ferð í nefnd­inni eru skref í rétta átt en engan veg­inn nægj­an­legar ef Lána­sjóður íslenskra náms­manna á að við­halda hlut­verki sínu sem félags­legur jöfn­un­ar­sjóður.“ 

Sigríður Hall­gríms­dóttir, aðstoð­ar­kona Illuga Gunn­ars­sonar, tekur undir með for­mönnum stúd­enta­hreyf­ing­anna fjög­urra og hvetur stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn til að „láta póli­tíska hags­muni til hliðar og hlusta á náms­menn“: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menntamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár