Þúsund börn glíma við skólaforðun

Skóla­stjórar segja að leyf­is­um­sóknum hafi fjölgað und­an­farin ár. Fjar­vistir barna megi rekja til þung­lyndis eða kvíða.

Þúsund börn glíma við skólaforðun

Um eitt þús­und börn á Íslandi glíma við það sem er kallað skólaforðun, sem felst í að börn vilja ekki sækja skól­ann. Í mörgum til­vikjum má rekja þetta til kvíða eða þung­lyndis barn­anna. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Leyf­is­um­sóknum barna hefur fjölgað á und­an­förnum árum, að mati skóla­stjóra. Ástæður skólaforð­unar geta verið til­finn­inga­legir erf­ið­leikar barn­anna eða flótti frá aðstæðum. Þá sækj­ast börnin í sumum til­fellum eftir athygli frá fjöl­skyldu eða öðrum í umhverfi sínu eða ein­fald­lega þykir aðrir staðir áhuga­verð­ari en skól­inn.

Skóla­stjór­arar lands­ins telja að for­eldrar hafi of mikið svig­rúm til að halda börnum sínum heima. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar sem Maskína gerði fyrir Vel­ferð­ar­vakt­ina. Siv Frið­leifs­dóttir, for­maður Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar segir skila­boð skóla­stjór­anna vera skýr. Annars vegar sé óskað eftir opin­berum við­miðum um hvenær for­eldrar megi fá leyfi fyrir börnin sín, til dæmis með við­miðum um fjölda frí­daga eða að skóla­stjórn­endur fái heim­ild til að hafna óskum um leyfi. Hins vegar að fjar­vista­skrán­ing barna verði sam­ræmd um allt land.

„Það skiptir höf­uð­máli að börn geti stundað sitt nám af krafti og að for­eldrar ýti undir það og virði það. Æski­legra væri að þeir beini fríum sínum á tíma þegar skól­inn er ekki starf­andi,“ segir Siv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menntamál

Meðlimur siðanefndar segir viðbrögð rektors ósanngjörn og ala á skoðanakúgun
FréttirMenntamál

Meðlimur siða­nefndar segir við­brögð rekt­ors ósann­gjörn og ala á skoð­ana­kúgun

„Brott­rekstur akademísks starfs­manns í kjöl­far þess að hann tjáir sig á innri vef eigin stofn­unar er til þess fallið að grafa undan grund­vall­ar­gildi háskóla­sam­fé­lags­ins um frelsi til hugs­unar og tján­ingar,“ segir í bréfi Jóns Ásgeirs Kalm­ans­sonar til rekt­ors Land­bún­að­ar­há­skól­ans vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­sagnar pró­fess­ors vegna harð­orðrar gagn­rýni hennar.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár