Lögðu áherslu á mikilvægi rannsókna en skera niður framlög til Rannsóknarsjóðs

Félög stúd­enta og dokt­or­snema við háskóla lands­ins segja nið­ur­skurð­inn mikið högg fyrir íslenskt fræða­sam­fé­lag. Segja að upp­hæðin myndi duga til að fjár­magna tæp þrjá­tíu árs­laun dokt­or­snema eða tutt­ugu og ein árs­laun nýdokt­ora.

Lögðu áherslu á mikilvægi rannsókna en skera niður framlög til Rannsóknarsjóðs

Félög stúd­enta og dokt­or­snema við helstu háskóla lands­ins sem og erlendis lýsa yfir alvar­legum áhyggjum af fyr­ir­hug­uðum 147 millj­óna króna nið­ur­skurði til Rann­sókn­ar­sjóðs í fjár­lögum 2019. „Í stóra sam­hengi fjár­laga hljómar þetta kannski ekki sem mikil fjár­hæð en fyrir þá sem reiða sig á sjóð­inn er um gríð­ar­legar fjár­hæðir að ræða,“ segir í yfir­lýs­ingu frá félög­unum sem benda á að upp­hæðin myndi duga til að fjár­magna tæp þrjá­tíu árs­laun dokt­or­snema eða tutt­ugu og ein árs­laun nýdokt­ora. „Þetta er því mikið högg fyrir íslenskt fræða­sam­fé­lag sem reiðir sig í stórum stíl á þennan sjóð,“ segir í yfir­lýs­ing­unni

Félögin hafa sér­stak­lega áhyggjur af dokt­or­snemum og nýrann­sak­endum sem byggi afkomu sína nær algjör­lega á úthlut­unum úr sam­keppn­is­sjóðum og að á sein­ustu árum hafi árang­urs­hlut­fall úr Rann­sókna­sjóði lækkað veru­lega, úr 29,6 pró­sentum árið 2015 í 18,4 pró­sent í ár, jafn­vel þó að ekki hafi verið skorið niður til sjóðs­ins að ráði. „Verði af fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði er ljóst að árang­urs­hlut­fallið mun lækka veru­lega í úthlutun árs­ins 2019,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stúd­entar og dokt­or­snemar vísa í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar 2019–2023 en þar segir: „Fjár­mögnun dokt­or­snema er ótrygg og nýliðun akademískra starfs­manna víða ófull­nægj­andi. Þetta skapar hættu á að sú nýja þekk­ing sem gjarnan fylgir ungum vís­inda­mönnum skili sér illa inn í háskól­ana og að það dragi úr tengslum við erlent fræða­sam­fé­lag.“

Félögin taka undir þessi orð rík­is­stjórn­ar­innar og telja ljóst að fyr­ir­hug­aður nið­ur­skurður muni hafa gríð­ar­leg áhrif á dokt­ors­nám í land­inu þar sem brott­fall mun að öllum lík­indum aukast og nýliðun minnka. „Mögu­leikar nýrann­sak­enda munu að sama skapi snar­minnka sem mun valda atgervis­flótta og veikja vís­inda­rann­sóknir og háskól­ana til lang­frama. Við skorum því á þing­menn að leið­rétta fram­lög til mennta­mála svo að unnt sé að veita nægi­leg fram­lög til rann­sókna og vís­inda við háskóla og fræða­stofn­anir á Íslandi.“

Eft­ir­far­andi félög und­ir­rita yfir­lýs­ing­una:

• Fedon – félag dokt­or­snema og nýrann­sak­enda við Háskóla Íslands
• Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands
• LÍS – Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta
• SÍNE – Samband íslenskra náms­manna erlendis
• RUPA – félag dokt­or­snema við Háskól­ann í Reykja­vík
• Arkímedes – félag dokt­or­snema við Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­svið Háskóla Íslands
• DNR/HVS – dokt­or­snema­ráð Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands
• Félag dokt­or­snema á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands
• Hugdok – félag dokt­or­snema og nýrann­sak­enda við Hug­vís­inda­svið Háskóla Íslands
• Seigla: Félag dokt­or­snema á Félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands
• Nem­enda­fé­lag Háskól­ans á Bifröst
• Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans á Akureyri
• Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans í Reykja­vík

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menntamál

Meðlimur siðanefndar segir viðbrögð rektors ósanngjörn og ala á skoðanakúgun
FréttirMenntamál

Meðlimur siða­nefndar segir við­brögð rekt­ors ósann­gjörn og ala á skoð­ana­kúgun

„Brott­rekstur akademísks starfs­manns í kjöl­far þess að hann tjáir sig á innri vef eigin stofn­unar er til þess fallið að grafa undan grund­vall­ar­gildi háskóla­sam­fé­lags­ins um frelsi til hugs­unar og tján­ingar,“ segir í bréfi Jóns Ásgeirs Kalm­ans­sonar til rekt­ors Land­bún­að­ar­há­skól­ans vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­sagnar pró­fess­ors vegna harð­orðrar gagn­rýni hennar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár