Vilja stimpilgjaldið burt og aukið flæði á húsnæðismarkaði

Í dag þurfa kaup­endur fyrstu fast­eignar að greiða 0,4 pró­senta stimp­il­gjald en aðrir 0,8 pró­sent. Verði frum­varp 12 þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins að lögum mun stimp­il­gjald vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði falla alfarið niður.

Vilja stimpilgjaldið burt og aukið flæði á húsnæðismarkaði

Tólf þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp um afnám stimp­il­gjalds vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði. Með þessu vilja þau „auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis og auka skil­virkni og flæði á mark­aði með það“.

Í grein­ar­gerð er bent á að í dag beri ein­stak­lingum almennt að greiða 0,8% stimp­il­gjald vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði en þó sé veittur helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. „Verði frum­varpið að lögum mun gjaldið falla alfarið niður vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði og und­an­þágan verður ekki bundin við fyrstu kaup.“

Fullyrt er í frum­varp­inu að sýnt þyki að stimp­il­gjald hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. „Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds við fast­eigna­við­skipti muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“ 

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Ásamt henni standa fyrir frum­varp­inu þau Óli Björn Kárason, Hildur Sverr­is­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Teitur Björn Ein­ars­son, Vil­hjálmur Bjarna­son, Páll Magn­ús­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Val­gerður Gunn­ars­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son, Bryndís Har­alds­dóttir og Brynjar Níelsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár