Treysta Bjarna til að gegna embætti forsætisráðherra þrátt fyrir „ámælisverð“ vinnubrögð

Pawel Bartoszek er óánægður með með­höndlun Bjarna Bene­dikts­sonar á skýrslu um aflandseignir og finnst óásætt­an­legt að hann hafi greint rangt frá röð atburða. Jón Steindór telur að rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna geti aukið traust og til­trú almenn­ings á íslenskum stjórn­málum.

Treysta Bjarna til að gegna embætti forsætisráðherra þrátt fyrir „ámælisverð“ vinnubrögð

Tveir af sjö þing­mönnum Við­reisnar hafa svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þar sem óskað er eftir afstöðu þeirra til ákvörð­unar Bjarna Bene­dikts­sonar, for­sæt­is­ráð­herra og fyrrum fjár­mála­ráð­herra, um að fresta birt­ingu skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum fram yfir þing­kosn­ingar.

Pawel Bartoszek telur að með­höndlun Bjarna á skýrsl­unni sé „ámæl­is­verð“ og að það sé ekki í lagi að ráð­herr­ann hafi ekki greint rétt frá í við­tali um málið. Þrátt fyrir þetta sé Bjarna treystandi til að vera í for­svari fyrir nýja rík­is­stjórn. Jón Steindór Valdi­mars­son vill að fólk og ráð­herrar segi satt og bendir á að Viðreisn hafi það að mark­miði að ástunda góða stjórn­sýslu­hætti og vönduð vinnu­brögð.

Eins og Stundin greindi frá í vik­unni fjallar skýrsla starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga með gagn­rýnum hætti um þá stefnu sem rekin var á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits á útrás­ar­ár­unum þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið.

Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, full­yrti rang­lega í við­tali við RÚV síð­ustu helgi að skýrsl­unni hefði ekki verið skilað í ráðu­neyti sitt fyrr en eftir þing­slit í októ­ber, en hið rétta er að skýrslan barst ráðu­neyt­inu þann 13. sept­em­ber. Hann hefur nú við­ur­kennt að hafa ákveðið að birta hvorki almenn­ingi né Alþingi skýrsl­una, enda hafi hann ekki viljað að efni hennar yrði „sett í kosn­inga­sam­hengi“. 

Stundin sendi öllum þing­mönnum Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fyr­ir­spurn á mánu­dag­inn og óskaði eftir afstöðu þeirra til máls­ins, þ.e. hvort ákvörðun, vinnu­brögð og skýr­ingar Bjarna stand­ist kröfur þeirra um gott stjórn­mála­sið­ferði og vand­aða stjórn­sýslu­hætti. Þá óskaði Stundin eftir afstöðu þing­mann­anna til aðkomu Bjarna að ákvörð­unum um kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum sem höfðu meðal ann­ars að geyma aflands­fé­lag sem Bjarni átti sjálfur hlut í. 

Aðeins fjórir þing­menn hafa svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar, þar af Pawel Bartoszek og Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­menn Við­reisnar. Báðir telja að ný rík­is­stjórn muni, þrátt fyrir vinnu­brögð Bjarna Bene­dikts­sonar sem nú verður for­sæt­is­ráð­herra, geta aukið traust og til­trú almenn­ings á íslenskum stjórn­málum. 

Spurningar Stundarinnar:

1. Telurðu að það sam­rým­ist góðum stjórn­sýslu­háttum og stjórn­mála­sið­ferði að ráð­herra eigi beina aðkomu að ákvörð­unum um kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum sem hafa að geyma upp­lýs­ingar um hans eigin aflands­fé­lag?

2. Finnst þér rétt­læt­an­legt að ráð­herra, sem sjálfur hefur geymt pen­inga í aflands­fé­lagi, ákveði að fresta birt­ingu á skýrslu um umfang aflandseigna Íslend­inga fram yfir þing­kosn­ingar sem var efnt sér­stak­lega til vegna afhjúpana á aflands­starf­semi? 

3. Finnst þér í lagi að ráð­herra segi almenn­ingi ósatt um málið? 

4. Sé svarið við ein­hverri af þessum spurn­ingum nei, hvers vegna finnst þér þá rétt­læt­an­legt að þinn flokkur taki þátt í að gera við­kom­andi stjórn­mála­mann að for­sæt­is­ráð­herra? 

5. Hvers vegna tel­urðu að rík­is­stjórn undir for­sæti þessa stjórn­mála­manns geti, í sam­ræmi við mark­mið þíns eigin flokks, aukið traust og til­trú almenn­ings á íslenskum stjórn­málum og unnið að almanna­hags­munum í stað sér­hags­muna?

Pawel Bartoszek svaraði:


Sæll og takk fyrir fyr­ir­spurn­ina,

Svo ég setji mig ekki á hærri sið­ferð­is­st­all en ég á skilið þá sagði ég mig ekki úr Sjálf­stæð­is­flokknum vegna Pan­ana­lek­ans, heldur vegna hug­mynda­fræði­legs ágrein­ings um nokkur lyk­il­mál. Né hef ég viljað úti­loka sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.  Að því má, rétti­lega, draga þá ályktun að mér finnst aðkoma Bjarna Bene­dikts­sonar að þeim málum ekki með þeim hætti að ég vilji úti­loka sam­starf við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár