Telja að fólk hafi ekki kynnt sér skýrslurnar nógu vel – Benedikt: „Ég kom ekkert nálægt skýrsluvinnunni“

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, við­ur­kennir að ekki sé hljóm­grunnur fyrir því að taka 10 þús­und króna seð­il­inn úr umferð. Hug­myndin hefur sætt harðri gagn­rýni.

Telja að fólk hafi ekki kynnt sér skýrslurnar nógu vel – Benedikt: „Ég kom ekkert nálægt skýrsluvinnunni“

Viðreisn gagn­rýnir umræð­una um skýrslur tveggja sér­fræð­inga­hópa um skatt­svik sem lagðar voru fram í dag. Á Facebook-síðu flokks­ins er full­yrt að margir hafi „stað­næmst við algert auka­at­riði í skýrsl­unum, en ekki kynnt sér þær til sem skyldi.“ Í annarri skýrsl­unni er lagt til að 10 þús­und króna seð­il­inn verði tek­inn úr umferð og því næst 5 þús­und króna seð­ill­inn.

Fram kom í við­tali við Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Við­reisnar, á vef RÚV um hádeg­is­leytið í dag að hann ætl­aði að beita sér fyrir því að dregið yrði úr notkun reiðu­fjár. „Það eru ekki margir sem eru með 10 þús­und króna seðla í vas­anum. Engu að síður þá eru það helm­ing­ur­inn af reiðufé í umferð sam­kvæmt tölum seðla­bank­ans. Þannig að þá spyr maður, hverjir eru það sem eru með alla þessa tíu þús­und kalla,“ sagði hann og bætti við: „Með því að minnka seðl­anna sem eru í umferð þá verður óþægi­legra að nota þá

Í kjöl­farið sætti Benedikt harðri gagn­rýni í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum. Egill Helgason sagði að hug­myndin væri „ein­hver fávita­leg­asta efna­hags­að­gerð sem maður hefur heyrt um“ og Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður sam­starfs­flokks Bene­dikts í rík­is­stjórn sagði að til­lagan væri „kol­röng nálgun og hrein­lega galin hug­mynd“.

Nú hefur Benedikt fjar­lægt sig þeim til­lögum sem kynntar voru í skýrsl­unum. „Ég kom ekk­ert nálægt skýrslu­vinn­unni sjálfur og gaf engar skip­anir um um nið­ur­stöður,“ skrifar hann í pistli sem birt­ist á vef Við­reisnar í kvöld.

„Ég kom ekk­ert nálægt skýrslu­vinn­unni sjálfur og gaf engar skip­anir um um nið­ur­stöður“

Þá við­ur­kennir hann, að því er varðar til­lög­una um að taka 10 þús­und kall­inn úr umferð, að „miðað við fyrstu við­brögð er sam­fé­lagið ekki til­búið í svo rót­tæka hug­mynd.“

Benedikt telur að fæstir þeirra sem hafa tjáð sig um til­lög­urnar hafi lesið sér nægi­lega til. „Líklega hafa fæstir þeirra sem hafa tjáð sig um allar þessar til­lögur í dag kynnt sér skýrsl­urnar enda báðar um 40 blað­síður á lengd. Ég hvet alla til þess að kynna sér til­lög­urnar og móta sér svo skoðun,“ skrifar fjár­mála­ráð­herra. 

Þá bendir hann á að starfs­hóp­ur­inn leggi ekki til að reiðufé verði bannað. „Með­al­talsút­reikn­ingar sýna að meðal-Íslend­ing­ur­inn á tæp­lega 200 þús­und krónur í reiðufé þar af helm­ing­inn í tíu­þús­und­köllum. Vegna þess að fæstir kann­ast við að eiga slíkar fjár­hæðir í seðlum vaknar grunur um að reiðufé sé súr­efni svarta hag­kerf­is­ins.“

Með því að minnka notkun reiðu­fjár megi þannig þrengja að svarta hag­kerf­inu, en ætl­unin sé ekki að vega að heið­ar­legu fólki.„Tillögur nefnd­ar­innar eru heldur ekki settar fram til þess að hygla greiðslu­korta­fyr­ir­tækjum heldur leggur hún þvert á móti fram til­lögur um gjald­frjálsa reikn­inga almenn­ings í Seðla­bank­anum, reikn­inga sem ekki bæru við­skipta­gjöld,“ skrifar Benedikt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár