Veit ekkert um mál múslimans og hefur ekkert aðhafst: „Ekki endilega víst að þetta mál heyri undir íslensk stjórnvöld“

Sigríður Á. Andersen, ráð­herra vega­bréfa­eft­ir­lits- og lög­reglu­mála, hefur ekki óskað skýr­inga, aflað sér upp­lýs­inga né gripið til neinna ráð­staf­ana vegna frétta af breskum rík­is­borg­ara sem var vísað frá borði í Keflavík.

Veit ekkert um mál múslimans og hefur ekkert aðhafst: „Ekki endilega víst að þetta mál heyri undir íslensk stjórnvöld“

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur ekki óskað skýr­inga né aðhafst með neinum hætti vegna frétta af breskum rík­is­borg­ara sem var vísað frá borði í Keflavík þegar hann milli­lenti á Íslandi þann 16. febr­úar á leið til Banda­ríkj­anna.

Maðurinn, sem er múslimi, var með lög­mætt vega­bréf og vega­bréfa­á­ritun en málið hefur vakið tals­verða athygli bæði í Bret­landi og á Íslandi enda er enn í gildi lög­bann á umdeilda for­seta­til­skipun Donalds Trump um að meina borg­urum sjö múslima­ríkja um ferðir til Banda­ríkj­anna. Maðurinn er velskur kenn­ari og var á leið vestur um haf ásamt nem­endum sínum.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, óskaði eftir skýr­ingum frá ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Í svari sínu við­ur­kenndi Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra sem fer með mál­efni vega­bréfs­eft­ir­lits og lög­regl­unnar, að hún vissi ekk­ert um málið. 

„Ég hjó eftir þessum fréttum. Mér er hins vegar ekki kunn­ugt um hverju þetta sætir, þessi afgreiðsla, og hefði ég nú vitað af þess­ari fyr­ir­spurn þá hefði ég nú kannski mögu­lega verið búin að graf­ast fyrir um það,“ sagði hún. „En dóms­mála­ráðu­neyt­inu hefur ekki borist nein skýr­ing á þessu og reyndar ekki verið óskað eftir því… mér sýn­ist nú að það sé ekki endi­lega víst að þetta mál heyri undir íslensk stjórn­völd eins og þau eru en það er vænt­an­lega verið að kanna þetta í ein­hverju mögu­legu sam­starfi við utan­rík­is­ráðu­neytið en í öllu falli heyrir þetta undir bresk stjórn­völd og sam­skipti þeirra við banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neytið í Bret­landi.“

Rósa Björk harm­aði að helsti yfir­maður dóms­mála á Íslandi vissi ekk­ert um málið og benti á að lög­regla og vega­bréfa­eftirilitið á Íslandi hefðu komið að mál­inu og heyrðu undir ráð­herra.

Sigríður sagði: „Eins og fram kemur er þetta nýskeð og ég verð bara að við­ur­kenna það að þetta mál hefur ekk­ert komið inn á borð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Ég hef engar upp­lýs­ingar um þetta og íslensk stjórn­völd hafa engar upp­lýs­ingar um þessa ákörðun Banda­ríkja­manna gagn­vart þessum breska rík­is­borg­ara. Ég vona að hátt­virtur þing­maður virði mér það til vor­kunnar að þetta er ekki beint eins og málið liggur á sviði ráðu­neyt­is­ins, a.m.k. enn sem komið er.“ Þá bætti hún því við að sér þætti eðli­legt að ráðu­neytið skoð­aði þessi mál og það myndi ekki standa á sér að upp­lýsa um „til­vik sem þessi ef þau ger­ast tíð­ari á íslenskri grundu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár