Veifaði reikniformúlum í ræðustól: „Þetta kemur lánveitingum til efnafólks ekkert við“

Alþingi sam­þykkti lög sem heim­ila geng­is­tryggð lán. Stjórn­ar­liðar vísa til EES-samn­ings­ins en stjórn­ar­and­staðan segir frum­varpið „póli­tíska ákvörðun um að greiða fyrir aðgangi efna­fólks að ódýrri erlendri fjár­mögnun sem ekki stendur öðrum til boða og er á kostnað ann­arra í sam­fé­lag­inu.“

Veifaði reikniformúlum í ræðustól: „Þetta kemur lánveitingum til efnafólks ekkert við“

Alþingi sam­þykkti í dag lög sem heim­ila geng­is­tryggð lán til þeirra sem hafa nægar tekjur til að standa undir veru­legum sveiflum í greiðslu­byrði lán­anna.

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­sögu­maður máls­ins í efna­hags- og við­skipta­nefnd, veif­aði blaði með reikni­for­múlum þegar hann hvatti þing­menn til að styðja frum­varp Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um lán tengd erlendum gjald­miðlum. Lögin voru sam­þykkt með 32 atkvæðum á móti 31 um þrjúleytið í dag.

„Þetta mál snýst ekki um fjár­mála­stöð­ug­leika, þetta snýst um ein­faldar reikni­að­ferðir,“ sagði Vil­hjálmur Bjarna­son. „Ég hef sett hér fram á blaði tvær reikni­for­múlur með nokkrum breyti­stærðum og þegar ég er búinn að setja þessar reikni­for­múlur upp þá eru sömu breyti­stærðir í sömu for­múl­unum. Annað hefur Hæsti­réttur dæmt með ein­hverjum hætti óheim­ilt, hitt er heim­ilt.“

Sagði hann frum­varpið hvorki hafa neitt að gera með fjár­hags­stöð­ug­leika né lán­veit­ingar til efna­fólks. „Þetta kemur fjár­mála­stöð­ug­leika ekk­ert við, þetta kemur lán­veit­ingum til efna­fólks ekk­ert við, það eru allar sömu kröfur gerðar til greiðslu­mats í þessu frum­varpi sem er til atkvæða, þannig að hér eru hreinar rang­færslur.“

 

Í frum­varp­inu er kveðið á um að aðeins skuli veita lán tengd erlendum gjald­miðlum ef neyt­andi „a. hefur nægi­legar tekjur í þeim gjald­miðli sem lánið teng­ist til að stand­ast greiðslu­mat, eða b. hefur stað­ist greiðslu­mat þar sem gert er ráð fyrir veru­legum geng­is­breyt­ingum og veru­legum hækk­unum á vöxtum, eða c. hefur stað­ist greiðslu­mat og leggur fram fjár­hags­legar trygg­ingar sem draga veru­lega úr gjald­eyr­is­á­hættu hans vegna láns­ins á láns­tím­anum.“ Þrátt fyrir þetta full­yrti Vil­hjálmur á Alþingi í dag að frum­varpið hefði ekk­ert með lán­veit­ingar til efna­fólks að gera. 

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er bent á að eft­ir­lits­stofnun EFTA telur að bann íslenskra laga við geng­is­trygg­ingu ekki sam­ræm­ast meg­in­reglu EES-samn­ings­ins um frjálst fjár­magns­flæði. Hingað til hafa íslensk stjórn­völd, í svörum sínum til stofn­un­ar­innar, fall­ist á að end­ur­skoða bannið, en ekki talið ráð­legt að gera slíkt án tak­mark­ana sem eru byggð á sjón­ar­miðum um fjár­mála­stöð­ug­leika. Í frum­varp­inu, sem nú er orðið að lögum, er Seðla­bank­anum veitt heim­ild til að setja gjald­eyr­is­tryggðum lán­veit­ingum skorður til að varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika. Þannig getur Seðla­bank­inn sett lána­stofn­unum reglur um útlán tengd erlendum gjald­miðlum til aðila sem ekki eru varðir fyrir gjald­eyr­is­á­hættu; ákveðið láns­tíma, teg­undir trygg­ingar og hámarks­hlut­fall lána sem tengj­ast erlendum gjald­miðlum af heild­ar­út­lána­safni lána­stofn­unar. 

 

Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar í efna­hags- og við­skipta­nefnd skil­uðu áliti um miðjan maí­mánuð þar sem frum­varpið er gagn­rýnt harð­lega. Útgangs­punkt­ur­inn í álit­inu er sá að með frum­varp­inu sé verið að greiða fyrir aðgangi efn­aðs fólks að lánum sem ekki standa öðrum til boða. 

„Sterkur hvati er til að taka slík lán enda vextir víða erlendis mun lægri en hér. Með því að ávaxta féð hér á landi geta lán­tak­endur fengið í sinn hlut umtals­verðan vaxta­mun. Sá ávinn­ingur er þó ekki kostn­að­ar­laus. Stýri­vextir Seðla­banka Íslands hrífa síður ef efna­fólk getur tekið geng­is­tryggð lán á vöxtum sem eiga ekk­ert skylt við stýri­vext­ina. Á móti þurfa aðrir í sam­fé­lag­inu að þola meira aðhald af hálfu pen­inga­stefn­unnar og því greiða hærri vexti. Mikil erlend lán­taka óvar­inna lán­taka getur einnig magnað upp geng­is­sveiflur og aukið fjár­mála­ó­stöð­ug­leika. Líkur eru til að margir þeirra leit­ist sam­tímis við að kaupa gjald­eyri til að lág­marka geng­is­tap ef krónan tekur að lækka. Það ýkir lækk­un­ina sem hækkar verð inn­flutts varn­ings og eykur því verð­bólgu. Hún hækkar aftur verð­tryggðar skuldir fólks,“ segir í álit­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár