Talaði vel um gerandann eftir nauðgunina

Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi á Stíga­mótum, segir algengt að konur séu vina­legar við ger­endur eftir kyn­ferð­is­of­beldi. Það er hins vegar notað gegn þeim og getur verið ástæðan fyrir nið­ur­fell­ingu mála. Rebekka Rut var fimmtán ára og reyndi að láta sem ekk­ert væri þegar nauð­gar­inn skutl­aði henni heim.

Talaði vel um gerandann eftir nauðgunina
Var vina­leg við ger­and­ann Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi á Stíga­mótum, segir það algengt að þolendur séu vina­legir við ger­endur eftir kyn­ferð­is­of­beldi. Sjálf gerði hún það, skelf­ingu lostin.

„Viðbrögð brota­þola fyrir eða eftir kyn­ferð­is­of­beldi geta haft áhrif á dóma og eru jafn­vel ástæða nið­ur­fell­ingar hjá rík­is­sak­sókn­ara,“ segir Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi á Stíga­mótum. „Þar virð­ist skipta máli hvort þol­andi borð­aði morg­un­mat hjá ger­anda, sem er samt ekki afn­auð­g­andi athöfn og það geta verið alls­konar ástæður fyrir því að þeir geri það. Ég hef heyrt um brota­þola sem lofa því að ger­ast við­höld ger­anda sinna og lofa öllu fögru til að sleppa út og kom­ast burt.“

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son gerði sam­skipti brota­þola og meints ger­anda í nauðg­un­ar­máli að umtals­efni í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 fyrr í vik­unni. Þar sagði hann að brota­þoli hefði verið í sam­skiptum við mein­tan ger­anda eftir atvikið. Í sam­tali við Stundina sagði hann meðal ann­ars: „Ef ég hefði lesið upp úr þessum Facebook-sam­skiptum þeirra þá hefði það ekki komið vel út fyrir brota­þola. Það er frá­leitt að nokkur eigi svona broskalla- og gleði­sam­skipti við ein­hvern mann sem er nýbú­inn að nauðga henni. En ég ákvað að gera það ekki, meðal ann­ars af til­lit­semi við brota­þola.“

Í kjöl­farið hófst ný bylt­ing á Beauty tips undir merkj­unum #eft­ir­kyn­ferð­is­of­beldi. Þar segja konur frá sam­skiptum sínum við ger­endur eftir nauðgun, en oft hafa þær reynt að láta sem ekk­ert væri. Ein þeirra, Ragn­heiður Helga Haf­steins­dóttir,  sagði sögu sína í Stund­inni fyrr í dag, en þar kom fram að hún fór aftur í húsið þar sem henni hafði verið hópnauðgað og hitti strák­ana sem gerðu það.

„Það er frá­leitt að nokkur eigi svona broskalla- og gleði­sam­skipti við ein­hvern mann sem er nýbú­inn að nauðga henni.“

Enn ein mýtan 

Anna Bentína segir að það sé mjög algengt að brota­þolar séu vina­legir við ger­endur sína eftir ofbeldið. „Það hefur ekk­ert með það að gera hvort ofbeldi hafi átt sér stað eða ekki. Það er engin vís­bend­ing um að það sem gerð­ist hafi verið í lagi. Þessi við­brögð eru mjög algeng hjá brota­þolum. Þeir eru yfir­leitt log­andi hræddir og vita ekk­ert hvar þeir hafa við­kom­andi. Í raun gera þeir allt sem þeir geta gert til skaða­minnk­unar.

Hér er verið að halda á lofti enn einni mýt­unni. Það er ömur­legt að sjá að lög­fræð­ingar sem eru mjög virkir verj­endur í þessum málum og virkir í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni séu ekki betur að sér en svo. Að þeir séu svo upp­fullir af van­þekk­ingu að þeir gleypi við alls­konar mýtum.

Þetta minnir á það þegar stúlka kærði Egil Ein­ars­son og kær­ustu hans fyrir nauðgun fyrir nokkrum árum. Þá var birt mynd af stúlkunni að kyssa kærust­una hans, eins og það ætti að vera vís­bend­ing um að það hefði engin nauðgun átt sér stað. Það er alltaf verið að setja spurn­ing­ar­merki við það hvernig þol­and­inn kemur fram. Það lýsir skrýtnu hug­ar­fari að hegðun og við­brögð brota­þola sé gerð að aðal­at­riði en ekki meint nauðgun. Yfir­leitt er það gert til að minnka þáttt ger­anda.“

Hún ítrekar að það séu ekki til rétt eða röng við­brögð við ofbeldi. „Í 25 ár hafa Stígamót reynt að upp­ræta við­horf um að það sé á ábyrgð brota­þola að bregð­ast rétt við. Brota­þoli er aldrei ábyrgur fyrir því sem ger­ist. Nauðgun núll­ast ekki út af því að brota­þoli er vina­legur við ger­anda. Lík­leg­ast er skýr­ingin á því að hann er skelf­ingu­lost­inn, í áfalli, afneitun, dof­inn og áttar sig ekki á aðstæðum eða er ekki til­bú­inn til að horfast í augu við ofbeldið. Það er svo þung­bært að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Fólk reynir jafn­vel að gera lítið úr því að draga úr skað­anum, hvort sem það er í ótta eða afneitun.“  

Lofaði öllu fögru 

Anna Bentína hefur sjálf reynslu af þessu. „Ég var mjög vina­leg við ger­and­ann minn. Ástæðan fyrir því var sú að ég var skelf­ingu lostin, stödd á afviknum stað. Hann hafði keyrt mig upp í sveit þar sem þetta gerð­ist og ég komst ekki burt nema með því að vera vina­leg við hann. Ég veit ekki hvað hann hefði gert við mig ef ég hefði ekki verið vina­leg. Ég var algjör­lega upp á hann komin.“

Maðurinn sem um ræður var kunn­ingi hennar. Þau þekkt­ust ekki vel en hún lof­aði að halda sam­skiptum við hann áfram. „Ég lof­aði öllu fögru og sagði honum að við myndum auð­vitað tala saman aftur. Þegar þú lendir í þessum aðstæðum þá upp­lifir þú þig í lífs­hættu. Það var alla­vega þannig hjá mér. Ég gerði allt til þess að reyna að hafa ein­hverja stjórn í aðstæðum sem ég hafði enga stjórn á. Meðal ann­ars með svona skaða­minnk­andi aðgerðum.“

„Ég lof­aði öllu fögru og sagði honum að við myndum auð­vitað tala saman aftur.“

Talaði vel um gerandann

Við­brögðin voru notuð gegn henni. „Í rök­stuðn­ingi fyrir nið­ur­fell­ingu máls­ins kom reyndar fram að ég hafði skýr­ingu á því að hafa gert þetta. En þar kom jafn­framt fram að ég hafði rætt við leigu­bíl­stjór­ann sem sótti mig og keyrði mig heim. Það var vinur hans. Í bílnum sagði ég ekk­ert um það sem gerð­ist og tal­aði vel um ger­and­ann. Það er að segja, leigu­bíl­stjór­inn var að spyrja mig út í þennan mann og tala um hvað hann væri frá­bær og ég sagði bara já við því. Það var notað gegn mér. En ég vildi bara kom­ast heim og treysti ekki vini manns­ins sem nauðg­aði mér, bara alls ekki.

Ger­and­inn not­aði þetta líka gegn mér og sagði þetta merki um að allt hefði farið fram með mínu sam­þykki. Mér fannst það með ólík­indum. Ég trúði því ekki að það væri hægt að afneita ofbeldi með þessum hætti. Ég var búin að segja svo oft nei við hann og að ég vildi þetta ekki, en það virt­ist núll­ast alveg út vegna við­bragða minna eftir á. En það virð­ist vera að menn sem beita svona ofbeldi hafi ótrú­lega hæfni til þess að rétt­læta gjörðir sínar. Þess vegna er svo mik­il­vægt að við setjum ábyrgð­ina þangað. Það er þeim síst til hjálpar að firra þá ábyrgð. Það er mik­il­vægt að þeir axli ábyrgð á því sem þeir gera.“

„Ég vildi bara kom­ast heim og treysti ekki vini manns­ins sem nauðg­aði mér, bara alls ekki.“

„Ég sagði já endilega“

Fleiri konur hafa lýst sömu reynslu. Hér að neðan eru nokkur dæmi frá konum sem hafa tjáð sig á Twitter undir #eft­ir­kyn­ferð­is­of­beldi.

„Daginn eftir sagði ég brand­ara um „kyn­lífið“ sem ég stund­aði. Ég var áfeng­is­dauð.“

„Hann fór með mig og hund­inn sinn í göngutúr. Mér leið eins og ég væri í alveg jafn miklu beisli og hund­ur­inn hans.“

„Hann sagð­ist ætla að kíkja í kaffi og ég sagði já endi­lega.“

„Á meðan mar­blett­irnir dökkn­uðu undir föt­unum mínum haltr­aði ég í vinn­una og fór á neyð­ar­mót­tök­una eftir vinnu­tíma.“

„Ég hélt áfram að mæta í skól­ann þótt brota­mað­ur­inn væri sam­nem­andi minn. Það breytir ekki því sem hann gerði.“

Fékk far með nauðgaranum 

Vildi bara komast heim
Vildi bara kom­ast heim Rebekka Rut var fimmtán ára þegar henni var nauðgað af kunn­ingja, sem síðan keyrði hana heim. Það að hún hafi leyft honum að keyra sig heim sat lengi í henni.

Rebekka Rut Mar­íus­dóttir var 15 ára þegar hún fór í heim­sókn til kunn­ingja síns. Hann hafði lengi suðað í henni að koma í heim­sókn og hún ákvað að kíkja við þegar henni leidd­ist.

„Þar nauðg­aði hann mér. Hann bjó hjá ömmu sinni og afa. Við fórum inn í her­bergið til hans þar sem ég sett­ist í rúmið. Hann byrj­aði strax að brjóta gegn mér. Ég fraus bara. Af því að ég barð­ist ekki um þá fannst mér ég ekki geta kallað þetta nauðgun, en þetta var gegn mínum vilja. Ég vildi bara klára þetta af og fara heim. Það tók mig langan tíma að sætta mig við að hann hefði nauðgað mér, en mér hafði aldrei liðið svona illa áður.“

Hún segir að þegar hann hafi lokið sér af hafi þau klætt sig aftur í fötin. And­rúms­loftið hafi verið vand­ræða­legt en þau hafi ekki rætt það sem gerð­ist. „Mér leið illa en ég grét ekki eða öskr­aði. Ég var alveg hljóð.

Síðan skutl­aði hann mér heim. Ég reyndi að láta eins og ekk­ert væri og spjall­aði við hann. Seinna skamm­að­ist ég mín mjög mikið fyrir það. Mér fannst að fyrst ég hefði leyft honum að skutla mér heim þá gæti þetta ekki verið rangt. Eins og það rétt­lætti ofbeldið. Ef ég hefði hlaupið út eða barist á móti þá hefði ég átt auð­veld­ara með þetta.“

„Ég vildi bara klára þetta af og fara heim.“

Ýtti undir ranghugmyndirnar

Tveimur vikum síðar brotn­aði Rebekka Rut niður og sagði þáver­andi kærast­anum sínum frá þessu. „Fyrstu við­brögð hans voru að hugga mig. Seinna hringdi hann í mig og sagð­ist ekki geta treyst mér – eins og ég hefði haldið fram hjá honum. Það braut mig mjög mikið niður að hann skyldi kenna mér um þetta og setja sök­ina á mig. Það ýtti undir þessar rang­hug­myndir um að þetta hefði ekki verið nauðgun. En hann var kærast­inn minn og fyrst hann sagði þetta þá hlaut það að vera satt.“

Hún bað hann um að geyma leynd­ar­málið, en hann sagði systur hennar frá. „Ég var ekki til­búin til þess að segja strax frá þessu. En þá leit­aði ég til konu sem var að vinna í félags­mið­stöð­inni minni og hún kom með með mér heim að tala við mömmu.

Vildi vernda sjálfa sig

Í kjöl­farið fór þetta í kæru­ferli, sem ég var mjög ósátt við. Málið var fellt niður en ég hafði aldrei trú á því, það voru engar sann­anir í mál­inu, bara orð á móti orði. En það var þrýst á mig að fara þessa leið af því að þau héldu að ég væri að vernda hann. En ég var að reyna að vernda sjálfa mig. Ég vildi ekki fara í gegnum þetta ferli. Mér fannst ég ekki hafa neina stjórn á þessu máli, sem var þó mitt.“

Hún segir að þetta mál hafi enn mikil áhrif á líf hennar. „Mér hefur alltaf verið trúað og ég hef fengið mik­inn stuðn­ing. Mér finnst samt eins og margir haldi að þú farir bara í smá með­ferð og svo sé það búið. En þetta er enn stór hluti af mínu lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár