Sturla slapp með húsið á síðustu stundu

Íslands­banki hætti við nauð­ung­ar­sölu á heim­ili Sturlu Jóns­sonar degi fyrir upp­boð.

Sturla slapp með húsið á síðustu stundu

Sturla Jónsson bif­reið­ar­stjóri heldur húsi sínu í bili eftir að Íslands­banki ákvað að hætta við nauð­ung­ar­sölu á hús­inu hans sem fara átti fram í morgun. Sturla er einn þeirra þekkt­ustu á land­inu sem hafa átt í vand­ræðum vegna fast­eigna­lána, en hann var ein af aðal­per­són­unum í heim­ild­ar­mynd­inni Guð blessi Ísland árið 2009 og fór auk þess í fram­boð til Alþingis með flokk undir hans eigin nafni. 

„Þetta er bara ein orr­usta, þetta stríð er ekki búið. Þetta er reyndar í annað skiptið sem þeir hætta við að selja ofan af mér,“ segir Sturla Jónsson í sam­tali við Stundina. Nauð­ung­ar­sala á heim­ili hans átti að fara fram í dag en Íslands­banki féll frá þeirri kröfu í gær. Sturla stendur í einka­máli gegn Íslands­banka, sem hann rekur sjálfur, en hans helsta mark­mið að eigin sögn er að sjá hvort Íslands­banki geti sannað að bank­inn eigi skuld vegna láns sem Sturla fékk hjá Spari­sjóði vél­stjóra.

„Ég stefndi þeim sjálfum í fyrra­vor til þess að þeir sönn­uðu að þeir ættu skuld­ina. Það var munn­legur mál­flutn­ingur á því í gær­morgun og svo í fram­haldi af því hefur lög­fræð­ingur Íslands­banka sam­band við lög­fræð­ing sem hefur verið að aðstoða mig. Þeir ræða málin eitt­hvað saman í sam­bandi við að semja. Því sam­tali líkur á því að við ætl­uðum að funda síðar. Svo fæ ég bara sím­tal frá sýslu­mann­inum um að það hafi verið fallið frá þessu. Ég var ekki búinn að gera neina kröfu um það,“ segir Sturla.

Stund milli stríða

Hann seg­ist í raun ekki vita hvers vegna Íslands­banki hafi fallið frá kröfu um nauð­ung­ar­sölu á heim­ili hans. „Maður spyr sig hvað þeir voru að spek­úlera. Það er helst sem ég veit um að það kom í ljós að konan mín hafði aldrei skrifað undir sem þing­lýstur eig­andi á skjölin, aldrei sem skuld­ari. Þeir gátu þá alla­vega ekki selt nema helm­ing­inn af hús­inu,“ segir Sturla.

Hann segir að næst sé á döf­inni að sjá hvað komi út úr máli sínu gegn Íslands­banka. „Það er að halda áfram og sjá hvað verður úr, svo þetta er stund milli stríða. Það á að koma nið­ur­staða í málið núna á næstu fjórum vikum og hvað maður gerir svo í fram­hald­inu,“ segir Sturla.    

Segir banka hafa alræðisvald yfir sýslumanni

Sturla segir mál sitt sýna van­rækslu sýslu­manns­emb­ætta sem og vald bank­anna yfir þeim. „Sjáðu hvað þetta gengur langt. Alræð­is­valdið sem bank­arnir hafa virð­ist vera yfir sýslu­manns emb­ættum. Sýslu­maður skoðar gögnin ekki neitt. Það er kveðið skýrt á um það í lög­unum að þeir eigi að ganga úr skugga um að skjölin upp­fylli öll skil­yrði til þess að bjóða ofan af fólki. Sýslu­maður hleypur á eftir bank­anum út og suður og svo hringja þeir bara í sýslu­mann og segja: „nei, við erum hættir við“. Þá spyr maður sig hvað sýslu­manns­emb­ættið sé búið að eyða mörgum vinnu­stundum í kringum þetta mál og við skatt­greið­endur erum að borga allt,“ segir Sturla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár