Gert ráð fyrir að ríkið eigi allt að 40 prósenta hlut í Landsbankanum til frambúðar

Í drögum að upp­færðri eig­anda­stefnu fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki er gert ráð fyrir sölu á stærstum hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum og öllum eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, Arion banka og Spari­sjóði Aust­ur­lands á næstu árum.

Gert ráð fyrir að ríkið eigi allt að 40 prósenta hlut í Landsbankanum til frambúðar

Stefnt er að því að selja stærstan hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum og allan eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, Arion banka og Spari­sjóði Aust­ur­lands á næstu árum. Þetta kemur fram í drögum að upp­færðri eig­anda­stefnu fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki sem birt voru til umsagnar á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í dag. Þar eru meðal ann­ars skil­greind mark­mið um ein­stök fjár­mála­fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins og eign­ar­hald þeirra til fram­tíðar. 

Fram kemur að stefnt sé að því að rík­is­sjóður eigi veru­legan eign­ar­hlut, 34-40%, í Lands­bank­anum til lang­frama í því skyni að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerfi lands­ins og tryggja nauð­syn­lega inn­viði þess. „Eign­ar­hlutur rík­is­ins í bank­anum verði að öðru leyti seldur á næstu árum þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi og jafn­framt verði stefnt að skrán­ingu á hluta­bréfa­markað,“ segir í til­kynn­ing­unni. Eins er kveðið á um „hag­felld og æski­leg skil­yrði“ í umfjöllun um fyr­ir­hug­aða sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka og Arion banka. Hins vegar kemur fram að hlutur rík­is­ins í Spari­sjóði Aust­ur­lands verði seldur „um leið og hægt er“ enda sé ekki mark­mið rík­is­ins að vera eig­andi spari­sjóðs­ins til lang­frama. 

Í drög­unum er tekið fram að eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum verði ekki seldir fyrr en aðstæður á mark­aði séu hag­felldar og ásætt­an­legar, lík­legt sé að kaup­endur séu til staðar og við­kom­andi fyr­ir­tæki til­búið til sölu. Við söl­una skuli stuðlað að því að efla og styrkja sam­keppni á fjár­mála­mark­aði. 

Bent er á að í lögum um Banka­sýslu rík­is­ins hafi­verið gert ráð fyrir að stofn­unin lyki störfum innan fimm ára frá því að hún var sett á fót. Banka­sýslan hafi hins vegar ekki lokið hlut­verki sínu. Líklega verði lagt fram laga­frum­varp um nið­ur­lagn­ingu hennar verði stærri fjár­mála­fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu rík­is­ins seld eða skráð á hluta­bréfa­markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár