Stjórnmálafræðingar furðu lostnir yfir útspili Gunnars Braga

„Bréfið segir aðeins að hún ætli ekki að vinna sam­kvæmt þeirri þings­á­lyktun sem þó er í gildi”

Stjórnmálafræðingar furðu lostnir yfir útspili Gunnars Braga

Fjörugar umræður um ESB-upp­hlaupið hafa farið fram á sam­fé­lags­miðl­unum í dag og ótal stjórn­mála­spek­úlantar lagt orð í belg. Á meðal þeirra eru stjórn­mála­fræð­ing­arnir Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, Birgir Her­manns­son og Ólafur Þ. Harð­ar­son. Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona, segir brýnt að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd láti málið til sín taka, meti hvort um brot á lögum um ráð­herra­á­byrgð sé að ræða og hvort kalla þurfi saman lands­dóm.

Eiríkur er for­stöðu­maður Evr­ópu­fræða­set­urs Háskól­ans á Bifröst og hefur rann­sakað þróun Evr­ópu­sam­bands­ins um ára­bil. Hann skrifar á Facebook:

Það eina sem raun­veru­lega gerð­ist í gær er að rík­is­stjórnin hætti við að aft­ur­kalla aðild­ar­um­sókn­ina að ESB á Alþingi. Það eru hin stóru tíð­indi sem fólk og fjöl­miðlar virð­ast hafa misst af. Að minni hyggju eru hér stór­tíð­indi á ferð. Rík­is­stjórnin sættir sig við að í gildi sé þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem feli henni að sækja um aðild að ESB og standa í þeim við­ræðum. Bréfið segir aðeins að hún ætli ekki að vinna sam­kvæmt þeirri þings­á­lyktun sem þó er í gildi. Hún ætli sér að vera þings­á­lykt­un­ar­brjótur. Ísland er því áfram umsókn­ars­ríki að ESB í þeim skiln­ingi og ætti sam­kvæmt öllu að geta tekið upp þráð­inn komi til valda rík­is­stjórn með slíkan vilja. Aftur: Það að rík­is­stjórnin hafi hætt við aft­ur­köllun á þingi eru hin stóru tíð­indi máls­ins.

Birgir Her­manns­son, aðjúnkt við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, virð­ist vera í svip­uðum hug­leið­ingum.

Bréfa­skriftir rík­is­stjórn­ar­innar til Evr­ópu­sam­bands­ins eru ill­skilj­an­legar, eig­in­lega verri svona dag­inn eftir en í gær. Yfir­lýs­ingar ráð­herra stang­ast hver á aðra þannig að lands­menn bíða eftir því að túlk­un­ar­fræð­ingar ESB kom­ist að ein­hverri nið­ur­stöðu um málið. Alþingi ræðir málið á mánu­dag­inn, ráð­herr­arnir hafa því tíma yfir helg­ina til að und­ir­búa ein­hverja hald­bæra skýr­ingu á inni­haldi bréfs­ins og sam­þykkt rík­is­stjórn­ar­innar frá því á þriðju­dag­inn. Stuðn­ings­menn jafnt sem and­stæð­ingar rík­is­stjórn­ar­innar virð­ast því hvorki skilja hvað bréfið þýðir né fá nokkurn botn í aðferða­fræði rík­is­stjórn­ar­innar.

Ólafur Þór Harð­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands seg­ist velta fyrir sér Íslands­sög­unni í þáskil­daga­tíð:

Var aðild Íslands að Atlands­hafs­banda­lag­inu 1949 ekki sam­þykkt með þings­á­lyktun? Hefði ný rík­is­stjórn [t.d. Vinstri stjórn Hermanns Jón­as­sonar 1956] getað ákveðið að ganga úr NATÓ án þess að bera það undir þingið? 

Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Hreyf­ing­ar­innar er ómyrk í máli og minn­ist á lög um ráð­herra­á­byrgð og lands­dóm. Í gær skrif­aði hún á Facebook:

Nokkur atriði: 
– Ályktun Alþingis er ekki "til­mæli" heldur skipun.
– Ráðherra sem fer gegn álykt­unum Alþingis hefur framið eða alla vega reynt að fremja valda­rán og í raun afnumið þing­ræðið.
– Ef Alþingi gerir ekk­ert í mál­inu er Ísland vart lýð­ræð­is­ríki lengur. 
– Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd verður að láta málið til sín taka og meta hvort um brot á lögum um ráð­herra­á­byrgð er að ræða og hvort kalla skuli saman lands­dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár