Stjórnarliðar vilja að bætt aðstaða á Landspítala greiði götu „fjölbreyttra rekstrarforma“ í heilbrigðisþjónustu

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna er and­vígur einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu sam­kvæmt nýrri könnun. Stefnt er að áfram­hald­andi vexti einka­rek­innar heil­brigð­is­þjón­ustu sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar og meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að bætt aðstaða á Land­spít­ala hjálpi til við að „nýta kosti fjöl­breyttra rekstr­ar­forma í heil­brigð­is­þjón­ustu til að ná mark­miðum um bætta þjón­ustu og aukna afkasta­getu“.

Stjórnarliðar vilja að bætt aðstaða á Landspítala greiði götu „fjölbreyttra rekstrarforma“ í heilbrigðisþjónustu

Stjórn­ar­liðar í fjár­laga­nefnd telja að ný og bætt aðstaða á Land­spít­ala geti greitt götu fjöl­breyttra rekstr­ar­forma í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu. Þannig megi bæta þjón­ustu og auka afkasta­getu kerf­is­ins.

Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Undir það rita Har­ald­ur Bene­dikts­son, for­maður nefnd­ar­innar, Njáll Trausti Frið­berts­son og Páll Magn­ús­son úr Sjálf­stæð­is­flokknum, Hanna Katrín Friðriks­son úr Viðreisn og Theodóra S. Þor­steins­dótt­ir úr Bjartri fram­tíð.

Í álit­inu er vikið að inn­leið­ingu fram­leiðslu­tengdrar fjár­mögn­unar spít­al­ans og bent á að þetta feli í sér „gegn­særri aðferðir við fjár­mögnun þar sem þjón­ustan er kostn­að­ar­greind, skyn­sam­legri úthlutun fjár­magns í heil­brigð­is­kerf­inu, aukin skil­virkni og bætt eft­ir­lit með gæðum og hag­kvæmni þjón­ust­unnar.“

Þá segir í álit­inu að auk fyrr­greindra mark­miða muni „ný og bætt aðstaða á Land­spít­ala og gegnsæ fram­leiðslu­tengd fjár­mögnun að mati meiri hluta nefnd­ar­innar hafa áhrif á að hægt verði að nýta kosti fjöl­breyttra rekstr­ar­forma í heil­brigð­is­þjón­ustu til að ná mark­miðum um bætta þjón­ustu og aukna afkasta­getu. Forsenda þess að slík fjöl­breytni skili ávinn­ingi fyrir not­endur og veit­endur heil­brigð­is­þjón­ust­unnar er að greiðslu­kerfin séu sam­bæri­leg.“

Andstaðan við einkarekna heilbrigðisþjónustu eykst

Í dag birti Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands nið­ur­stöður rann­sóknar Rúnars Vil­hjálms­sonar, pró­fess­ors í félags­fræði við hjúkr­un­ar­fræði­deild Háskóla Íslands, þar sem fram kemur að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna er and­vígur einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu.

And­staðan við einka­rekstur hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum árum og eru nú alls 86% lands­manna þeirrar skoð­unar að rekstur sjúkra­húsa eigi fyrst og fremst að vera á hendi hins opin­bera. Aðeins 1,3% telja að sjúkra­hús eigi fyrst og fremst að vera rekin af einka­að­ilum. 

Und­an­farnar vikur hafa bæði land­lækn­is­emb­ættið og stjórn­endur Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri gagn­rýnt síaukin fjár­fram­lög hins opin­bera vegna þjón­ustu sem einka­reknar lækna­stofur og lækn­inga­fyr­ir­tæki veita meðan sjúkra­hús­unum er skor­inn þröngur stakkur. 

Hafa stjórn­endur Land­spít­al­ans lýst því yfir að sú for­gangs­röðun sem birt­ist í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar bendi til þess að rík­is­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að heil­brigð­is­þjón­usta fær­ist frá sjúkra­húsum og til veit­enda utan sjúkra­húsa, svo sem til einka­stofa sér­fræði­lækna og einka­rek­inna lækn­inga­fyr­ir­tækja. Land­læknir hefur að sama skapi kallað eftir end­ur­skoðun á samn­ingi Sjúkra­trygg­inga við sér­fræði­lækna og bent á að útgjöld rík­is­ins til einka­rekst­urs hafa auk­ist um 40 pró­sent á síð­ast­liðnum árum en umtals­vert minna til opin­bera kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár