Stjórnandi vogunarsjóðs segir tortryggni Íslendinga tilhæfulausa

Financial Times fjallar um kaup vog­un­ar­sjóða á hlut í Arion og greinir jafn­framt frá hug­myndum fjár­mála­ráð­herra um að tengja íslensku krón­una við aðra mynt.

Stjórnandi vogunarsjóðs segir tortryggni Íslendinga tilhæfulausa

Frank Brosens, einn af stofn­endum vog­un­ar­sjóðs­ins Taconic Capital, full­yrðir að tor­tryggni íslensks almenn­ings gagn­vart söl­unni á hlut í Arion banka, sé að miklu leyti til­hæfu­laus. Þetta kemur fram í við­tali við hann sem birt­ist í Financial Times í gær. Tilkynnt var um kaup Taconic á 9,9 pró­senta hlut í Arion banka þann 19. mars en Frank full­yrðir að Taconic sæk­ist hvorki eftir stjórn­ar­setu í Arion banka né áhrifum innan hans. 

Vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital var stofn­aður árið 1999 og með eignir að virði 6 millj­arða doll­ara í stýr­ingu. „Taconic Capital ann­ast stýr­ingu fjár­fest­inga­sjóða sem eru með selj­an­leika í sam­ræmi við fjár­fest­ing­una í Arion banka. Fjár­festar eru einkum stofn­ana­fjár­festar, líf­eyr­is­sjóðir, styrkt­ar­sjóðir og fjár­sterkir ein­stak­lingar,“ segir í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Arion banka þegar greint var frá söl­unni. Frank Brosens starf­aði hjá fjár­málaris­anum Goldman Sachs um ára­bil, en Goldman Sachs kemur einnig að kaup­unum í Arion banka gegnum dótt­ur­fé­lagið ELQ Investors II Ltd.

Í frétt Financial Times er rætt við Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra og haft eftir honum að til skoð­unar sé að tengja íslensku krón­una við annan gjald­miðil. Fram kemur að honum finn­ist „absúrd“ að tengja krón­una við Kana­da­dollar eða norsku krón­una, enda hafi gengi þeirra gjald­miðla fallið meðan íslenska krónan hafi styrkst umtals­vert síð­ustu mán­uði. 

Haft er eftir Benedikt að enn ríki sundr­ung á Íslandi þrátt fyrir upp­gang­inn í efna­hags­líf­inu. Fólk hafi orðið fyrir mik­illi kjara­skerð­ingu og Ísland hafi náð sér á strik efna­hags­lega en ekki félags­lega. „Fólk er enn reitt og tor­tryggið gagn­vart við­skiptum, bönkum og stjórn­mála­mönnum,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár