Sjö stjórnarþingmenn og einn ráðherra tóku þátt í umræðum um „langstærsta málið“

Umræðu um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar er lokið en fáir stjórn­ar­liðar lögðu orð í belg.

Sjö stjórnarþingmenn og einn ráðherra tóku þátt í umræðum um „langstærsta málið“

Umræðu um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar lauk í kvöld en Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lýst stefn­unni sem „langstærsta mál­inu“ sem rík­is­stjórnin leggur fram á yfir­stand­andi þingi.

Benedikt er hins vegar eini ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem hefur séð ástæðu til að tjá sig um fjár­mála­stefn­una á Alþingi. 

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa bent á að fjár­mála­stefnan varði mál­efna­svið allra ráðu­neyta. Því sé eðli­legt að ráð­herrar taki þátt í umræðum um hana eða séu að minnsta kosti við­staddir meðan umræðan fer fram. 

Í hinni lög­bundnu fjár­mála­stefnu er fjár­málum hins opin­bera mark­aður rammi til næstu fimm ára. „Ég hef talað um að lík­lega sé fjár­mála­stefnan langstærsta málið sem rík­is­stjórnin leggur fram núna í vor, en hún vekur litla athygli því að hún er frekar ,,leið­in­legt“ mál. Hún er ramm­inn utan um rík­is­út­gjöld og í henni boð­aði ég mikla nið­ur­greiðslu skulda og auk­inn afgang á fjár­lögum næstu árin,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son í Facebook-færslu þegar hann kynnti fjár­mála­stefn­una í febr­úar. 

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt fjár­mála­stefnu Bene­dikts harð­lega og hvatt til þess að brugð­ist sé við athuga­semdum fjár­mála­ráðs áður en stefnan er sam­þykkt.

Auk Bene­dikts hafa aðeins sjö þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans blandað sér í umræð­una um fjár­mála­stefn­una. Þetta eru þau Pawel Bartoszek, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Haraldur Bene­dikts­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Hanna Katrín Frið­riks­son, Theodóra S. Þor­steins­dóttir og Hildur Sverr­is­dóttir.

Jafn­framt lagði Bryndís Har­alds­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, orð í belg þegar rætt var um fund­ar­stjórn for­seta til að benda þing­mönnum á að eflaust væru sumir stjórn­ar­liðar að horfa á umræð­urnar í sjón­varp­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár