Sjálfstæðismenn ætlast til þess að fjármálaáætlun Benedikts taki breytingum

Ekki er meiri­hluti fyrir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi.

Sjálfstæðismenn ætlast til þess að fjármálaáætlun Benedikts taki breytingum

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru óánægðir með ýmis atriði í fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra og vilja að hún taki breyt­ingum í með­förum þings­ins. Um er að ræða stærsta málið sem Benedikt hefur lagt fram frá því að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var mynduð en eins og greint var frá í gær er ekki meiri­hluti fyrir áætl­un­inni á Alþingi nema áform um skatta­hækk­anir á ferða­þjón­ustu verði end­ur­skoðuð.

Tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem báðir tengj­ast fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki sam­þykkja áætl­un­ina að óbreyttu. Greint var frá þessu í kvöld­fréttum RÚV í gær, en nú er einnig orðið ljóst að Haraldur Bene­dikts­son, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að fjár­mála­á­ætl­unin taki breyt­ingum og ýmis atriði verði end­ur­skoðuð.

Þegar rík­is­fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var sam­þykkt í fyrra voru engar efn­is­legar breyt­ingar gerðar á henni í með­förum Alþingis. Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sat hjá þegar greidd voru atkvæði um áætl­un­ina og gaf þá ástæðu að þar væri ekki hlúð nægi­lega að barna­fjöl­skyldum, öldruðum og öryrkjum. Með þessu upp­skar hún gríð­ar­lega hörð við­brögð frá þunga­vigt­ar­fólki í Sjálf­stæð­is­flokknum og líkti Bjarni Bene­dikts­son fram­göngu hennar við hegðun leik­skóla­barns. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár