Segir frumvarp um „misnotkun“ stera ekki fjalla „að neinu leyti“ um þá sem neyta stera

Ster­a­frum­varp Óttars Proppé verður lagt fram í mars.

Segir frumvarp um „misnotkun“ stera ekki fjalla „að neinu leyti“ um þá sem neyta stera

Fyr­ir­hugað frum­varp um mis­notkun stera mun ekki fjalla „að neinu leyti“ um þá sem nota stera. Þetta er haft eftir Óttari Proppé heil­brigð­is­ráð­herra á Vísi.is. 

Eins og Stundin greindi frá fyrr í vik­unni hyggst ráð­herr­ann leggja fram „frum­varp til laga um mis­notkun vefja­auk­andi efna og stera“. Þetta kemur skýrt fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar og er þar full­yrt að nauð­syn­legt sé að leggja fram frum­varp sem spornar við slíkri mis­notkun. Þá kemur fram að höfð verði hlið­sjón af sam­bæri­legri danskri lög­gjöf en þar í landi er tekið hart á stera­notkun ein­stak­linga.

Á Vísi.is er haft eftir ótt­ari að ster­a­frum­varpið sé í vinnslu í ráðu­neyt­inu. „Það fjallar ekki að neinu leyti um þá sem neyta umræddra efna. Til­gangur þess er að sporna við dreif­ingu og sölu þess­ara efna og sömu­leiðis ólög­legri fram­leiðslu og inn­flutn­ingi þeirra. Samráð verður haft við breiðan hóp hags­muna­að­ila við smíði frum­varps­ins og er stefnt að því að birta drög að frum­varp­inu á vef ráðu­neyt­is­ins til umsagnar áður en það verður lagt fram á Alþingi.“ Þá kemur fram að toll­stjóri og lög­reglan hafi óskað eftir því að lög­festar verði reglur á þessu sviði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár