Ráðherra segir aukið vægi kynjasjónarmiða við skipan dómara „ekki til velfarnaðar fallið“

Þing­maður Við­reisnar telur að skipan dóm­ara við Lands­rétt feli í sér ein­stakt tæki­færi til að jafna kynja­hlut­föll. Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra er ósam­mála slíkri nálgun.

Ráðherra segir aukið vægi kynjasjónarmiða við skipan dómara „ekki til velfarnaðar fallið“

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra er á móti því að litið sé sér­stak­lega til kynja­sjón­ar­miða þegar skipað er í dóm­ara­stöður. Ekki verða gerðar neinar ráð­staf­anir til að gefa slíkum sjón­ar­miðum vægi við hæfn­is­mat og skipan í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, nýtt milli­dóms­stig. Þetta kom fram í svörum ráð­herra þegar rætt var um breyt­ingar á dóm­stóla­lögum þann 7. febr­úar síð­ast­lið­inn. „Tel ég ekki til vel­farn­aðar fallið almennt að hugsa skipan í jafn mik­il­væg emb­ætti og dóm­ara­störf eru með þeim hætti sem fyr­ir­spyrj­andi er að kalla eftir að mögu­lega sé gert, ef ég skil hann rétt, að litið sé sér­stak­lega til kynja­sjón­ar­miða,“ sagði Sigríður. 

Í umræð­unum lagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, til að sett yrðu sér­stök ákvæði um skipan dóm­ara sem fælu í sér að auk almennra hæf­is­skil­yrða yrði einnig horft sér­stak­lega til sjón­ar­miða um jafn­rétti kynj­anna. „Til­gang­ur­inn væri auð­vitað að vinna mark­visst að því að jafna kynja­hlut­föll meðal dóm­ara. Hér er nýr dóm­stóll í fæð­ingu, 15 dóm­arar sem koma þar til starfa. Manni sýn­ist að hér sé ein­stakt tæki­færi til að ná jöfn­uði þegar þessi nýi dóm­stóll verður settur á lagg­irnar,“ sagði hann. 

Sigríður svar­aði á þá leið að mik­il­vægt væri að skipan hins nýja dóm­stóls tæk­ist vel til með hlið­sjón af alls kyns sjón­ar­miðum, og þá væri eflaust einnig litið til kynja­sjón­ar­miða. „Ég er ekki tals­maður þess að menn bindi það í lög að velja eigi ein­stak­ling eftir kyni fremur en hæfni. Ég hef fulla trú á því að konur jafnt sem karlar upp­fylli öll þau hæf­is­skil­yrði sem eðli­legt er að leggja til grund­vallar við skipan dóm­ara.“ Í umræð­unum árétt­aði Sigríður að henni þætti ekki til vel­farn­aðar fallið að líta sér­stak­lega til kynja­sjón­ar­miða við skipan dóm­ara. Þá sagð­ist hún ekki telja slíka nálgun vera jafn­rétt­isum­ræð­unni til fram­dráttar. „Ég leggst almennt gegn kynja­kvótum,“ sagði hún. 

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar er lögð áhersla á kynja­jafn­rétti. „Jafn­rétti í víð­tækri merk­ingu er órjúf­an­legur þáttur í rétt­látu og sann­gjörnu sam­fé­lagi,“ segir í kafla stjórn­ar­sátt­mál­ans um jafn­rétti og fjöl­skyldu­mál. Í dag er aðeins ein kona skipuð sem dóm­ari við Hæsta­rétt á móti níu körlum og hafa stjórn­endur dóm­stól­anna talið sig óbundna af jafn­rétt­islögum þegar til­nefnt hefur verið í dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um stöðu dóm­ara. Átján karlar og fimm konur hafa verið kölluð til starfa sem vara­dóm­arar í Hæsta­rétti und­an­farin þrjú ár. 

Áður hefur Sigríður Andersen lýst yfir efa­semdum um að það fyr­ir­finn­ist kyn­bundið mis­rétti á launa­mark­aði. Karlar afli almennt meiri tekna en þeir vinni meira á sama tíma og konur fái fleiri „dýr­mætar stundir með börnum sínum“. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, hefur sagt að ummælin séu ótæk og Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður sama flokks, tekið undir. Þá hefur Heiða Björg Hilm­is­dóttir, nýkjör­inn vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kallað eftir því að að dóms­mála­ráð­herra segi af sér eða að þing­menn lýsi van­trausti á hana. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár