Segir að endurkjör Benedikts yrði skólanum til háðungar

Ungur list­fræði­nemi gagn­rýnir fjár­mála­ráð­herra fyrir að vilja gegna for­mennsku í Holl­vina­fé­lagi MR meðan hann sker niður til fram­halds­skóla og býður sig fram á móti honum.

Segir að endurkjör Benedikts yrði skólanum til háðungar

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur fengið mót­fram­boð til for­manns hjá Holl­vina­fé­lagi Mennta­skól­ans í Reykja­vík. For­manns­kjörið fer fram næstu helgi, en eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku sæk­ist Benedikt eftir end­ur­kjöri. Hefur hann gegnt for­manns­hlut­verk­inu allt frá stofnun félags­ins.

Holl­vina­fé­lagið hefur gagn­rýnt að MR fái „lægri fram­lög en sam­bæri­legir skólar“ í fjár­lögum, en næsta haust kemur það í hlut Bene­dikts sjálfs að leggja fram frum­varp til fjár­laga. 

„Það verður að telj­ast afar óheppi­legt að fjár­mála­ráð­herra gegni for­manns­hlut­verki í holl­vina­fé­lagi stofn­unar sem hann ákvarðar sjálfur fjár­fram­lög til. Raunar yrði það Mennta­skól­anum í Reykja­vík til háð­ungar ef sami maður og stendur að stór­felldum nið­ur­skurði til fram­halds­skóla yrði áfram and­lit holl­vina­fé­lags skól­ans,“ skrifar Hrafn­kell Hringur Helgason, list­fræði­nemi sem býður sig fram til for­manns Holl­vina­fé­lags­ins gegn fjár­mála­ráð­herra.

Hrafn­kell Hringur sendi fjöl­miðlum frétta­til­kynn­ingu í kvöld og birti jafn­framt yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann gagn­rýnir fram­boð Bene­dikts harð­lega og til­kynnir um eigið fram­boð. Hringur segir að sér þyki fram­boð Bene­dikts afar „tor­kenni­legt“ og að hann telji sjálfan sig betur til þess fall­inn að skapa frið um störf Holl­vina­fé­lags­ins. Óeðli­legt sé að fjár­mála­ráð­herra lands­ins gegni hlut­verk­inu.

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem Benedikt Jóhann­es­son kynnti í byrjun apríl, verður dregið veru­lega úr fjár­fram­lögum til fram­halds­skóla­stigs­ins næstu fimm árin. Strax á næsta ári mun mennta­kerfið sæta fjór­falt strang­ari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar. 

„Hverju sætir hún, þessi æpandi þögn Holl­vina­fé­lags MR um nið­ur­skurð Bene­dikts til fram­halds­skóla?“

„Brátt eru liðnir tveir mán­uðir síðan fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar var kynnt almenn­ingi. Stjórn­endur fram­halds­skóla og fram­halds­skóla­kenn­arar hafa gert alvar­legar athuga­semdir við áætl­un­ina. Hins vegar hefur enn ekki heyrst múkk frá Holl­vina­fé­lagi MR,“ skrifar Hrafn­kell Hringur í fram­boðstil­kynn­ingu sinni. „Hverju sætir hún, þessi æpandi þögn Holl­vina­fé­lags MR um nið­ur­skurð Bene­dikts til fram­halds­skóla? Getur hugs­ast að þögnin hafi eitt­hvað með það að gera að Benedikt er sjálfur for­maður Holl­vina­fé­lags­ins?“

Hrafn­kell segir að sem for­maður Holl­vina­fé­lags­ins muni hann leggja höf­uð­á­herslu á að berj­ast af hörku gegn fjársvelti­stefnu Bene­dikts Jóhann­es­sonar. „Ég skora á alla fyrr­ver­andi MR-inga sem eru ósáttir við fjársvelti­stefnu Bene­dikts Jóhann­es­sonar að fjöl­menna á aðal­fund Holl­vina­fé­lags­ins sem fram fer laug­ar­dag­inn 27. maí kl. 13.00 í sal Mennta­skól­ans í Reykja­vík,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár