Samningur við Frumherja dæmi um skynsamlega útvistun eftirlitsverkefnis

„Það kann að vera rétt að útvista fleiri slíkum verk­efnum,“ segir í svari Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur iðn­að­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar.

Samningur við Frumherja dæmi um skynsamlega útvistun eftirlitsverkefnis

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, telur að útvistun ein­stakra eft­ir­lits­verk­efna geti verið skyn­sam­leg, svo sem í til­vikum þar sem hreinum hlut­lægum reglum er fylgt og ekki er svig­rúm til hug­lægs mats. Útvistun lög­gild­ingar á mæli­tækjum til fyr­ir­tæk­is­ins Frum­herja hafi verið dæmi um slíkt.

Þetta kemur fram í svari hennar við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar, for­manns efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, sem spurði alla ráð­herra hvort hvort þeir hefðu látið kanna mögu­leik­ann á útvistun eft­ir­lits­verk­efna til einka­að­ila. Í svari ráðu­neyt­is­ins er vísað sér­stak­lega til þess að Neyt­enda­stofa hafi útvi­stað þjón­ustu við lög­gild­ingu mæli­tækja, svo sem voga og elds­neyt­is­dælna, til fyr­ir­tæk­is­ins Frum­herja.  

„Ráðherra telur að útvistun ein­stakra eft­ir­lits­verk­efna geti verið skyn­sam­leg í ákveðnum til­vikum en það þarf að skoða vel og leggja mat á hvert til­vik fyrir sig. Slík útvistun eft­ir­lits­verk­efna getur verið skyn­sam­leg í þeim til­vikum þar sem um hreinar hlut­lægar reglur er að ræða þar sem ekki er svig­rúm til hug­lægs mats. Dæmi um útvistun slíkra eft­ir­lits­verk­efna er lög­gild­ing mæli­tækja sem er á ábyrgð Neyt­enda­stofu,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár