Ráðherra: Stundum mikilvægt að beita sér fyrir breytingum sem kjósendur er á móti

„Stundum þarf bara að taka póli­tíska slagi sem kjör­inn full­trúi. Frjálst útvarp, Göngin & sala Lands­sím­ans hefði verið fellt í þjóð­ar­at­kvæði,“ skrifar Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra í umræðum um áfeng­is­frum­varpið.

Ráðherra: Stundum mikilvægt að beita sér fyrir breytingum sem kjósendur er á móti

„Stundum þarf bara að taka póli­tíska slagi sem kjör­inn full­trúi. Frjálst útvarp, Göngin & sala Lands­sím­ans hefði verið fellt í þjóð­ar­at­kvæði,“ skrifar Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, á Twitter.

Tilefnið er umræða um ákall Birgittu Jóns­dóttur, þing­konu Pírata, um að frum­varp um breyt­ingu á smá­sölu áfeng­is verði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata lögðu fram frum­varp í síð­ustu viku þar sem lagt er til að einka­leyfi Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins á smá­sölu áfengis verði aflagt og smá­sala gefin frjáls að ákveðnu marki.

„Það líður ekki sá dag­ur sem ég hugsa ekki um það en alltaf skal það vera fyrsta af­vega­leið­ing­in að ræða enda­laust um sama frum­varp Sjálf­stæðs­flokks­ins um bús í búðir. Ég legg til að ein­hver skelli í und­ir­skrift­arlista til þing­manna um að skella þessu bara í þjóðar­at­kvæði,“ skrif­aði Birgitta á Face­book í gær. 

Kristinn Ingi Jónsson, blaða­maður á Morg­un­blað­inu, bregst við orðum Birgittu með þeim orðum að hug­myndin sé vond. „Frels­is­rétt­indi borg­ar­anna eru algild og eiga ekki að vera háð vilja meiri­hluta þjóðar hverju sinni,“ skrifar hann. 

Þórdís Kolbrún, sem virð­ist styðja áfeng­is­frum­varpið, tekur undir með Kristni og segir mik­il­vægt að kjörnir full­trúar beiti sér stundum fyrir málum sem kjós­endur eru á móti.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár