Nýr utanríkisráðherra kannast ekki við kosningaloforð Framsóknarflokksins

Lilja Alfreðs­dóttir, nýr utan­rík­is­ráð­herra á vegum Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði á Alþingi að flokk­ur­inn hefði ekki lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, þótt for­maður flokks­ins hafi ítrekað boðað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Nýr utanríkisráðherra kannast ekki við kosningaloforð Framsóknarflokksins
Lilja Alfreðs­dóttir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­nefndi hana sem ráð­herra sam­kvæmt reglum flokks­ins, við brott­hvarf sitt úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Lilja er dóttir Alfreðs Þor­steins­sonar, borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins til margra ára. Mynd: Pressphotos

Lilja Alfreðs­dóttir, nýr utan­rík­is­ráð­herra, hélt því fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í gær að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði aldrei lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. 

„Kosn­ingar um þetta mál eru ekki ráð­gerðar og ég sé ekki að það muni gef­ast tími til þess. Ég kann­ast heldur ekki við að sá flokkur sem ég er að repres­entera hér hafi lofað slíkum kosn­ingum,“ sagði Lilja.

Sigmundur ítrekaði vilja til þjóðaratkvæðis

Lilja tók við emb­ætti eftir brott­hvarf Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar úr for­sæt­is­ráð­herra­stóli, sem stað­inn var að ósann­indum í tengslum við aflands­fé­lag hans og eig­in­konu hans og kröfur í þrotabú bank­anna, en hann leiddi ákvarð­ana­töku og stefnu­mótum gagn­vart kröfu­höf­unum og þar með sjálfum sér og eig­in­konu sinni, án þess að láta uppi um það.

„Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“

Sig­mundur Davíð ítrek­aði hins vegar marg­sinnis í kosn­inga­bar­átt­unni 2013 og eftir hana vilja sinn til að halda slíka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Sig­mundur var spurður á blaða­manna­fundi við myndun nýrrar rík­is­stjórnar hvort hægt væri að treysta lof­orð­inu.

Getum við treyst því að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi við­ræður?

Sig­mundur Davíð: „Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en menn hljóta við ákvörðun um tíma­setn­ingu slíks að taka inn í reikn­ing­inn aðstæður.“

Sagði stefnuna skýra

Lilja sagði einnig á þingi að stefna stjórn­ar­flokk­anna hafi verið skýr. Flokk­arnir höfðu ekki á stefnu­skránni að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, en full­trúar og leið­togar beggja þeirra tóku ítrekað fram að þeir vildu halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort aðild­ar­við­ræð­unum yrði fylgt áfram eða ekki.

Söfnun mynd­banda: Lára Hanna Ein­ars­dóttir.

„Stefna stjórn­ar­flokk­anna var mjög skýr fyrir kosn­ingar,“ sagði Lilja í gær.

„Ég hef alltaf gert ráð fyrir því að þessi atkvæða­greiðsla fari fram,“ sagði Sig­mundur í kosn­inga­sjón­varpi Stöðvar 2 í apríl 2013.

„Ég hef margoft tekið fram að mér þætti mjög gott og æski­legt ef hægt væri að halda þessa þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, leið­togi hins stjórn­ar­flokks­ins í sömu kapp­ræðum. „Í Evr­ópu­sam­bands­mál­inu munum við standa við það sem við höfum ályktað, um að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla,“ sagði Bjarni einnig í við­tali við Stöð 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár