Nýr mannréttindaráðherra ritstýrði vefriti sem hæddist að flóttafólki og mannréttindaumræðu

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar, var í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans þegar þar birt­ust harð­orð skrif um mann­rétt­inda­mál, gjaf­sóknir hins opin­bera og „grát­stönt“ flótta­fólks.

Nýr mannréttindaráðherra ritstýrði vefriti sem hæddist að flóttafólki og mannréttindaumræðu
Nýr dóms­mála­ráð­herra Stjórn­mála­fer­ill Sigríðar Andersen er sam­tvinn­aður þeim meg­in­við­horfum sem viðruð hafa verið á vefnum Andriki.is. Mynd: xd.is

Sigríður Á. Andersen, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er dóms­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar og mun meðal ann­ars fara með mál­efni mann­rétt­inda og mann­rétt­inda­sátt­mála sam­kvæmt for­seta­úr­skurði. Hún var um ára­bil einn af rit­stjórum hægri­s­inn­aðs vefrits sem hædd­ist að „mann­rétt­inda­málum“ fyrir dóm­stólum, ól á tor­tryggni gagn­vart flótta­fólki og gagn­rýndi að ríkið veitti of mörgum gjaf­sókn. 

Sigríður hefur látið mikið að sér kveða í þjóð­mála­um­ræð­unni um ára­bil, bæði sem þing­kona, pistla­höf­undur og sem einn af rit­stjórum vefrits­ins Vef­þjóð­vilj­ans, Andríki.is. Í frétta­til­kynn­ingu á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er sér­stak­lega tekið fram að Sigríður hafi setið í rit­stjórn­inni á tíma­bil­inu 1995 til 2006. Þegar Sigríður bauð sig fram í próf­kjörum hjá Sjálf­stæð­is­flokknum árið 2006 birt­ist pist­ill á Andríki þar sem fram­boði hennar voru gerð skil „til upp­lýs­ingar þeim sem kynni að þykja óhætt að inn í þing­um­ræður bær­ust þau meg­in­sjón­ar­mið sem kynnt hafa verið á þessum vett­vangi und­an­farin ár“. Þannig virð­ist stjórn­mála­fer­ill Sigríðar sam­tvinn­aður þeim við­horfum sem viðruð hafa verið á vefnum Andríki. 

„Jólatrésskrautið“ sem kallað er mannréttindi

Vefritið er enn starf­rækt og beitir sér fyrir harðri mark­aðs­hyggju og íhalds­semi í efna­hags­málum. Á allra síð­ustu árum hefur vefritið meðal ann­ars gagn­rýnt druslu­göng­una harð­lega, hvatt til þess að mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar verði lagt niður og hæðst að þeim sem vilja að lög­gjaf­inn leggi stein í götu vændis. 

Á þeim tíma sem Sigríður Andersen til­heyrði sex manna rit­stjórn síð­unnar birt­ist þar pist­ill um að mann­rétt­inda­um­ræðan á Vest­ur­löndum hefði „þynnst veru­lega“. Grund­vall­ar­mann­rétt­indi væru vel tryggð og nú væri fólk farið að kalla hvað sem er mann­rétt­indi. „Íslend­ingar þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af mann­rétt­inda­málum enda eru mann­rétt­indi að mestu leyti vel tryggð á Íslandi – og er þá ekki aðeins átt við grund­vall­ar­mann­rétt­indi heldur líka allt jóla­trés­skrautið sem farið er að kalla mann­rétt­indi,“ sagði í pistl­inum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár