Ný ríkisstjórn ætlar að herða reglur um steranotkun einstaklinga

Óttarr Proppé ætlar að leggja fram frum­varp til laga um mis­notkun vefja­auk­andi efna og stera.

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartrar fram­tíðar, ætlar að leggja fram frum­varp til laga um mis­notkun vefja­auk­andi efna og stera.

Þetta kemur fram í þing­mála­skrá nýrrar rík­is­stjórnar sem birt­ist á vef Alþingis í kvöld. Stefnt er að því að frum­varpið komi fram í mars á þessu ári.

Fullyrt er að nauð­syn­legt sé að leggja fram frum­varp sem spornar við mis­notkun á vefja­auk­andi efnum og sterum. „Engin lög eru í gildi sem taka á mis­notkun vefja­auk­andi efna og stera, en óskað hefur verið eftir af ýmsum aðilum að lög­festar verði reglur á þessu sviði,“ segir í þing­mála­skránni auk þess sem fram kemur að höfð verði hlið­sjón af sam­bæri­legri danskri lög­gjöf.

Í Danmörku eru í gildi sér­stök lög um stera og er hámarks­refs­ing fyrir vörslu þeirra tveggja ára fang­elsi. Sterar falla undir lyfja­lög á Íslandi og varðar varsla á þeim fjár­sekt­um en ekki fang­elsis­vist. Þetta gæti breyst með nýjum lögum. Reglu­verk­inu er m.a. ætlað að taka á hvers kyns mis­notkun, fram­leiðslu, inn­flutn­ingi og dreif­ingu á þessum efnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár