Náttúrupassi, ívilnanir og aðstoðarmenn í kosningaham

Staða Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er veik­ari en nokkru sinni fyrr. Hvert vand­ræða­málið á fætur öðru hefur sett svip á ráð­herra­feril hennar. Eftir að til­kynnt var um haust­kosn­ingar réði ráð­herr­ann sér nýjan aðstoð­ar­mann sem lætur ekki sitt eftir liggja í kynn­ing­ar­málum fyrir próf­kjörs­bar­áttu Ragn­heiðar Elínar.

Náttúrupassi, ívilnanir og aðstoðarmenn í kosningaham
Umdeildur ráð­herra Ragn­heiður Elín hefur ekki átt sjö dag­ana sæla sem ráð­herra en alls óvíst er hvort hún muni leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi nú í haust.

Tals­verðrar óánægju gætir meðal áhrifa­fólks og trún­að­ar­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi vegna emb­ætt­is­verka Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Ragn­heiður sæk­ist eftir end­ur­kjöri sem odd­viti kjör­dæm­is­ins og hafa aðstoð­ar­menn hennar komið að kynn­ingu og und­ir­bún­ingi próf­kjörs­bar­átt­unnar. Þetta leggst illa í sjálf­stæð­is­menn sem Stundin hefur rætt við. „Það á ekki hvaða fram­bjóð­andi sem er kost á að ráða til sín kosn­inga­stjóra á kostnað rík­is­ins,“ segir einn af við­mæl­endum blaðs­ins. 

Ragn­heiður Elín var framan af með einn aðstoð­ar­mann en skömmu eftir að ljóst varð að kosn­ingar yrðu haldnar að hausti réði hún sér annan, Evu Magn­ús­dóttur, sem hóf störf 2. júní síð­ast­lið­inn, sama dag og síð­asti þing­fundur fyrir sum­ar­frí fór fram. Mörgum flokks­fé­lögum Ragn­heiðar Elínar finnst ráðn­ing nýs aðstoð­ar­manns svo stuttu fyrir kosn­ingar á gráu svæði. Ekki síst vegna þess að dæmi eru um að aðstoð­ar­menn­irnir hafi í sumar staðið í kynn­ing­ar­málum fyrir próf­kjör ráð­herr­ans, meðal ann­ars á lok­uðum en fjöl­mennum Facebook-hópi trún­að­ar­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár