Landhreinsun að afhjúpa svikamiðil

Frú Lára Ágústs­dóttir var fyrir 75 árum dæmd fyrir að halda mið­ils­fundi, enda lodd­ari. Lög­reglu­maður kom upp um hana en Halldór Laxness fór á kostum á hennar kostnað.

Landhreinsun að afhjúpa svikamiðil
Frú Lára Hér má sjá mið­il­inn í ham. Takið eftir gard­ín­unni.

Í kjöl­far síð­asta þáttar af Brestum fór af stað umræða um miðla og sitt sýnd­ist hverjum um ágæti eða lodd­ara­skap þeirra. Fyrir 75 árum var öldin þó önnur en þá voru miðlar dæmdir í fang­elsi á Íslandi. Þann 26. októ­ber árið 1940 véku fréttir af heim­styrj­öld­inni af for­síðu Alþýðu­blaðs­ins fyrir þann merka atburð að „frú Lára“ svika­mið­ill væri komin í gæslu­varð­hald ásamt hjálp­ar­mönnum sínum. Í dag koma blaða­út­gef­endur miðlum fremur til varnar en að segja frá gæslu­varð­haldi þeirra á for­síðum sínum.

„Frú Lára Ágúst­dóttir, sem alþekkt er hér í bænum og víðar af hinum svoköll­uðu mið­ils­fundum sínum, liggur nú í Lands­spít­al­anum og er þar í gæzluvarðhaldi lög­regl­unnar. Hefur hún nú, eftir all­ná­kvæma rann­sókn lög­regl­unnar, játað að hafa framið svik í sam­bandi við hina svoköll­uðu anda­fundi sína, er hún hefir haft fjölda mörg und­an­farin ár og selt aðgang að,“ segir í frétt Alþýðu­blaðs­ins. Frú Lára var síðar dæmd fyrir svik sín.

Þórhallur miðill
Þór­hallur mið­ill Björn Ingi Hrafns­son kom Þórhalli til varnar á dög­unum og sagði það ekk­ert trufla sig að ein­hverjir telji lítið vit í dul­rænum hæfi­leikum Þórhalls.
 

Þrjár krónur á „líkamningafund“

Samkvæmt Alþýðu­blað­inu hafði frú Lára tals­verðar tekjur af mið­ils­fundum sínum og var talið að hún hafi gabbað þús­undir Íslend­inga. Aðgangs­miði að „lík­amn­inga­fundum“ kostað þrjár krónur. „Það, sem gerð­ist á fund­unum var þetta: Lík­amn­inga­fyr­ir­brigði, afholdg­un­ar­fyr­ir­brigði, skygni­lýs­ingar, útfrymi, sam­töl, bréfa­skriftir o. fl., allt „yfir­nátt­úr­legt“ með frú Láru sem miðil og ýmsa stjórn­endur,“ segir í frétt blaðs­ins. Frétt­inni lauk á þeim orðum að það væri land­hreinsun að svik frú Láru hafi loks­ins verið afhjúpuð.

Gardínan kom upp um hana

Að sögn sömu fréttar var það Sigurður Magn­ús­son, kenn­ari og lög­reglu­maður, sem afhjúpaði frú Láru en hún hafði talið honum trú um að hún væri í sam­bandi við látna konu hans. „Rann­sak­aði hann lengi allar aðstæður og var loks tal­inn vera orð­inn svo „góður fund­ar­maður“, að hann fékk að sitja í stól nr. 1, þ.e. næsta stól frú­ar­innar, þegar á fundi stóð,“ segir frétt­inni. Sigurður laum­aði sér inn í her­bergið fyrir einn fund og fann þar gard­ínur í skáp. Eftir fund­inn, sem var fremur ómerki­legur, opn­aði Sigurður skáp­inn og fann þá þessa sömu gard­ínu á öðrum stað. Þótti sannað að þessi gard­ína hafi verið notuð í svikin. Kristján nokkur bólstr­ari í London við­ur­kenndi síðar að hafa útvegað frú Láru gard­ín­una.

Halldór Laxness
Halldór Laxness Nóbelskáldið gerði óspart grín að þeim sem trúa á miðla í grein í Tímariti Máls og menn­ingar.

„Rændir sambandi við annað líf með lögregluvaldi“

Mál frú Láru vakti svo mikla athygli á sínum tíma að nóbelskáldið Halldór Laxness skrif­aði pistil í Tímarit Máls og menn­ingar um Láru og „anda­trú­ar­menn“. „Mikið upp­lost varð nýlega í höf­uð­staðnum kringum anda­trú­arkven­prest alþekktan, „séra Láru", sem allt í einu var „staðin að svikum", eins og blöðin komust að orði, og urðu mála­lyktir að flokkur sá, sem hún hafði um sig í Bjarna­borg, var rændur sam­bandi við annað líf með lög­reglu­valdi, a.m.k. um stund­ar­sakir. Mun slík með­ferð á trúflokkum vera fátíð hér á landi og tæp­lega með­mæla­verð - jafn­vel í augum þeirra, sem setja ann­ars anda­trú til­tölu­lega lágt meðal kristi­legra sér­trú­ar­flokka. Því hvemig á lög­regla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sann­leik­ur­inn endar og föls­unin byrjar í trú­ar­brögð­unum?“ skrif­aði Halldór.

„Því hvernig á lög­regla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sann­leik­ur­inn endar og föls­unin byrjar í trú­ar­brögð­unum?“

Geðbilaðir sem fara miðilsfundi

Halldór Laxness hélt áfram í grein sinni og sagði miðla vera ýmist lærða heimsk­ingja eða trufluð gáfu­menn. „Þekktur geð­veikra­læknir kvað hafa haft þau orð í gamni og alvöru um anda­trú, að ekki séu aðeins allir miðlar geð­bil­aðir, heldur séu einnig allir, sem hafa til­hneig­ingu til að fara á mið­ils­fund að ein­hverju leyti geð­bil­aðir líka. Í ljósi þeirrar þekk­ingar, sem nútím­inn á yfir að ráða, má nátt­úr­lega segja eitt­hvað svipað um allan trúar­á­huga á okkar dögum, þ.e.a.s. ef hann er ekki algerð venju­trú. En um anda­trú má hik­laust full­yrða, að þótt iðk­anir hennar séu að sínu leyti ekki sjúk­legri en t.d. hjá „holy roll­ers" (Fíla­delf­íu­mönnum?), þá gerir þessi trúflokkur sig alveg sér­stak­lega hvim­leiðan vegna þess mold­viðris af upp­gerð­ar­vís­indum og „fræði­legum dellu­bókum, sem heið­ar­legir, lærðir heimsk­ingjar eða trufl­aðir gáfu­menn þyrla lát­laust kringum þetta klús­aða sam­bland af brjál­semi, prakk­ara­skap og fimmta­flokks lodd­ara­listum, sem nefnt er mið­ils­starf­semi,“ skrif­aði Halldór Laxness. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár