Krefjast aðgangs að gögnum sem ráðherra telur „spilla fyrir hugmyndafræðinni“

Jón Þór Ólafsson og Björn Leví Gunn­ars­son, þing­menn Pírata, kalla eftir upp­lýs­ingum frá öllum ráðu­neytum um tekjur og gjöld mál­efna­sviða og áætl­aða þróun útgjalda sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Krefjast aðgangs að gögnum sem ráðherra telur „spilla fyrir hugmyndafræðinni“

Jón Þór Ólafsson og Björn Leví Gunn­ars­son, þing­menn Pírata, hafa kallað eftir upp­lýs­ingum frá öllum ráðu­neytum um tekjur og gjöld mál­efna­sviða og áætl­aða þróun útgjalda sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Hefur Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, full­yrt að með því að byggja á gögn­unum í umræðum um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar væri í raun verið að „skemma ferlið með fjár­mála­á­ætlun“ og „spilla fyrir hug­mynda­fræð­inni.“

Jón Þór fjall­aði um mik­il­vægi þess að fá upp­lýs­ing­arnar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma þann 9. maí síð­ast­lið­inn og furð­aði sig á að hvorki þing­menn né fasta­nefndir hefðu fengið aðgang að gögn­unum. „Án þess­ara upp­lýs­inga er ómögu­legt að taka upp­lýsta ákvörðun um hvort fjár­mála­á­ætlun sé far­sæl fyrir lands­menn og hvort vel sé farið með skattfé. Tölurnar liggja fyrir en við fáum ekki aðgang að þeim við þessa ákvarð­ana­töku,“ sagði hann. 

Benedikt svar­aði því til að ráðu­neytin legðu fram til­lögur um ramma útgjalda­sviða í fjár­mála­á­ætlun. Haft væri í huga hver fjár­fram­lögin hefðu verið í for­tíð­inni þegar gerðar væru til­lögur um ein­staka liði. Hann sagð­ist hins vegar sjálfur ekki hafa „aðgang að þessum gögnum, sund­ur­lið­uðum úr ein­stökum ráðu­neytið“ og bætti við: „Ég hef ekki þessi gögn og í sjálfu sér ef við förum að skipa fyrir um það þá erum við svo­lítið að skemma ferlið með fjár­mála­á­ætlun af því að þar erum við að tala um hinn breiða ramma. En við vitum auð­vitað hvernig fénu hefur verið varið til þessa. Það vita allir nokkurn veg­inn í hvað fjár­lög fara.“ Loks var­aði Benedikt við því að hug­mynda­fræð­inni á bak við fjár­mála­á­ætlun yrði kastað fyrir róða. „Ég tel að það sé í raun og veru verið að spilla fyrir hug­mynda­fræð­inni bak við þetta ef við förum að hugsa þetta sem ein­stakar fjár­veit­ingar á þessu stigi máls­ins, svo ég svari spurn­ingu hátt­virts þing­manns.“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa þing­menn minni­hlut­ans reynt að fá aðgang að upp­lýs­ing­unum án árang­urs, bæði með form­legum og óform­legum hætti. Fyr­ir­spurnir Jóns Þórs og Björns Levís eru 12 tals­ins, en spurt er um tekjur og gjöld ráðu­neyta og und­ir­stofn­ana þeirra, tekjur og gjöld ráðu­neyta og stofn­ana á mál­efna­sviði ein­stakra ráð­herra og tekjur og gjöld Alþingis og und­ir­stofn­ana þess.

„Óskað er eftir sund­ur­liðun eftir mál­efna­sviðum og hag­rænni flokkun, sund­ur­liðað í launa­kostnað og rekstr­ar­kostnað, skipt eftir lög­bundnum verk­efnum, þ.m.t. tíma­bundnum verk­efnum, yfir­stand­andi og fyr­ir­hug­uðum, og öðrum kostn­að­ar­liðum,“ segir í fyr­ir­spurn­unum. 

Björn Leví bendir á það í sam­tali við Stundina að sam­kvæmt lögum um opin­ber fjár­mál eigi upp­lýs­ingar um þróun gjalda og sund­ur­liðun þeirra eftir mál­efna­sviðum og hag­rænni flokkun að fylgja fjár­mála­á­ætl­un­inni sjálfri.

„Við erum bara að biðja um það sem lögum sam­kvæmt á að vera í fjár­mála­á­ætl­un­inni,“ segir Björn sem gerir athuga­semd við þennan skort á upp­lýs­ingum í minni­hluta­á­liti sínu um fjár­mála­á­ætl­un­ina sem full­trúi Pírata í fjár­laga­nefnd. 

„Eins og hver sér sem skoðar fjár­mála­á­ætl­un­ina eru gjöldin vissu­lega flokkuð eftir mál­efna­sviðum og árum til þess að sýna þróun gjalda. Það sem vantar hins vegar algjör­lega í fjár­mála­á­ætl­un­ina er hag­ræna flokk­unin. Í lögum um opin­ber fjár­mál er hag­ræn flokkun gjalda skil­greind á eft­ir­far­andi hátt: „Greining gjalda í rekstur, til­færslur og fjár­fest­ingu sam­kvæmt alþjóð­legum hag­skýrslu­staðli um opin­ber fjár­mál.“ Ekkert er að finna um þessa grein­ingu gjalda eða fjár­fest­ingu í fjár­mála­á­ætlun,“ skrifar Björn sem telur mik­illar grein­ing­ar­vinnu þörf vegna skorts á gagn­sæi í fjár­mála­á­ætlun „Eins og fram kom í umsögn fjár­mála­ráðs um fjár­mála­á­ætl­un­ina er lítið aðgengi að þeim upp­lýs­ingum sem þarf til að greina hvað liggur að baki þeim tölum sem settar eru fram í áætl­un­inni, ef þær eru til­tækar á annað borð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár