Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Kjörin formaður bæjarstjórnar þvert á fyrirheit um að draga úr störfum

Theó­dóra S. Þor­steins­dótt­ir, þing­mað­ur Bjartr­ar fram­tíð­ar, var í síð­ustu viku kjör­in formað­ur bæj­ar­stjórn­ar Kópa­vogs. Fyrr á ár­inu sagð­ist hún myndu draga úr störf­um sín­um hjá bæj­ar­fé­lag­inu. Laun Theó­dóru nema rúm­um 2,2 millj­ón­um króna sem kjör­inn full­trúi á Al­þingi og í sveit­ar­stjórn.

Kjörin formaður bæjarstjórnar þvert á fyrirheit um að draga úr störfum
Theódóra S. Þorsteinsdóttir Gegnir þingmennsku fyrir Bjarta framtíð samhliða því að vera formaður bæjarstjórnar Kópavogs. Mynd: Pressphotos / Geiri

Theódóra S. Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar Framtíðar, var í síðustu viku endurkjörin formaður bæjarráðs í Kópavogi. Þrátt fyrir að þingmennska sé álitin vera fullt starf ákvað Theódóra að gegna bæði þingmennsku og sitja í bæjarstjórn Kópavogs á sama tíma. Þá var hún kjörin varamaður í öldungaráði Kópavogsbæjar.

Þegar Stundin leitaði svara hjá Theódóru í janúar um hvort hún teldi þetta réttlætanlegt, út frá stöðu hennar og skyldum sem þingmaður, að sinna öðrum stöðum samhliða, sagðist hún myndu draga úr skyldum sínum hjá Kópavogsbæ.

„Ég er að fóta mig í þessu og sjá hvernig þetta gengur upp.  Ég hugsa að ég dragi svo sem eitthvað úr,“ sagði Theódóra.

Þá sagði Theódóra að hún myndi draga sig úr nefndarstörfum „Ég mun klárlega draga mig úr nefndarstörfum og segja mig úr stjórnum. Við erum að fara yfir þau mál hér í Kópavogi. Ég vil samt sem áður klára kjörtímabilið sem fulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs, enda var ég kjörin til fjögurra ára,“ sagði Theodóra við DV í janúar.

Theódóra hefur ekki dregið úr starfskyldum sínum á sveitarstjórnarstigi umfram það að gefa ekki kost á sér á ný í stjórn Isavia á aðalfundi félagsins í lok mars. Hún var endurkjörin formaður bæjarstjórnar í síðustu viku og er enn formaður skipulagsráðs bæjarins. Seta í bæjarstjórn Kópavogsbæjar er metin sem 33 prósent staða, formennska í bæjarráði er 45 prósent staða og svo eru greiðslur fyrir að sitja í nefndum. Þá er 15 prósent álag á þingfararkaup fyrir formenn þingflokka. Þannig er Theodóra í hátt í 200 prósent stöðu fyrir hið opinbera á launum frá almenningi.

Jafnréttismál

Theódóra sagði það vera jafnréttismál að hún fengi að gegna starfi bæjarfulltrúa samhliða þingmennsku. „Mér fannst það sama eiga að gilda um um konur,“ sagði Theódóra og vísaði þannig til fyrri fordæma þess að kjörnir fulltrúar hafi starfað bæði á landsvísu og á sveitarstjórnarstigi.

Hún sagði að þingmennirnir Gunnar Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson og Birkir Jón Jónsson hefðu einnig setið í bæjarstjórn samhliða þingmennsku. „Ég kynnti mér þetta sérstaklega fyrir kosningar og fór yfir söguna hér í Kópavogi. Það eru fjölmargir bæjarfulltrúar hér í gegnum tíðina sem hafa verið þingmenn og bæjarfulltrúar. Og jafnvel formenn bæjarráðs. Þetta voru, held ég, allt karlmenn. Mér fannst það sama eiga að gilda um konur. Mig langar til þess að vera hér áfram bæjarfulltrúi. Það er bara eins og allir aðrir. Mér finnst það bara út frá jafnræði. Þegar einhver getur verið læknir eða skólastjóri eða hvað sem er, í 100 prósent starfi, finnst mér það alveg eiga við það að vera þingmaður. Það er auðvitað þannig að ráðherrar eru í 100 prósent starfi sem ráðherrar og líka þingmenn. Og ég talaði alveg skýrt um þetta fyrir kosningar. Ég var margspurð að þessu,“ sagði hún í samtali við Stundina.

Tekjur Theódóru hækkuðu um 186 þúsund krónur á mánuði með ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs um 26 prósenta launahækkun bæjarfulltrúa í febrúar. Eftir launahækkunina námu tekjur Theódóru þannig 2,4 milljónum króna og voru til jafns við tekjur Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Í lok mars lét Theódóra hins vegar af störfum sem stjórnarmaður Isavia fyrir hönd Kópavogsbæjar og lækkuðu laun hennar við það um 160 þúsund krónur. 

Laun þingmanna og bæjarfulltrúa hækkað mikið

Laun þingmanna voru hækkuð langt umfram hækkun almennrar launavísitölu á kjördag, 29. október síðastliðinn. Hækkunin hefur verið rökstudd með því að þingmenn hafi orðið eftir á í kjaraþróun. Hins vegar sýnir samanburður þingfararkaups við þróun launavísitölu að þingmenn hafa hækkað 28 prósentustigum meira í launum en almenningur síðustu tíu árin. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ákvað að gefa launahækkunina til góðgerðarmála og

skoraði á þingmenn að „vinda ofan af“ hækkuninni. „Ég bað ekki um þessa kauphækkun. Ég vissi ekki af þessari kauphækkun. Ég þarf ekki þessa kauphækkun. Margir þingmenn hafa lýst andúð sinni á þessari ákvörðun kjararáðs. Ég vænti þess að þingið vindi þá ofan af þessari ákvörðun,“ sagði hann.

Þingmenn urðu ekki við þeirri áskorun, en forsætisnefnd Alþingis ákvað að endurskoða verulegar endurgreiðslur á kostnaði til þingmanna þess í stað sem varð til þess að laun þingmanna lækkuðu um rúmar hundrað þúsund krónur á mánuði.

Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í síðustu viku var þannig ljóst að Theódóra hugðist ekki draga úr starfskyldum sínum í Kópavogi umfram það að hætta í stjórn Isavia og munu laun hennar því nema rúmum 2,2 milljónir króna á mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár