Jafnaðarmenn gætu misst stjórn á Kaupmannahöfn í dag

Útlit er fyrir að Jafn­að­ar­manna­flokkur Mette Frederik­sen missi borg­ar­stjóra­stól­inn í Kaup­manna­höfn í fyrsta sinn í nærri hund­rað ár. Vinstri sveifla er í kort­unum.

Jafnaðarmenn gætu misst stjórn á Kaupmannahöfn í dag
Barátta Sjálf­boða­liðar hengja upp kosn­inga­skilti fyrir Pernille Rosenkrantz-Theil, núver­andi mennta­mála­ráð­herra Dan­merkur, í Kaup­manna­höfn. Mynd: Sergei GAPON / AFP

Um 4,7 millj­ónir Dana ganga til sveita- og svæð­is­stjórn­ar­kosn­inga í dag, í kjöl­far kosn­inga­bar­áttu sem hefur lit­ast af netárásum. Hakkarar sem eru hlið­hollir Rússum hafa lýst yfir ábyrgð á árás­unum, sem hafa beinst að vef­síðum rík­is­ins, sveit­ar­fé­laga og stjórn­mála­flokka.

Gert er ráð fyrir að úrslitin verði þungt högg fyrir Jafn­að­ar­menn undir for­sæti Mette Frederik­sen, sem nú leiða 44 af 98 sveit­ar­fé­lögum Dan­merkur.

Jafnaðarmaður æðstur í borginni síðan 1938

Jafn­að­ar­menn hafa stýrt höf­uð­borg­inni Kaup­manna­höfn frá fyrstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 1938, en nú gæti flokk­ur­inn misst yfir­ráðin þar, með stuðn­ing í skoð­ana­könn­unum sem mæl­ast aðeins um 11 pró­sent.

Strax árið 2021 féll flokk­ur­inn í annað sæti, en tókst engu að síður að halda borg­ar­stjóra­stólnum eftir snúnar við­ræður við banda­menn sína á vinstri vængnum.

„Fyrir Jafn­að­ar­menn er það svo, svo mik­il­vægt – svo tákn­rænt – að geta sagt: Ég stýri höf­uð­borg­inni,“ sagði Kasper Moller Hansen, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann í Kaup­manna­höfn, við …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár