Víðtæk truflun hefur áhrif á íslenskar vefsíður

Bilun hjá Cloudflare, sem sér um áreið­an­leika og öryggi vef­síðna, hefur valdið því að trufl­anir eru á ýmsum frétta­síðum, sam­fé­lags­miðlum auk ChatGPT.

Víðtæk truflun hefur áhrif á íslenskar vefsíður

Víðtækar trufl­anir eru á ver­ald­ar­vefnum vegna bil­unar í alþjóða­neti fyr­ir­tæk­is­ins Cloudflare. Áhrif­anna gætir í vef­síðum um allan heim og einnig á Íslandi. 

VillaÞessi villu­skila­boð birt­ast not­endum á fjölda vef­síðna í dag.

Trufl­anir hafa verið bæði á vef RÚV og Gímalds­ins vegna þessa auk vefs Mannlífs, sem gefið er út af Sam­ein­aða útgáfu­fé­lag­inu, sem er á köflum óað­gengi­legur vegna vanda­máls­ins. Áhrif­anna gætir einnig hjá vin­sælum vef­þjón­ustum svo sem gervi­greind­ar­for­rit­inu ChatGPT.

Þá nær bil­unin einnig til sam­fé­lags­mið­il­anna X og Lett­er­boxd, svo eitt­hvað sé nefnt.

Cloudflare virkar sem milli­liður milli vef­þjóna og not­enda en til­gangur þjón­ust­unnar er að auka áreið­an­leika, öryggi og virkni vef­síðna auk þess að verja þær fyrir tölvu­árásum.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár