Stjórnarmaður íhugar tillögu um að skoða hlutleysi RÚV

Ingvar S. Birg­is­son, stjórn­ar­maður RÚV, skoðar hvort hann eigi að leggja fram til­lögu um að hlut­leysi Rík­is­út­varps­ins verði skoðað. Hug­myndin kvikn­aði út af skoðun BBC í tengslum við mynd­skeið sem sýndi Donald Trump í vill­andi ljósi.

Stjórnarmaður íhugar tillögu um að skoða hlutleysi RÚV
Rík­is­út­varpið Ingvar S. Birg­is­son, stjórn­ar­maður hjá RÚV, skrif­aði pistil þar sem hann spyr um hlut­leysi RÚV. Hann hefur enn ekki tekið málið upp í stjórn stofn­un­ar­innar en íhugar að gera það. Mynd: Kristinn Magnússon

Stjórn­ar­maður RÚV, Ingvar S. Birg­is­son, seg­ist íhuga að leggja fram til­lögu á stjórn­ar­fundi RÚV þar sem hlut­leysi rík­is­út­varps­ins verði skoðað sér­stak­lega. Stjórn­ar­for­maður Rík­is­út­varps­ins segir öllum stjórn­ar­mönnum frjálst að taka mál upp á vett­vangi stjórn­ar­innar og að hann bíði nú og sjái hvort Ingvar taki þetta mál upp þar. 

ÍhugarIngvar hefur það til skoð­unar að taka það upp í stjórn RÚV hvort fram­kvæmd verði sér­stök skoðun á hlut­leysi stofn­un­ar­innar í umfjöllun sinni.

Athygli vakti þegar Ingvar skrif­aði í vik­unni pistil á Vísi þar sem hann dró hlut­leysi Rík­is­út­varps­ins í efa. Í sam­tali við Heim­ild­ina tekur hann þó skýrt fram að í þessu sé ekki fal­inn áfell­is­dómur yfir starfs­fólki. „Ég er með það til skoð­unar hvort til­laga verði lögð fram og með hvaða hætti slík úttekt verði,“ segir hann.

Kveikjan að þessum hug­myndum Ingvars er staða BBC. Minn­is­blað um hlut­leysi breskrar syst­ur­stofn­unar RÚV …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er þessi sérstaki fulltrúi Miðflokksins í stjórn RÚV ohf. ekki á vitlausum stað að tjá sig ? Hvernig væri að þeir sem þyggja laun fyrir vinnu hjá Eimskip fari yfir til Samskip til að tjá sig ?
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hvað er hlutleysi ? Einusinni var Morgunblaðið sagt ópólitíst en allir hinir pólitískir. Það er pólitíst að taka ekki afstöðu, að láta sig ekki varða.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár