Gert að greiða miskabætur fyrir Facebook-ummæli

Karl­manni hefur verið gert að greiða fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga sínum 250 þús­und krónur í miska­bætur fyrir ummæli sem hann rit­aði um hana á Facebook. Við mat þeirra var litið til útbreiðslu þeirra á sam­fé­lags­miðl­inum.

Gert að greiða miskabætur fyrir Facebook-ummæli

Samkvæmt dómi sem féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær þarf Jónsi Björns­son að greiða fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga sínum 250.000 krónur í miska­bætur fyrir að hafa haldið því fram í ummælum á Facebook að hún hefði falsað und­ir­ritun sína. 

Við mat miska­bót­anna var „litið til útbreiðslu ummæl­anna sem stefn­andi birti á Facebook-síðu sinni á spænsku og merkti þar spænsku­mæl­andi ein­stak­linga sem munu vera búsettir hér­lendis,“ að því er segir í dómnum. 

Við­skipta­fé­lag­inn fyrr­ver­andi, Tamila Gámez Garcell, hafði  stefnt Jónsa fyrir tals­vert fleiri ummæli sem hún vildi að yrðu dæmd dauð og ómerk en hún hélt því fram að þau fælu í sér stór­felldar æru­meið­ingar og aðdrótt­anir. Þar á meðal voru Facebook-færsla, ummæli á miðl­inum og smá­skila­boð sem hann hafði sent eig­in­manni hennar sum­arið 2023.

Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að flest ummæl­anna hefðu þó rúm­ast innan tján­ing­ar­frelsis Jónsa og var því ekki fall­ist á ómerk­ingu þeirra. Þá var Tamilu gert að greiða Jónsa 900 þús­und krónur í máls­kostnað.

Ráku saman veitingastað

Jónsi og Tamila höfðu ásamt þriðja aðila staðið að rekstri veit­inga­stað­ar­ins PK2 á Laug­ar­vegi. Áttu þau í deilum um rekst­ur­inn og síðar um söl­una á rekstr­inum. 

Eftir sölu PK2 stofn­aði Tamila annan veit­inga­stað, en í tengslum við það rit­aði Jónsi stöðu­færslu á Facebook þar sem hann sagði Tamilu hafa stolið og svikið í rekstri PK2 og hafn­aði því að hann stæði með henni að opnun nýja stað­ar­ins.

„Þessi ein­stak­lingur sem sagð­ist vera vin­kona mín og starfs­fé­lagi, hefur, á meðan ég fór í ferða­lag um helg­ina, selt stað­inn, stolið frá mér fjár­munum og falsað und­ir­ritun mína, á meðal margra ann­arra hluta sem ég er viss um að munu koma fram í dags­ljósið,“ skrif­aði Jónsi í ummæli undir færsl­una.

Upp­runa­legu ummælin voru rituð á spænsku og er hér íslensk þýð­ing þeirra eins og þau koma fram í dómnum. 

Þá sendi Jónsi eig­in­manni Tamilu smá­skila­boð þar sem hann sagði hana ljúga að honum, að hann ætl­aði að stefna henni fyrir svik og skatt­und­an­skot og að eig­in­mað­ur­inn ætti að vita af nokk­urm per­sónu­legum og við­kvæmum mál­efnum. Tamila hélt því fram að smá­skila­boðin hefðu smánað hana og bakað henni og fjöl­skyldu hennar mik­inn skaða, en dóm­ur­inn féllst ekki á ómerk­ingu þeirra.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár