Varaði við hættulegri kólnun Íslands á loftslagsráðstefnunni

Jó­hann Páll Jó­hanns­son um­hverf­is­ráð­herra beindi sjón­um að hætt­unni á breyt­ing­um haf­strauma sem geta or­sak­að kóln­un Ís­lands á COP30 ráð­stefn­unni í Amazon.

Varaði við hættulegri kólnun Íslands á loftslagsráðstefnunni
Varar við kólnun Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra ávarpaði loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP30, í dag. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Þúsundum kílómetra í burtu, í Norður-Atlantshafinu, þaðan sem ég kem, er annað loftslagskerfi að sýna bresti,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra, á ræðu sinni fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er í Belém við Amazonfljótið í Brasilíu. 

Jóhann Páll lýsti þar hættunni sem steðjar að Íslendingum vegna þess að veltihringrás Norður-Atlantshafsins, AMOC, hefur verið að veikjast, sem ógnar mildu loftslagi Íslands miðað við hnattlegu.

Ráðherra í BrasilíuNýverið var hugsanlegt hrun heltihringrásar Norður-Atlantshafsins til umræðu í þjóðaröryggisráði Íslands. Nú ræðir ráðherra það á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

„Nýjar rannsóknir benda til þess að AMOC sé ekki aðeins smám saman að veikjast, heldur sé hættan á stórum, skyndilegum breytingum raunveruleg - og hugsanlega nær en fyrri vísbendingar gerðu ráð fyrir,“ sagði Jóhann Páll í ávarpinu og bætti við að breytingin gæti „valdið djúpstæðri röskun á innviðum, lífkerfum og lífsgæðum, jafnvel á líftíma barnanna okkar“. 

Jóhann Páll sagði boðaði auknar aðgerðir í loftslagsmálum.

„Við verðum að draga hraðar úr losun og forgangsraða loftslagsaðgerðum með fjölþættan ávinning. Við verðum líka að fjárfesta duglega í nýsköpun og tækniþróun, allt frá ofurheitum jarðhita til föngunar og niðurdælingar kolefnis. Við skulum ryðja burt hindrunum og stórauka framleiðslu á endurnýjanlegri orku,“ sagði hann í ávarpi sínu.

Í yfirlýsingu frá umhverfisráðuneytinu kemur fram að ráðherra muni meðal annars leggja áherslu á mikilvægi samstarfs ríkja í loftslagsmálum, hnignun veltihringrásararinnar, nýsköpun, föngun og förgun kolefnis og ofurheitan jarðhita. Þá muni hann einnig boða til sérstaks viðburðar um AMOC veltihringrásina og mögulega hnignun hennar í svokölluðum  freðhvolfsskála (Cryosphere-skála), á fimmtudag, þar sem Dr. Stefan Rahmstrof mun halda erindi ásamt öðrum, en hann er einn fremsti sérfræðingur heims í áhrifum loftslagsbreytinga á hafstrauma.

Heimildin hefur reglulega fjallað um um hættuna sem steðjar að breytingu hafstrauma vegna loftslagsáhrifa síðustu ár. 

Árið 2023 fjallaði Heimildin um nýja rannsókn danskra vísindamanna sem benti til þess að vendipunktur væri nær en áður hafði verið talið. Innan samhengis líkans þeirra voru 95% líkur á að veltihringrásin hrynji á tímabilinu 2025 til 2095 og líklegasti vendipunktur árið 2057, eftir 34 ár.

Þar var haft eftir öðrum af tveimur rannsakendunum að loftslag á Íslandi myndi verða líkt og nú er á Svalbarða, ef svo færi. „Ísland mun líklega verða fyrir 5-10 gráðu lækkun á hitastigi, sem hlýnun jarðar bætir þó upp að hluta,“ sagði Peter Ditlevsen, prófessor við Niels Bohr stofnunina í Kaupmannahöfn.

Í fyrra sagði Stefan Rahmstorf í samtali við Heimildina að niðurbrot AMOC yrði „katastrófa fyrir Ísland“ og hvatti stjórnvöld til aðgerða.

„Persónulega þá tel ég að áhættan á þessum breytingum í hafi sé svo alvarleg, sérstaklega fyrir Íslendinga og hin Norðurlöndin, að ríkisstjórn Íslands ætti umsvifalaust að grípa til aðgerða ásamt ríkisstjórnum hinna Norðurlandanna,“ sagði Rahmstorf. 

Síðan þá hafa sumar rannsóknir bent til þess að hrunið sé ólíklegt fyrir árið 2100, en aðrar að vendipunkturinn sé óumflýjanlegur innan fárra áratuga og hrunið sjálft teygi sig yfir 50 til 100 ár, þar til hitastig að vetri fer allt niður í -50 gráður í norrænum borgum og sveiflur í veðurfari leiða til vaxandi óstöðugleika. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kólnun Íslands

Auknar líkur á hruni áhrifamikils hafstraums í Atlantshafi
FréttirKólnun Íslands

Aukn­ar lík­ur á hruni áhrifa­mik­ils haf­straums í Atlants­hafi

Hrun velti­hringrás­ar Atlants­hafs­ins, AMOC-haf­straums­ins, telst ekki leng­ur „ólík­leg­ur at­burð­ur“. Þetta kem­ur fram í nýrri rann­sókn. Stef­an Rahm­storf haf- og lofts­lags­sér­fræð­ing­ur og einn rann­sak­anda seg­ir nið­ur­stöð­urn­ar „slá­andi.“ Í sam­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Rahm­storf að nið­ur­brot AMOC yrði „kat­ast­rófa fyr­ir Ís­land og önn­ur Norð­ur­lönd“ og hvatti ís­lensk stjórn­völd til að­gerða.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
6
Stjórnmál

Sig­mund­ur Dav­íð vill af­nema erfða­fjárskatt

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau vísa með­al ann­ars til OECD en stofn­un­in hef­ur einnig fært sterk rök fyr­ir skatt­lagn­ingu þeg­ar um stór­an arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þeg­ar eig­in­kona Sig­mund­ar fékk rúm­an millj­arð króna í fyr­ir­fram­greidd­an arf sem fór síð­ar inn í af­l­ands­fé­lag­ið Wintris.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu