Auknar líkur á hruni áhrifamikils hafstraums í Atlantshafi

Hrun velti­hringrásar Atl­ants­hafs­ins, AMOC-haf­straums­ins, telst ekki lengur „ólík­legur atburður“. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn. Stefan Rahms­torf haf- og lofts­lags­sér­fræð­ingur og einn rann­sak­anda segir nið­ur­stöð­urnar „slá­andi.“ Í sam­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Rahms­torf að nið­ur­brot AMOC yrði „kata­st­rófa fyrir Ísland og önnur Norð­ur­lönd“ og hvatti íslensk stjórn­völd til aðgerða.

Auknar líkur á hruni áhrifamikils hafstraums í Atlantshafi
Atl­ants­hafið Ekki telst lengur „ólík­legt“ að AMOC-haf­straum­ur­inn brotni niður. Mynd: Golli

Líkur á því að AMOC-haf­straum­ur­inn hrynji hafa auk­ist og getur ekki lengur talist „ólík­legur atburður.“ Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn sem birt­ist í Environ­mental Research Letter í gær. 

Nýlega bentu lofts­lags­líkön til þess að hrun AMOC-haf­straums­ins, velti­hringrásar Atl­ants­hafs­ins sem Golfstraum­ur­inn er hluti af, fyrir árið 2100 væri ólík­legt. Breyting er nú á en rann­sóknin sem birt­ist í gær skoð­aði líkön sem voru keyrð lengur, til áranna 2300 og 2500.

Grein­ingin sýndi að við munum fara yfir þann þrösk­uld eða vendi­punkt sem segir til um að hrun AMOC verði óum­flýj­an­legt innan fárra ára­tuga. Hrunið sjálft gæti síðan átt sér stað fimm­tíu til hund­rað árum eftir að við förum yfir þrösk­uld­inn.  

25 prósent líkur í bestu sviðsmyndinni

Nið­ur­stöður sýndu að ef kolefn­islosun héldi áfram að aukast, leiddu sjö­tíu pró­sent lík­an­anna sem keyrð voru til hruns á AMOC. Ef miðað var við með­al­l­osun spáðu 37 pró­sent lík­ana hruni. …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Kaldhæðnislegt „cold blob (https://en.wikipedia.org/wiki/Cold_blob)“ sem gefur til kynna að AMOC sé að hægja á sér er staðsettur mjög nálægt Íslandi.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hvað geta íslensk stjórnvöld gert til að koma í veg fyrir þessi ósköp?
    1
  • SHP
    Sigrún H. Pálsdóttir skrifaði
    Er þá ekki næst á dagskrá að stoppa eyðileggingu á leirum og mýrlendi, loka álverum og fjármagna rafmagnsbíla fyrir þjóðina, svo eitthvað sé nefnt?
    2
  • SI
    Sigurpall Ingibergsson skrifaði
    Grafalvarleg staða.
    En Hafrannsóknarstofnun þarf að rannsaka hafið betur en vantar fjármagn. Stjórnvöld þurfa að gera eitthvað í því.
    Það gerist galdur í hafinu þegar heitur og saltur sjór sekkur í norðurhluta Atlantshafs og er drifkraftur AMOC.

    Þetta ferli dælir súrefni í djúphafið og tryggir stöðugt uppstreymi næringarefna annars staðar.

    Þessi næring viðheldur frumframleiðslu, sem er grunnurinn að lífríki og fiskstofnum í Norður-Atlantshafi.

    Án AMOC yrði minna súrefni í djúphafi, minni næring á yfirborði, og stórskaði fyrir fiskistofna og vistkerfi. Skildi 4,8% samdráttur í fiskveiðheimildum mega skrifa á 15% hægingu AMOC frá stríðslokum?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kólnun Íslands

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár