Sjómaður þarf að flýja Ísland árið 2087 vegna frosts og aflabrests

Hópur vís­inda­manna hvetur til aðgerða til að stöðva nið­ur­brot AMOC haf­straums­ins í skýrslu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar. Með henni fylgir skálduð smá­saga sem ger­ist eftir sex ára­tugi og fjallar um Ragnar Hjör­leifs­son, sjó­mann á fimm­tugs­aldri, sem getur ekki lengur unnið vegna gjör­breytts lofts­lags á Íslandi.

Hafís
Hafís Ísland verður óbyggi­legt ef AMOC haf­straum­ur­inn brotnar niður sam­kvæmt skáld­legum lýs­ingum í skýrslu vís­inda­mann­anna. Mynd: AFP

Norræna ráð­herra­nefndin hefur birt skýrslu um hætt­urnar sem fylgja því fyrir Norð­ur­lönd ef AMOC haf­straum­ur­inn brotnar niður.

Með skýrsl­unni fylgir smá­saga sem ber tit­il­inn „Vor á Íslandi 2087“ og er ætlað að vekja les­and­ann til umhugs­unar um hvernig Ísland gæti litið út eftir rúma sex ára­tugi. Bent er þó á að áhrif nið­ur­brots AMOC séu lík­legri til að koma fram eftir árið 2150.

Skýrslan var unnin að frum­kvæði Finn­lands sem fer með for­sæti í Norð­ur­landa­ráði um þessar mundir og byggir á ráð­stefnu vís­inda­manna sem haldin var um mál­efnið í Helsinki í Október. Til­gangur skýrsl­unnar er að vekja athygli ráða­manna á áhrifum þess ef haf­straum­ur­inn brotnar niður og hvað sé hægt að gera til að mæta þeirri hættu.

Velti­hringrás Atl­ants­hafs­ins (AMOC) stuðlar að flutn­ingi hlýs yfir­borðs­sjávar norður á bóg­inn og djúp­streymi salt­rík­ari og kald­ari sjávar suður. Þökk sé þess­ari hringrás, sem Golfstraum­ur­inn er hluti af, er hærra …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það er stórfurðulegt hversu hápólitísk málefnin, tengd loftslagskrísunni og öðrum manngerðum krísum, eru orðin. Það er meirihluti kjósenda Miðflokksins, og stór hluti annars hægrifólks, sem hlær bara þegar minnst er á þessi alvarlegu málefni. Hvernig í fjandanum má það eiginlega vera? Mér er um megn að skilja það.
    9
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það verður því miður alls engin lausn að þjappa öllum landsmönnum sama í jarðhitann á suðvesturhorninu eins og þarna er lýst. Jarðhitinn dugar engan veginn. Þetta yrðu þvert á móti, því miður, endalok byggðar á Íslandi. Þessu var öllu klúðrað fyrir nokkrum árum þegar Íslendingar sóttu um og fengu illa ígrundaða undanþágu frá Evrópukröfum um einangrun húsa því heitavatnið væri svo ódýrt. Við sitjum í súpunni og heitvatnsnotkun er orðin gríðarleg, tvöfalt meiri varma þarf til að hita hús á Íslandi en í Skandinavíu, vatnsskorts er þegar farið að gæta í sumum hitaveitum enda tvöfaldast heitvatnsnotkunin að jafnaði á 40 ára fresti, sjálfbærni sumra hitaveitna því stefnt í tvísýnu, og húsin þola bara skammvinn kuldaköst og alls ekki áföll í hitaveiturekstri af neinu tagi eins og augljóst var í eldsumbrotunum á Reykjanesi fyrir fáum árum. Þessi lélega einangrun leiðir líka af sér lélegri loftun húsa, óheilsusamlegra inniloft, lélegri hljóðvist o.fl. Illa höfum við Íslendingar hér farið að ráði okkar í nýtingu jarðvarmans.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kólnun Íslands

FréttirKólnun Íslands

Auknar líkur á hruni áhrifa­mik­ils haf­straums í Atl­ants­hafi

Hrun velti­hringrásar Atl­ants­hafs­ins, AMOC-haf­straums­ins, telst ekki lengur „ólík­legur atburður“. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn. Stefan Rahms­torf haf- og lofts­lags­sér­fræð­ingur og einn rann­sak­anda segir nið­ur­stöð­urnar „slá­andi.“ Í sam­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Rahms­torf að nið­ur­brot AMOC yrði „kata­st­rófa fyrir Ísland og önnur Norð­ur­lönd“ og hvatti íslensk stjórn­völd til aðgerða.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár