18 greindust með tegund ónæmra sýkla í fyrra

Almennt er lítið um sýkla­ó­næmi á Íslandi en sótt­varn­ar­læknir segir þó mikið starf óunnið.

18 greindust með tegund ónæmra sýkla í fyrra
Guðrún Aspelund Sótt­varna­læknir segir mikið starf óunnið vegna sýkla­ó­næmis.

Met­fjöldi greind­ist á Íslandi með ónæmu sýklana kar­bapenemasa-mynd­andi Enterobacterales (CPE) í fyrra, eða 18 manns. Almennt er þó lítið um sýkla­lyfja­ó­næmi á Íslandi en það er talið ein heilsta heil­brigðisógn mann­kyns.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni á vef Embættis land­læknis í dag.

Dagurinn í dag er helg­aður vit­und­ar­vakn­ingu um sýkla­lyf hjá Sótt­varna­stofnun Evrópu (ECDC) og hefst vit­und­ar­vika um sýkla­lyfja­ó­næmi á vegum Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) einnig í dag.

„Til­gangur þess­arar vit­und­ar­vakn­ingar er að minna almenn­ing, stjórn­völd, heil­brigð­is­starfs­fólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería í heim­inum,“ segir í til­kynn­ingu sótt­varna­læknis.

Þá verður árlegt mál­þing sótt­varna­læknis að þessu sinni helgað hjúkr­un­ar­heim­ilum þar sem notkun sýkla­lyfja og byrði af völdum ónæmra sýkla eru mest hjá elstu ald­urs­hóp­unum. Mál­þingið verður þriðju­dag­inn 18. nóv­em­ber á Hrafn­istu á Sléttu­vegi en einnig verður boðið upp á þátt­töku með fjar­fundi.

Lítið miðað við Evrópu

Í til­kynn­ing­unni segir að notkun sýkla­lyfja hjá fólki á Íslandi árið 2024 hafi verið svipuð og und­an­farin ár en um þriðj­ungur lands­manna hafi fengið að minnsta kosti eina sýkla­lyfja­á­vísun á árinu. „Flestum sýkla­lyfjum var ávísað utan sjúkra­húsa, oft­ast af heim­il­is­lækni. Á Íslandi er notkun breið­virkra sýkla­lyfja almennt lítil sem er jákvætt þar sem breið­virk sýkla­lyf stuðla frekar að auknu sýkla­lyfja­ó­næmi. Notkun sýkla­lyfja er mest hjá yngstu og elstu ald­urs­hóp­unum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Sýkla­lyfja­ó­næmi í bakt­er­íum hér á landi er almennt lítið miðað við mörg ríki ESB/EES, þó aukn­ing hafi orðið á vissum gerðum ónæmra sýkla,“ segir enn­fremur. „Sér­stakar áhyggjur vekur aukn­ing á kar­bapenemasa-mynd­andi Enterobacterales (CPE) á milli ára, en 18 ein­stak­lingar greindust með CPE í fyrsta sinn árið 2024, sem er met­fjöldi. Algeng­asta gerð til­kynn­ing­ar­skyldra ónæmra sýkla eru sýklar sem mynda breið­virka beta-laktamasa (ESBL/AmpC), en þessi gerð ónæmra sýkla grein­ist oft­ast hjá eldra fólki, sér­stak­lega konum, og sér­stak­lega í tengslum við þvag­færa­sýk­ingar.“

Rannsókn á hjúkr­un­ar­heim­ilum hér­lendis sýndi að um 7% íbúa tóku eitt eða fleiri sýkla­lyf á þeim tíma sem rann­sóknin fór fram. Yfir helm­ingur af öllum sýkla­lyfjum voru gefin í fyr­ir­byggj­andi til­gangi, sem er hátt í sam­an­burði við önnur ESB og EES ríki. Þar af var nær helm­ingur til að fyr­ir­byggja þvag­færa­sýk­ingar.

Spítalasýkingar algengar í Evrópu

Þá segir í til­kynn­ingu sótt­varna­læknis að árlega fái 4,3 millj­ónir sjúk­linga á Evrópska efna­hags­svæð­inu að minnsta kosti eina sýk­ingu sem teng­ist heil­brigð­is­þjón­ustu – „spít­ala­sýk­ingu“ – og að margar séu vegna ónæmra sýkla.

„Sýking sem teng­ist heil­brigð­is­þjón­ustu er sýk­ing sem ein­stak­lingur fær meðan á dvöl eða með­ferð í heil­brigð­is­kerf­inu stendur og var ekki til staðar við komu,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Þetta getur til dæmis verið á sjúkra­húsi, á heilsu­gæslu eftir inn­grip, á hjúkr­un­ar­heim­ili, eða í tengslum við heima­hjúkrun. Dæmi um algengar sýk­ingar sem tengj­ast heil­brigð­is­þjón­ustu eru þvag­færa­sýk­ingar (oft tengdar þvag­leggjum), lungna­bólga (til dæmis tengd önd­un­ar­vél), blóð­sýk­ingar (tengdar æða­leggjum) og skurðsára­sýk­ingar.“

Á hverjum tíma eru um 7% sjúk­linga á sjúkra­húsum í ESB og EES, eða einn af hverjum 14, með að minnsta kosti eina sýk­ingu sem teng­ist heil­brigð­is­þjón­ustu. Á hjúkr­un­ar­heim­ilum eru um 3% íbúa með að minnsta kosti eina slíka sýk­ingu.

„Miklar vonir eru bundnar við inn­leið­ingu nýlegrar aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda“

„Ein af hverjum þremur örverum sem finn­ast í sýk­ingum tengdum heil­brigð­is­þjón­ustu eru bakt­er­íur sem eru ónæmar fyrir mik­il­vægum sýkla­lyfjum, sem tak­markar mögu­leika til að með­höndla sýk­ingar og á hverju ári deyja yfir 35.000 manns í ríkjum ESB/EES vegna sýk­inga af völdum sýkla sem eru ónæmir gegn sýkla­lyfjum. Dán­ar­tíðni vegna þess­ara sýk­inga er sam­bæri­leg við sam­an­lagða dán­ar­tíðni inflú­ensu, berkla og HIV/alnæmis á svæð­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Loks segir að þó staðan á Íslandi sé að mörgu leyti góð hvað varðar notkun sýkla­lyfja og sýkla­lyfja­ó­næmi sé mikið starf óunnið. „Miklar vonir eru bundnar við inn­leið­ingu nýlegrar aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda,“ en sótt­varn­ar­læknir tekur einnig þátt í alþjóð­legum verk­efnum til þess að sporna við útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmis.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár